Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Side 12

Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.08.1976, Side 12
12. Þá lagði biskup frain "Hanabók fyrir presta og söfnuði”, drög að tillögu. Let biskup bau orð fylgja, að þessi bók væri lögð fram á hans ábyrgo prestum og söfnuðum til athugunar og notkunar í tilraunaskyni. Allsherjarnefnd bárust tvær tillögur, sem samþykktar voru. Var sú fyrri frá sr. Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi prófasti, og hljóðaði svo í lítið eitt breyttri mynd nefndarinnar: Presta- stefna fslands 1976 beinir þeim tilrnælum til kirkjustjórnarinnar að vinna að því að lög um sjúkrahúsprest komi til framkvæmda hið allra fyrsta. Síðari tillagan barst frá sr. Bjarna Sigurðssyni. "Prestastefna íslands 1976 beinir þeim tilm.ælum til kirkjuráðs að það birti reikninga ráðsins og aðrar skýrslur þess, annað tveggja x Gjörðum kirkjuþings eða hinni árlegu skýrslu Prestastefnunnar.'s Á prestastefnunni var kosin fimm manna "skipulagsnefnd sálgæslu". í henni eiga sæti: Sr. Tómas Guðmundsson, Sr. Tómas Sveinsson, Sr. Halldór Gröndal, Sr. Jón Bjarman, Sr. Kristján BÚason. BISKUPSRITARI Á FÖRUM Eins cg komið hefur fram var ðlafsfjarðarprestakall auglýst laust til umsóknar nú í sumar. Ein umsókn barst, frá cand.theol. Vigfúsi Þor Árnasyni, sem dvalið hefur í Þýskalandi við nám á s.l. ári. Nú hefur sr. Úlfar Guðr.undsson, biskupsritari, sem áður var sóknarprestur í ðlafsfirði óskað eftir að hverfa aftur til prestsembættis í ólafsfirði, enda liggja fyrir áskoranir margra safnaðarmanna um þaö. Vigfús Þór Árnason hefur því dremiö umsókn sína um ðlafsfjörð til baka.

x

Fréttabréf frá Biskupsstofu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf frá Biskupsstofu
https://timarit.is/publication/1506

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.