Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Blaðsíða 8
8.
sitt starf geta fengið sent sýnishorn. Jafnframt er nokkuð til
af fyrsta árgangi, fyrir þá sem vildu byrja nú í vetur, en ennþá
er nóg til af röð II.
NEMENDASKIPTI
Eins og undanfarin ár komu nú í sunar ungmenni á vegum ICYE,
Kristileg alþjóöa ungmenna skipti, sem dveljast hér í eitt ár.
Um leið fóru á vegum æskulýðsstarfsins, sem hefur með þessi mál
að gera hár á landi, þrettán íslensk ungmenni til ársdvalar
erlendis. Að þessu sinni komu hingaö unglingar frá Finnlandi,
Svíþjóð, Nýja-Sjálandi, 2 frá Þýskalandi og 3 frá Bandaríkjunum.
Þau munu vinna á ýmsum stöðum á landinu, auk þess sem þau sækja um
tíma Lýðháskólann í Skálholti. Fljótlega í vetur verða svo aug-
lýstar umsóknir fyrir þá sem vilja gerast skiptinemar á næsta ári.
lýðhAskölar
Jafnhliða fyrirspurnum um nemendaskiptin, hafa þó nokkrir leitað
eftir upplýsingum um lýðháskóla. Fyrst er auðvitað að geta
Lýðháskólans í Skálholti. Á synodus lágu frammi upplýsingar um
Skálholtsskólann og vísast til þeirra, auk þess sem sr. Heimir
Steinsson, rektor ritaði nýlega grein í Morgunblaðið um stöðu
skólans í menntakerfinu og benti á augljósa þörf fyrir slíkan
skóla í okkar samfólagi. Fyrir nokkrum árum fóru allmörg
ungmenni á vegum æskulýðsstarfsins á lýðháskóla á Norðurlöndum,
einkum í Noregi. Ekkert er því til fyrirstöðu að endurvekja bað
starf og veitir skrifstofa æskulýðsstarfsins nánari upplýsingar.
Strax skal á það bent að Norræna félagið hefur veitt styrki til
þeirra sem stunda slíkt nám hjá frændþjóðum okkar á Norðurlöndum.
PRESTASTEFNAN 1976
Að þessu sinni var prestastefnan haldin dagana 29. júni - 1. júli
og fóru fundir hennar fram f safnaðarheimili Bústaðakirkju í
Reykjavxk. Aðalviðfangsefni hennar var málefnið "Sálgæsla".
Flutt voru fjögur erindi um þetta efni.
Sr. Sigurður Helgi Guðmundsson nefndi erindi sitt "Sálgæsla,
sérbekking, samstarf11. Taldi hann nauðsynlegt aö prestur heföi