Málfríður - 15.09.1998, Page 29
kultur hænger sammen“, hún skoðar þessi
tengsl út frá eftirfarandi punktum:
1. Kultur som indhold i sprogsystemet,
især ordforrádet.
2. Kultur som kontekst for og indhold i
individets personlige sprogsystem.
3. Kultur som historisk samfundsmæssig
kontekst for sprogbrugen.
4. Kultur som tematisk indhold i sprog-
brugen.
5. Kultur som æstetisk bevidst sprog-
brug.
Háskólinn er ung stofnun. Hann var
stofnaður árið 1972, þar stunda um 6000
nemendur nám. Það lýsir ef til vill róti því
er skólinn hefur valdið í dönsku samfélagi
frá upphafi, að Else Hansen var ráðin til
þess að skrifa sögu skólans á 25 ára afmæli
hans. Hún skrifaði bókina „En koral i
tidens strom“. Ekki þótti ráðamönnum
henni hafa tekist vel til við skrifin og var
annar höfundur ráðinn er skrifaði sögu
skólans „á hefðbundnari nótunr“ og voru
báðar bækurnar gefnar út.
Við nutum ágætrar leiðsagnar er við
heimsóttum dómkirkjuna í Hróarskeldu,
en hún er talin ein merkasta og best varð-
veitta kirkja síns tíma í heimi.Við vorum
m.a. frædd um það að Friðrik IX. hafði
látið þau orð falla, að þar vildi hann ekki
bera beinin, hann vildi vera utan veggja
dómkirkjunnar „þar sem sæist til allra
átta“.
Schæffergárden
Er hópurinn var kominn til Schæffer-
gárden, fengum við heimsóknir margra
góðra fyrirlesara. Einn þeirra var Karen
Lund er fjallaði um „sprogindlæring".
Hún hefur skrifað bókina, “Lærer alle
dansk pá samme máde, en længde-
undersogelse af voksnes tilegnelse af dansk
som andetsprog".
Henrik Galberg Jacobsen fjallaði í fyrir-
lestri sínum um „Dansk sprogs status i
dag“, en hann starfar hjá Danskri málnefnd.
Soren Sogárd fjallaði svo ásamt Kirsten
Rantorp um „Avisen i undervisningen“.
Þau telja að færri og færri kaupi dagblöð,
ungt fólk sjái aðeins auglýsingar, þess
vegna sé mikilvægt að kenna blaðalestur.
Sören sagði að nemendur hafi verið látnir
spreyta sig á því að búa til blöð út frá
ákveðnum þemum, t.d. hvað fælist í starf-
inu kennari.
Soren lýsti yfir áhuga sínum á því að
koma til Islands og halda námskeið um
„Avisen i undervisningen“. Eitthvað
virðist hann eiga eftir í pokahorninu sem
ekki komst til skila þennan hluta úr degi
er hann dvaldi með okkur.
Við héldum uppteknum hætti við að
víkka sjóndeildarhringinn er komið var til
höfuðborgarinnar og heimsóttum m.a.
Þjóðminjasafnið að Brede. Þar stóð yfir
sýningin „Krop og forklædning", sýnis-
horn af dönskum fatnaði sl. 300 ár.
Carlsbergverksmiðjurnar voru skoðaðar
undir leiðsögn sagnfræðingsins Gorm
Gecler sem fræddi okkur á einstaklega lif-
andi hátt um sögu Carlsberg brugghússins
og framlag stofnandans I.C. Jacobsen og
sonar hans til lista og menningar í Dan-
mörku.
Kristjanía var heimsótt. Þar tók á móti
okkur kennari sem búið hefur á staðnunr
í rúm tuttugu ár. Hann flutti fróðlegan
fyrirlestur og fylgdi okkur síðan um frí-
ríkið.
Þó að kvikmyndahús væru ekki á dag-
skrá námskeiðsins, þá sáum við samt tvær
nýjar danskar myndir, önnur þeirra
„Idioterne“ er gerð af Lars von Trier, hin
myndin „Festen“ var ekki síður áhuga-
verð.Vonandi rata þessar myndir á kvik-
myndatjöld hér á landi. I Nýhöfninni ligg—
ur skip sem útbúið hefur verið sem leik-
hús og kallast „Bádteatret“, þar sáum við
„Dan Turéll show“ sem byggt var á verk-
um þessa ágæta rithöfundar.
A þriðjudögum og fimmtudögum hafa
verið sumartónleikar í „Ny Carlsberg
Glyptotek" sem er fógur umgjörð um
tónlistarflutning. Þar var hlustað á hátíðar-
tónleika „Kobenhavns Kammersolister“.
Danmörk er uppspretta menningar og
lista. Það má segja að hópurinn frá Islandi,
Þau telja að
færri og færri
kaupi dagblöð,
ungt fólk sjái
aðeins auglýs-
ingar, þess
vegna sé mikil-
vægt að kenna
blaðalestur.
... tvær nýjar
danskar myndir,
önnur þeirra
„Idioterne“ er
gerð af Lars von
Trier, hin
myndin „Fes-
ten“ var ekki
síður áhugaverð.
29