Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Blaðsíða 14
14 .
Sr. Þorvaldur er kvæntur Þóru Kristinsdóttur, kennara, og
eiga þau tvær dætur.
NÝR AÐSTOÐARÆSKULÝÐSFULLTRÚI
Jóhannes Tómasson, sem gegnt hefur starfi aðstoðaræskulýðs-
fulltrúa í rúmt ár sagði starfi sínu lausu nú í sumar. í starf
aðstoöaræskulýðsfulltrúa hefur verið ráðin frk. Stína Gísladóttir,
kennari, frá 15. ágúst að telja.
Stína Gísladóttir er fædd í Kaupmannahöfn 16. max 1943 dóttir
hjónanna Thoru Kristjánsson og Gísla Kristjánssonar, fyrrverandi
ritstjóra Freys.
Hún lauk prófi frá rlenntaskólanum x Reykjavík 196 3 , kennaraprófi
frá Kennaraskóla íslands 1964 og B.A. prófi í dönsku og landa-
fræði frá Háskóla íslands 1969.
Stína hefur tekiö virkan þátt í kristilegu æskulýðsstarfi og
sumarbúðastarfi um margra ára skeið m.a. hjá K.F.U.K. í Hafnarfirði
og sunnudagaskóla fríkirkjunnar þar. Hún hefur starfað sem
barnakennari í öldutúnsskóla í Kafnarfirði í 11 ár og eitt ár
við skóla í Danmörku.
NORRÆNN BISKUPAFUNDUR í REYKJAVÍK
18. norræni biskupafundurinn var haldinn í hátiðarsal Kaskóla
íslands dagana 3. - 6. ágúst s.l. Fund þennan sem haldinn er
reglulega þriðja hvert ár sátu biskupar frá öllum Norðurlöndunum,
frá Danmörku 9, frá Finnlandi 6, 9 frá Noregi, 7 frá Svíþjóö, þá
sat biskupinn í Færeyjum, en af Tslands hálfu auk biskups Tslands
báðir vígslubiskuparnir. Var hér um að ræða einn fjölmennasta
biskupafund af bessu tagi, sem haldinn hefur verið. Þá fylgdu
margar biskupsfrúr með eiginmönnum sínum. Fund.ir þessir eru ekki
föst stofnun, heldur fyrst og fremst kynningarfundir, þar sem
biskuparnir koma saman til þess aö ræða sameiginleg málefni og
kynnast hver öðrum. Af þeim sökum eru fundir þessir lokaðir.
Engar bindandi ákvaröanir eru teknar á fundum þessum. Dagskrá
fundarins var í megin atriðum eftirfarandi. Einn biskup frá
hverju landi flutti erindi um helstu vandamál krikjunnar í sínu
heimalanai, en að öðru leyti snerist dagskráin urn málefni sem