Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.01.2016, Síða 8

Bæjarins besta - 07.01.2016, Síða 8
8 Fimmtudagur 7. JANÚAR 2016 Í stað viðtals í þessu fyrsta blaði ársins setjum við saman annál frétta ársins í Bæjarins besta og á bb.is. Stiklað er á stóru og oft samhengislaust, enda ekki ætlunin að endur- segja allar fréttir ársins. Hægt er að nálgast fréttirnar í heild sinni á bb.is, vilji menn rifja upp allar staðreyndir mála. Janúar Nýársnóttin var tíðindalítil að sögn lögreglu á Ísafirði en að þessu sinn var ekki kveikt á ártali hverfandi árs í hlíðum Eyrarfjalls eins og verið hefur mörg undan- farin ár. Skátafélagið Einherjar/ Valkyrjur var einfaldlega of fámennt til að geta framkvæmt verkið en að sögn Salmars Más Salmarssonar skáta vonast þeir eftir að geta tekið þessa skemmti- legu hefð upp að nýju um næstu áramót. Ásgeir Överby tryggur lesandi bb benti á að það væri óþarfi að skrönglast upp hlíðina, það væri alveg nóg að setja þetta á planið hjá spennistöðinni. Virðisaukinn er frumkvöðla- verðlaun Ísafjarðarbæjar en þau voru fyrst veitt árið 2002, í byrjun janúar kom í ljós að Kristín Þórunn Helgadóttir hafði hlotið verðlaunin þetta árið fyrir Fjöruperlurnar en það eru skartgripir unnir út vestfirsku klóþangi. Sigmundur F. Þórðar- son fékk hvatningarverðlaun Ísafjarðarbæjar fyrir félagsstörf fyrir Íþróttafélagið Höfrung á Þingeyri. Sverrir Guðnason, vestfirðingur í báðar ættir hlaut Gullbjölluna fyrir besta leik í aðalhlutverki en Gullbjallan eru sænsku kvikmyndaverðlaunin. Kristín Þorsteinsdóttir var kjörin Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar. Vestfirðingur ársins 2014 var kjörin Magna Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur frá Bol- ungarvík en hún hefur í fjölda- mörg ár verið starfandi með læknum án landamæra. Tekin var ákvörðun um að loka fimm ára deildinni Eyrarsól, tals- verð óánægja og umræður voru um þessa ákvörðun. Mugison fékk sex mánaða starfslaun og Orkubú Vestfjarða veitti nítján samfélagsstyrki. Í Langadal í Ísafjarðardjúpi fundust dularfull spor og veltu menn vöngum hvernig þau væru tilkomin og ýmsar tilgátur viðr- aðar. Það voru Halldór Eraclides og Sigurður G. Aðalsteinsson sem sáu fugl, sennilega álku, gera alveg eins för. Þar með féllu hugmyndir eins og mörgæsaför um sjálft sig. Í janúar voru liðin 20 ár frá því snjóflóðið féll á Súðavík og var þess minnst bæði í Súðavík og í Reykjavík. Þá eru líka 20 ár frá því að snjóflóðið féll á Grund í Reykhólasveit þar sem Ólafur Sveinsson bóndi fórst. Þann 19. janúar féll snjóflóð í hlíðum Eyrarfjalls og lenti skíðamaður í flóðinu, hann barst með flóðinu nokkur hundruð metra og slas- aðist nokkuð og var hann fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugi. Í janúar átti Ísafjarðarbær 149 ára afmæli kaupstaðaréttinda en þau réttindi fékk bærinn þann 26. janúar 1866. Á hundrað ára af- mælinu var ráðist í að smíða líkan af kaupstaðnum eins og hann leit út árið 1866 og er líkanið á annarri hæð í stjórnsýsluhúsinu. Líkanið hefur allt verið tekið í gegn og málað á þessu ári. Davíð Rist Sighvatsson úr Dýrafirði tók þátt í Ísland got Talent þættinum og náði þar góðum árangri þó ekki hafi hann landað sigri. Flateyri hlaut þann vafasama heiður að eiga ódýrustu fasteign- irnar samkvæmt úttekt Salvars Þórs Sigurðssonar en meðalverð á fermetri á Flateyri reyndist vera 51.354 kr meðan meðalverð á Ísafirði var 122.408 kr Í janúar var kastljósinu tals- vert beint að atvinnuástandinu á Flateyri og Þingeyri þar sem fiskvinnslur voru að loka. Febrúar Bragi Björgmundsson hesta- maður var útnefndur íþrótta- maður ársins í Bolungarvík. Skáldsagan Kata eftir Steinar Braga var besta glæpasaga 2014 að mati Glæpafélags Vestfjarða og hlaut að launum Tindabikkj- una. Gamla dreifikerfi ríkisútvarps- ins var lokað í febrúar og þar með var aðeins hægt að nota stafrænt sjónvarp, sem reyndar flestir eru komnir með. Bettý, bóndi á Ingjaldsandi er ein þeirra sem ekki geta notað stafrænt sjónvarp og varð hún þar með sjónvarps- laus. Sömu sögu er að segja frá fjórum bæjum í Miðdal en hann liggur milli Steingrímsfjarðar og Gilsfjarðar. Í mánuðinum aug- lýsti Ríkiskaup eftir aðilum til að koma á hringtengingu ljósleiðara á Vestfjörðum. Í byrjun mánaðarins gerði vitlaust veður á Hólmavík og mældist þar mesti vindhraði frá upphafi mælinga eða 27,5 m/s og í hviðum 35 m/s. Litlu seinna voru miklir vatnavext- ir í fjórðungnum og voru 50 nemendur úr Framhaldsskóla Norðurlands strandaglópar við Staðará í Steingrímsfirði þar sem stórt skarð hafði komið í veginn. Nemendur og kennarar urðu að hafast við í rútu heila nótt. Talsverðar skemmdir urðu á sundlaugargarðinum á Suður- eyri í þessum leysingum og á Ísafirði varð gríðarlega mikið tjón. Ökkladjúpt vatn í kjallara safnhússins og mikið tjón á sjúkrahúsinu. Það var til þess tekið á Fla- teyri að 10. febrúar var enn kveikt á jólatrénu, væntanlega til að gleðja bæjarbúa sem flestir horfðu fram á atvinnuleysi eftir að Arctic Oddi hafði sagt upp öllum sínum starfsmönnum. Óperuklúbburinn á Ísafirði bauð upp á Brúðkaup Figarós eft- ir Mozart í Hömrum og Leikfélag Menntaskólans sýndi Sweeney Todd. Rýma þurfti hús á Patreksfirði vegna snjóflóðahættu og flóð féllu í byggð. Snjóflóð féllu á Klofningslínu við Flateyri og fór rafmagn af þorpinu. Febrúarmánuður 2014 var sá kaldasti frá 2008 Mars Á svið bæjarmála var rætt um leyfi bæjarfulltrúa til að tjá sig um óafgreidd mál og Sæstrengurinn í Arnarfirði var þrætuepli. Flateyri vann í byggðakvóta- úthlutuninni á Vestfjörðum með 396 tonn og Dúa bílar áttu 30 ára afmæli. Íslenskt sjávarfang ehf fékk aflaheimildir Byggðastofn- unar á Þingeyri, 400 þorskíg- ildistonn. Grunnskóli Ísafjarðar kepptu Skólahreysti og skipsfélagar á Júlíusi Geirmundssyn tóku þátt í mottumars og minntust þannig Sverris Halldórssonar skipsfélaga sem lést eftir baráttu við krabbamein. Slökkviliðs- og lögreglumenn á Ísafirði störtuðu hlaupabrettunum og söfnuðu áheitum fyrir félaga sinn Þóri Þrastarson sem glímir við erfið veikindi. Takmarkið var að ganga eða hlaupa 350 km en þegar hætt var eftir sólahring voru kílómetr- arnir orðnir 412,4 Tálknfirðingar mótmæla lokun póstafgreiðslu. Fjórtán starfsmenn Hólma- drangs á Hólmavík luku raun- færnimati í fisktækni en lög- reglumanni vikið úr starfi og var ákærður um fjárdrátt. Samtök fiskframleiðenda neit- uðu að mæta á fund Pírata þar sem Kristinn H. Gunnarsson átti að vera frummælandi, það varð til þess að fundurinn var ekki haldinn. Áður höfðu samtökin leikið sama leik þegar Ólafur Jónsson, of nefndur Óli ufsi, var meðal frummælenda. Fisk- vinnsluvélar Arctic Odda voru fluttar til Póllands og bæjarfull- trúar Vesturbyggðar funduðu með forsvarsmönnum Fjarðalax en fyrirtækið hafði sagt upp 14 starfsmönnum í vinnslunni og útilokar ekki að vinnslan hverfi frá Vestfjörðum. Leiftur flutningar ehf var stofnað á Reykhólum og Galdra- karlinn í Oz rauk upp á svið á Þingeyri. Úlli Önundar opnar Úlfarshöfn á Flateyri en það er sýning með listavel smíðuðum skipslíkönum. Perlur fjarðarins ehf opnuðu markaðsskrifstofu á Flateyri og Byggðastofnun ákveður að ganga til liðs við ný- stofnaða Fiskvinnslu Flateyrar og úthluta 300 þorskígildistonnum til hennar. Ísafjarðarbær fær 10.000.000 frá forsætisráðherra, þann aur á að nota til að gera þrívíddarlíkan Árið 2015 hjá Bæjarins besta Magna Björk Ólafsdóttir. Sigrún Pálmadóttir í Brúðkaupi Figarós.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.