Málfríður - 15.09.1998, Page 28
Námskeið framhaldsskólakennara
í Hróarskeldu og á Schæffergárden í Gentofte
dagana 5.—15. ágúst 1998
Asa Kristin Jóhannsdóttir
Bryndís Helgadóttir
„sprog og kultur
hænger sam-
men“
28
Danmark i dag
— Roskilde i 1000 ár.
I grein þessari verður þallað um námskeið
dönskukennara á liðnu sumri. Við sáum
skipin er báru forfeður okkar upp að
ströndum landsins, þegar ritað mál var
rúnir. Fundum hvernig „sprog og kultur
hænger sammen“ við mismunandi að-
stæður í skólum, á söfnum, í leik- og kvik-
myndahúsum. En söfn og ýmsar stofnanir
hafa á sínum snærum færustu leiðsögu-
menn, sem við nutum góðs af.Við sátum
öfugu megin við kennaraborðið og hlust-
uðum á fyrirlestra færustu manna. Sum
okkar enduðu dvölina með því að heim-
sækja „den nordiske puls der slár midt i
hjertet af Kobenhavn þ.e.a.s. Nordisk
ministerrád“ og sáum drög að norrænni
tungumálastefnu á 21. öldinni.
Hróarskelda.
Námskeiðið hófst með ferð í Víkingasafn-
ið í Hróarskeldu, þar sem getur að líta
fimm skip sem eru frá lokum víkingatím-
ans. Menn sökktu skipunum til þess að
verjast innrásum. Það var árið 1963 að
menn þurrkuðu upp svæðið og náðu leif-
unum af þessum skipum, þau hafa verið
sett saman og sýna hve menn réðu yfir
mikilli þekkingu í skipasmíðum árið
1000. Við færðum okkur síðan yfir í nú-
tímann og heimsóttum Holbæk Handels-
skole og HolbækTekniske skole. I Holbæk
Handelsskole hélt Bente Skipper M.A.
námsstjóri erlendra tungumála stuttan
fyrirlestur um skipulag og uppbyggingu
námsins við skólann. Síðan kynntuVibeke
Wass og Vibeke Thomsen bókmenntir í
tungumálakennslu, og námsefni fyrir bók-
menntakennslu í tungumálum.
í Holbæk Tekniske Skole hittum við
kennara og nemendur að störfum. Kennslu-
stjóri skólans, Anne Gram, hélt fræðandi
fyrirlestur um skipulag og uppbyggingu
verknáms í Danmörku almennt og sér-
staklega um skipulag námsins í Holbæk
Tekniske skole. Einn af námsráðgjöfum
skólans hafði framsögu um skipulag á
námsráðgjöf við tækniskólann og hvernig
trúnaðar er gætt gagnvart nemendum og
um samvinnu við forráðamenn. Námsráð-
gjafinn fylgdi okkur um allar deildir skól-
ans og kynnti starfsemina, m.a. fram-
kvæmd sveinsprófa í nokkrum greinum.
Við nutum einnig leiðsagnar Michael
Svendsen Pedersen sem er forstöðumaður
Alþjóðlegu tungumálamiðstöðvarinnar,
hann kom síðan til okkar á Schæffer-
gárden og stjórnaði „kommunikative
aktiviteter“. Hann hafði skipulagt hóp-
vinnu undir titlinum „Dagens Dan-
mark“. Menn skiptu sér í hópa og skoð-
uðu ýmsa menningarkima Kaupmanna-
hafnar, þeir gáfu hópnum síðan skýrslu
um rannsóknarleiðangra sína, auðvitað á
dönsku. Eitt verkefnanna var heimsókn í
Nordisk ministerrád. Þar kom fram að
stofnuð hefur verið nefnd aðila allra
Norðurlandanna sem á að vinna að sam-
norrænni tungumálastefnu á 21. öldinni.
I drögum að stefnumörkun kemur m.a.
fram í grein 2.1. að „som mál for nordisk
sprogpolitik anbefaler sprogpolitikgrup-
pen, at de skandinaviske sprog fortsat
udgor den fælles ramme om det nordiske
samarbejde.“
Við sjáum sem sagt fram á það að halda
vinnunni eitthvað áfram dönskukennarar.
Ekki var Hróarskelda yfirgefin án þess
að koma við í háskólanum og tók Karen
Riisager á móti okkur og kynnti fyrir
okkur fræði sín um það hvernig „sprog og