Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Qupperneq 2
DAGUR DÝRANNA 1976
2.
Samband dýraverndunarfélaga íslands hefur ritað biskupi bréf,
þar sem minnt er á fastákveðinn dag dýranna þriðja sunnudag í
september ár hvert, þ.e. hinn 19. september n.k. að þessu sinni.
í bréfi þessu fer stjórn S.D.Í. þess einlæglega á leit við biskup
að hann beini því til presta landsins að þeir minnist dýranna
við guðsþjonustur þennan dag, og er því hér með komið á framfæri
við hlutaðeigendur.
'’Það er ætlun stjórnar sambandsins að nota daginn til að hvetja
til bættrar meðferðar þeirra dýra, sem mennirnir hafa tekið sér
til ánægju" eins og segir orðrétt í fyrrnefndu bréfi.
í bréfinu er getið um nokkra þætti þessa máls sem mönnum ber
sífellt að vera á varðbergi við s.s. utburðar á köttum, drekkingui
hvolpa og kettlinga, og bent á að slíkar aðferðir séu alls
ésæmandi þegar kunnar eru mannúðlegri aðferðir við aflífanir
þeirra. Þá er minnt á að hrossaeign landsmanna skipti þúsundum
og getið um dæmi þess að hross hafi soltið í hel við stallinn,
eða á útigangi.
Þá er getið um drekkingar á selum og þau grimmúðlegu dráp for-
dæmd harðlega.
í niðurlagi bréfs stjérnar S.D.Í. segir orðrétt: "Stjérn S.Ð.Í.
þykir mikill stuðningur að því, er prestarnir minnast dýranna og
hvetur til bættrar meðferðar á þeirn.11
N-lRSK UNGMENNI 1 BOÐI HJALPARSTOFNUNAR KIRKJUNNAR
Eins og undanfarin sumur bauð Hjálparstofnun kirkjunnar nokkrum
Norður-írskum ungmennum til hálfs mánaðar dvalar hér á landi frá
14. - 28. ágúst s.l.
Eins og flestum er kunnugt ríkir hið mesta évissu- og réstur-
ástand víða á N-írlandi. Þetta hefur að sjálfsögðu x för með sér
mikla erfiðleika fyrir íbúa þessara svæða og þá ekki síst fyrir
börn og unglinga. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur því nú um 5
ára skeið, í samvinnu við "Holiday project Derry" boðið nokkrum
börnum og unglingum til stuttrar dvalar hér á landi x því augnar-
miði að létta undir með þeim sem e.t.v. eiga um hvað sárast að
binda. Hépar þessir hafa samanstaðið að hálfu leyti að métmæl-
endum og hinum helmingnum kaþélskum. Eftir dvölina hér, sem