Bæjarins besta - 06.01.1993, Qupperneq 5
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 6. janúar 1993
5
ísafjörður:
• Fyrsta barnið, sem fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði á árinu 1993,
kom i heiminn í fyrrinótt kl. 03.02. Það var stúlka, 3675 g og 51 cm á lengd.
Foreldrar hennar eru Sveinbjörg Sveinsdóttir og Kristinn Halldórsson,
Fjarðarstræti 57, á ísafirði. Blaðið óskar foreldrunum til hamingju með litlu
stúlkuna. -ma.
ísafjörður:
Próflausir á stolnum bíl
MIÐVIKUDAGINN 30.
desember síðastliðinn var
brotist inn í Grunnskólann á
Blönduósi sem og lögreglu-
stöðina á staðnum og þaðan
stolið peningum ásamt fleiru
verðmætu. Sama dag var bif-
rciðinni H-772 sem er af
gerðinni Toyota Camry stoiið
við íbúðarhús á staðnum og
var strax hafin leit að bif-
reiðinni.
Hvað kemur þetta ísafirót við
spyrja kannski einhverjir en sam-
banderþt't þamaámilli þvi tæpum
sólarhring síðar fannst bifreióin
fyrir utan íbúðarhús í Hnífsdai,
rúmum fimm hundruð kíló-
metrum frá Blönduósi.
í framhaldí af fundi bif-
reiðarinnar voru tveir góð-
kurtningjar lögreglunnar í Reykja-
vík handteknir, annar á sextánda
ári og hinn sautjár) ára og
viðurkenndu þeír að hafa stolið i
bifreiöinn i. Sá y ngri v iðurkenndi
einnig aó hafa ekið bifreióinni
nánast alla leíöina þrátt fyrir
ungan aldur. Hinn viðurkenndi
eínnig brot sitt og akstur á bif-
reiðinni en þrátt fyrir að hafa
aldur til hafði hann ekki öku-
réttindi.
Mennimir viðurkenndu einnig
innbrotin á Blönduósi. Þeir voru
hýstir á lögreglustöðinni á ísa-
firði fram yfír áramót en þá fóru
þeir flugleiðís til Reykjavíkur.
Bifreiðin er enn á lsafirði og
virðist hún lítið skemmd. Málið
er talið aðfullu upplýst og verður
það sent ríkissaksóknara til
frekari vinnslu.
-s.
Hlíöarskjólsmáliö á ísafirði:
Bæjaryfirvöld
krefjast opinberrar
rannsóknar
BÆJ ARYFIRVÖLD á ísa-
firði gengu á Gamlársdag á
fund lögreglunnar á Isafirði
þar sem opinberrar rann-
sóknar var krafist á fjár-
reiðum leikskólans Hlíðar-
skjóls á Isafirði en eins og
kunnugt er þá hefur fyrr-
verandi forstöðukonu leik-
skóians ekki tekist að gefa
viðhlítandi skýringar á
tæpum fimm hundruð
þúsund krónum sem nú þegar
vantar upp á uppgjör
samkvæmt mati bæjaryfir-
valda.
Það var í september síðast-
liðnum að starfsmenn
bæjarins urðu varir við að
eitthvað athugavert var við
uppgjör og skil daggjalda frá
leikskólanum og fannst þeim
lítió hafa borist frá skólanum
miðað við umfang og var því
málið rannsakað. Þegar hér
var komið við sögu var for-
stöðukonan í fríi en er hún
kom úr því var hún krafin
skýringa og reiddi hún þá fram
hluta þeirrar fjárhæðar sem á
vantaði að mati bæjaryfir-
valda.
Viðbótarskýringar ásamt
uppgjöri á rúmum 400
hundruð þúsund krónum sem
bærinn hefur krafist af for-
stöðukonunni hefur enn ekki
borist bæjaryfirvöldum og því
var tekin ákvörðun um að
krefjast opinberrar rannsóknar
á fjárreiðum skólans. I milli-
tíðinni urðu nokkur blaðaskrif
um málið m.a. af eiginmanni
forstöðukonunnar sem í grein
sinni ásakaði formann félags-
málaráðs Isafjarðar um
trúnaðarbrot í starfi og
krafðist að hann biðist opin-
berlega afsökunar eða segði
af sér. I kjölfar þessara skrifa
óskaði félagsmálaráð eftir því
við bæjarfyrirvöld að opinber
rannsókn færi fram á
fjárreióum skólans en beðið
var með þá ákvörðun þar til á
Gamlársdag.
Þar sem forstöðukonan er
flutt frá Isafirði verður málið
að öllum líkindum sent
rannsóknarlögreglu ríkisins til
frekari vinnslu.
-s.
ísafjörður:
Landsbankinn segir
ekki upp starfsfólki
LANDSBANKI íslands á
Isafirði kemur ekki til með
að segja upp starfsfólki á
næstu mánuðum þrátt fyrir
að niðurskurður í starfs-
mannahaldi standi fyrir
dyrum hjá Landsbankanum.
I kjölfar frétta þar sem sagt
var frá því að fækka ætti starfs-
fólki Landsbanka Islands tölu-
vert var haft samband við
BaldurOlafsson og hann inntur
eftirþvíhvcmigþessum málum
væri háttað í Landsbankanum
á Isafirði.
Hann sagði að á síðasta ári
hefði starfsfólki fækkað tölu-
vert án þess að komið hefði
til uppsagna. Astæðuna sagði
hann vera að ekki væri ráðið
nýtt fólk í stað þess sem hætti
og væri stefnan að fækka
starfsfólki bankans á þennan
hátt. Engar fækkanir eru
ráðgeróar á næstu mánuðum
og engar fyrirskipanir um upp-
sagnir hafa komið frá ráða-
mönnum fyrir sunnan.
-ma.
KJALAMOPPUR
(/Ííðsterkar skjalamðppur með stálkanti.
áflegir litirnir setja svip á hverja skrifstofu.
tlað til geymslu á A4 skjðlum.
erð aðeinskr. 290,-m.vsk.
H-PRENT
Sólgötu 9, ísafirði, sími 4560