Bæjarins besta - 07.01.2016, Síða 13
fimmtudagur 7. JANÚAR 2016 13
Haldnir voru fjölmennir
styrktartónleikar fyrir Katrínu
Björk Guðjónsdóttir frá Flateyri
en hún berst við alvarleg veikindi.
Skiljum óþarfa umbúðir eftir
við kassann, átak sem Hildur
Dagbjört Arnardóttir startaði
og markmiðið var að minnka
umbúðanotkun. Keppni um
sterkasta manninn og sterkustu
konuna fór fram og sigurvegarar
voru Ingibjörg Ólafsdóttir og
Sigfús Fossdal. Á Flateyri var
settur upp ærslabelgur, ungum
sem gömlum til mikillar gleði.
Talsverðar umræður sköpuðust
um skort á dagmæðrum.
Desember
Í desember er endalaust fram-
boð af menningarviðburðum,
tónleikum, listasýningum og
upplestrum. Snerpa riggaði
upp ljósleiðara á Ísafirði og
nú tengjast heimili við hann.
Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps er
óánægður með þjónustu Orku-
bús Vestfjarða, rafmangsskortur
hamli atvinnuuppbyggingu.
Hjörtur Traustason landar sigri
í The Voice og Kristín Jóna fær
hugrekkisverðlaun Stígamóta.
Glæsilegt Hjúkrunarheim-
ili í Bolungarvík hélt fallega
vígslu- og afhendingarhátíð
og nú bar svo við að allir hlut-
aðeigendur mættu, bæjarstjóri
Bolungarvíkurkaupstaðar til að
afhenda bygginguna, forstjóri,
lækningaforstjóri og hjúkrunar-
forstjóri Heilbrigðisstofnunar
Vestfjarða til að taka við henni
og ráðherra heilbrigðismála sem
lagði blessun sína yfir allt saman.
Mikið óveður var á landinu
öllu um miðjan mánuðinn og á
Þverfjalli var stöðugur vindur
yfir 40 m/s á sekúndu fjórtán
tíma samfleytt. Gríðarlegt tjón
varð hjá Orkubúi Vestfjarða í
þessu desemberáhlaupi og bæði
hús og hlöður fuku út í veður
og vind.
Bíldælingurinn Þröstur Leó
var valinn maður ársins á Rás
2 fyrir björgunarafrek þegar
Jón Hákon sökk. Knúz og BB
fóru í hár saman vegna um-
ræðu um styrk til Sólstafa og
afgreiðslu félagsmálanefndar
og Menntaskólinn útskrifaði
fimmtán skipstjóra, sex stúdenta
og tvo sjúkraliða.
Brotnir staurar eftir óveður.
Hjúkrunarheimili opnað í Bolungarvík.
Hjörtur Traustason.