Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Side 10

Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Side 10
10. þar sem sjúklingurinn finnur að í samfélagi við Guð og aðra kristna menn er ávallt von og skapandi afl, sem broskar og eflir. Eftir 25 ára starf sem prestur í Reykjavík sagöi Sr. árelíus Níelsson frá reynslu sinni við sálgæslustörf og nefndi erindi sitt ,lSálgæsla í borgi:. 1 upphafi rakti sr. Árelíus nokkur atriði og tilvitnanir x M.T. sem honum fannst einkenna sálgæslu- hlutverkið, einkum bó orðin: SiGæt þú lamba minna”. Það er engin furða að prestur er oft nefndur hirðir. Allur boðskapur kristins dóms er sálgæsla, en predikunin nær til fárra en þeir sem ekki heyra hana eru hvað aðgangsharðastir um alla gæslu, þegar í ógöngur er komið. SÍmtöl, samtöl, ferðir, leitir, heimsóknir og vitjanir eru samferða sálgæslunni, sem oft er erfitt að sjá sýnilegan árangur af. Helstu orsakir að böli hinna ''týndu'* taldi sr. Árelíus vera þessar: Áfengis- og eitur- neysla, eftirlæti við sjálfan sig, taumleysi í ástarmálum, og afbrigðilegt kynferðislíf, sem svo er nefnt. En rætur og jarð- vegur ógæfunnar í mannlegri hjörð áleit hann vera vanrækslu heimila, skóla og kirkju á trúarlegu uppeldi barna og unglinga. Oft er sálnahirðirinn tengiliður ýmissa stofnanna og einstaklings- ins og þess vegna þarf hann að kunna skil á helstu stofnunum sem samfélagið hefur að bjóða til hjálpar hverjum einstaklingi. Þá gat sr. Árelíus bestu starfsaðferða hirðis í stórborg, en þær eru aö hans áliti: 1) Undirbúningur með námi og starfi og lestri og bæn. 2) Aö kunna að hlusta og begja. 3) Tala með fullri virðingu og auðmykt við einstaklinginn. 4) Bæn, fyrirbæn, sambæn, hljóð bæn. Á hljóðri stund getur tónlist (prestsins, prests- konunnar) oft verið mikilsverð. Mörg eru vandamál einstaklingsins í dag, ’en þar heldur hjcrðin sig og þar verður að vaka, vinna og stríða. Eina stóra hættan, sem ávallt vofir yfir sálgætinum er uppgjöfin, vanmat á Guði og sjálfum sár.1' Sr. Tómas Guðmundsson flutti erindio. "Sálgæsla meðal syrgjenda". Hann gat þess í upphafi að hlutverk prestsins væri ro.a. fólgið í því að hjálpa hinum eftirlifandi að komast yfir það áfall sem dauði ástvina veldur. Höndla þyrfti manneskjuna sem eina heild, sál og lxkama. Öll geðhrif verka bæði á líkama og sál. Maðurinn getur ekki skotið sér undan motlætinu og þjáningunni. Hins vegar þarf einstaklingurinn stuðning. Það tilheyrir starfi prests að veita þann stuðning, og þá verður hann að gera sér grein fyrir ýmsum atriðum, m.a.: hver eru einkenni hins syrgjandi,

x

Fréttabréf frá Biskupsstofu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf frá Biskupsstofu
https://timarit.is/publication/1506

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.