Bæjarins besta - 06.01.1993, Qupperneq 4
4
BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 6. janúar 1993
Oháð vikublað
á Vestfjörðum,
Útgefandi:
H-prent hf.
Sólgötu 9,
400 ísafjörður
8 94-4560
i 94-4564.
Ritstjóri:
Sigurjón <J.
Sigurðsson
8 4277 &
985-25362.
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J.
Sigurðsson og
Halldór
Sveinbjörnsson
8 4101 &?
985-31062.
Blaðamaður:
Margrét Björk
Arnardóttir
8 3675.
Útgáfudagur:
Miðvikudagur.
Prentvinnsla:
H-prent hf.
Bæjarins besta
er aðili að
samtökum
bæjar- og
héraðsfrétta-
blaða.
Eftirprentun,
hfjóðritun,
notkun ]jós-
mynda og
annars efnis er
óheimil nema
heimilda sé
getið.
Hörður Guðmundsson fjorði i kjöri Rasar2 um Mam arsins 1992:
„Eg trúði ekki
• •
minum eigin
eyrum“
■sagði Hörður um viðbrögð sín við fréttinni
I NALEGA 25 ár hefur
Hörður Guðmundsson flug-
maður séð um sjúkraflug á
Vestfjörðum. I upphafi
ætlaði hann sér einungis að
vera að í 3 mánuði en 1. maí
á næsta ári eru komin 25 ár
síðan hann hóf þessa starf-
semi sina og hann heldur
ótrauður áfram.
Það er óhætt að segja að
Vestfirðingar kunni vel að
metastörf Harðaríþeirraþágu
því fjöldinn allur af fólki
hringdi inn þegar kjör manns
ársins stóð yfir á Rás 2 og gaf
Herði atkvæði sitt. Lokatölur
urðu þær að Hörður hafnaði
í fjórða sæti sem er glæsilegur
árangur.
Aðspurður um viðbrögðin
við þessum fréttum sagðist
Hörður ekki hafa trúað sínum
eigin eyrum þegar hann heyrði
þetta. „Þetta kom mér mjög á
óvart. Eg var staddur Norður í
landi og þegar ég kom heim
heyrði ég af einhverjum til-
nefningum. Morguninn eftir
heyrði ég síðan úrslitin og ég
trúði varla mínum eigin eyrum.
Maður er aldeilis ekki einn á
meðan maður hefur svona
stuðning.”
A sl. ári flutti Hörður um
200 sjúklinga frá hinum ýmsu
stöðum á Vestfjörðum og
oftaren ekki lá líf við. Hörður
flýgur aðallega frá Patreks-
firði, Bíldudal, Hólmavík,
Reykhólum, Grundarfirði og
Rifi. Einnig er alltaf eitthvað
um flug frá Isafirði en það
hefur minnkað mjög undan-
farin ár.
Núna eru þeir tveir flug-
mennimir sem starfa hjá Flug-
félaginu Erni og er það með
minnsta móti. í gegnum tíðina
hefur hópur flugmanna verið
þjálfaður hjá Herði. Þcir hafa
tlogið víða um heim m.a. í
Evrópu, Bandaríkjunum,
Afríku og Asíu. Núna er einn
staddur í Víetnam að fljúga.
Að sögn Harðar segja þeir allir
að það sé barnaleikur að
fljúga erlendis miðað við þær
aðstæður sem boðið er upp á
hér á landi.
„Aðstæðurnar sem flogið
er við hérna á Islandi eru þær
frumlegustu sem hægt er aó
komast í. I Afríku þar sem
skilyrði eru frumstæðust er
aðstaðan ekki verri en hérna á
litlu völlunum og á Grænlandi
eru þeir fáu flugvellir sem þar
eru í það minnsta vel útbúnir
til lendinga.” Allar breytingar
hérlendis ganga mjög hægt og
er ótrúlegt oft á tíðum að flug-
mönnum sé boðið upp á þær
aðstæður sem þeir þurfa að
vinna við.
Þessi tæpu 25 ár sem Hörður
hefur starfað á Isafirði hcfur
hann þó hcilmikið flakkað um
heiminn. Hann hefur flogið
víða og má þar nefna staði
eins og Mosambik og Kenýa
og einnig hefur hann flogið í
Bandaríkjunum.
Blaðið óskar Herði inni-
lega til hamingju með titilinn
og óskar honum, fjölskyldu
hans og starfsfólki farsældar á
komandi árum.
Bolungarvík:
Þrettándagleði í kvöld
ÞAÐ VERÐUR kátt á hjalla
í Bolungarvíkinni í kvöld. Von
er á að álfar og aðrar kynja-
verur heimsæki bæinn og af
þeim sökum á að slá upp
mikilli þrettándagleði. I fyrra
var gleðin haldin á ísafírði
svo nú er komið að Bol-
víkingum að kveðja jólin og
verður það gert með
miklum glæsibrag.
Gleðskapurinn hefst á blys-
för sem farin verður frá
skólanum kl. 20.00. Gengið
verður um bæinn og sungið
fyrir framan sjúkrahúsið.
Skrúðgangan endar á
Hreggnasavöllum. Þar verður
brenna með öllu tilheyrandi,
söng, dans og gleði.
Ymsar verur koma í heim-
sókn og má þar nefna álfakóng
og drottningu ásamt Ijósálfum
og dökkálfum, grýla og leppa-
lúði mætaá svæðið með jóla-
sveinaskarann, skrattinn lítur
við og kannski einhverjir fleiri
góðir gestir. Gleðin endar á
flugeldasýningu sem
Lionsmenn í Bolungarvík sjá
um.
Að sögn Önnu Edwald hefur
gengió vel að fá þátttakendur
að þessu sinni og eru það um
50 manns sem koma þarna
nærri. Allir sem vettlingi geta
valdið eru hvattir til að mæta
og er það von manna að veður-
guðirnir gefi að af þessu geti
orðið á tilskildum tíma.
ísafjörður:
í
LAUGARDAGINN 9.
janúar nk. kl. 16.00 opnar
Harpa BjÖrnsdóttir mynd-
listarsýningu í listasalnum
Slunkaríki á ísafirði.
Harpa lauk námi frá
Myndl ista- og handíðaskóla
íslands 1981 og hefur á
undanförnum árum haldið
sýningar bæði hér heim og
erlendis.
Sýningin í Slunkaríki cr
ellefta einkasýning Hörpu og
verða á sýningunni mynd-
verk unnin með blandaðri
tækni. -malf.
Leiðarinn:
Nýársgjöf
Vaxtahækkunin, nýársgjöf bankanna til fyrirtækja og
almennings, er afar öheppilegt innlegg í umræðuna sem
framundan er milli launþega og atvinnurekenda.
Talsmenn bankanna hafa ekki látið mikið hafa eftir
sér um vaxtahækkunina, hvorki hinir rótfastari þar innan
veggja eða nýliðar, sem áður hafa látið vaxtamál mikið
til sín taka.
Það vita allir að bankarnir hafa við sín vandamál að
glíma líkt og önnur fyrirtæki. Offjárfesting í húsnæði og
innri yfirbygging sem hlaðist hefur upp á undanfömum
árum kemur þar við pyngjuna ekki síður en hjá öðrum.
I vaxandi samkeppni eiga fyrirtæki ekki svo gott með
að hækka einhliða veró á framleiðslu og þjónustu til að
mæta auknum útgjöldum. Þau verða að leita annarra
leiða.
Þrátt fyrir svonefnt vaxtafrelsi virðist ekki mikið bera
á milli hjá bönkunum við samanburð á vöxtum. Þeir
gylla að vísu fyrir manni hinar og þessar Ieiðir til
ávöxtunarsparifjár. Sé grannt skoðað virðistekki mikill
bragðmunur á súpunni þótt skálin kunni að vera
mismunandi myndskreytt.
Bankarnir hafa lengst af lifað að mestu á vaxtamismun
inn- og útlána. Þessi stefna hefur að sjálfsögðu leitt til
þess að vaxtamismunurinn hefur verið og er óeðlilega
mikill.
Nú er það auðvitað öllum kunnugt að bankarnir veita
margvíslega og góða þjónustu aðra en að lána mönnum
peninga. Þessi þáttur starfseminnar hefur vaxið ört hin
síðari ár. Samt mun það svo að bankarnir hafa veigrað
sér við að láta viðskiptavini sína greiða fyrir þessa
þjónustu, að minnsta kosti ekki í neinum mæli og alls
ekki í samræmi við tilkostnað.
Þetta er furðuleg afstaða, sem svo sannarlega mismunar
viðskiptavinum. En því aóeins hafa bankarnir getað
leyft sérþetta í harðnandi samkeppni um viðskiptavinina,
aó þeir hafa sjálfdæmi um tekjurnar í formi
vaxtamismunar.
Bankarnir hafa sýnt það að þeir eru í stakk búnir til að
taka að sér margvíslega þjónustu og ganga inn í hlutverk,
sem áður hafa verið talin tilheyra hinu opinbera og ekki
á færi minna en sjö manna nefndar um að fjalla cóa
steinrunninna embættismanna að lcggja blessun sína
yfir.
En fyrir þessa þjónustu á að greiða. Þessi þjónusta á
ekki að vcra borin uppi af einstaklingum og fyrirtækjum
sem þurfa á lánafyrifgtæiclslu að halda. Litríkar
auglýsingar um þetta frítt og hitt frítt eru bull. Allt þetta
verður að borga. Og bankarnir taka kostnaðinn; bara
ekki af þeim sem þjónustunnar njóta.
Ein af mörgurn leiðunum sem fara mátti til að létta
stöðu bankanna var að afnema bindisskylduna í
Seðlabankanum. Hennar cr ekki þörf lengur.
Erfiðleikar bankanna skulu ekki dregnir í efa.
Vaxtahækkunarleiðin sem þeir völdu á dögunum var
hins vegar það alversta sem þeir gátu gcrt við ríkjandi
aðstæður.
s.h.