Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.03.1993, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 17.03.1993, Blaðsíða 1
ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ / A VESTFJÖRÐUM AÐILIAÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA IMIÐVIKUDAGUR 17. MARS 1993 1 1. TBL. ■ 10. ÁRG Verðkr. 150,- o ' BB-spjall: Kristján orkubússtjóri - sjá bls. 2-3 Körfubolti: Bolvíkingar sektaðir? - sjá bls. 8 Hvað gerðist? Óveðrið mikla '68 - sjá bls. 6-7 Skotmálið: Dómur kveðinn upp eftir helgina - sjá baksíöu Skíði: Besti arangur Astu - sjá bls. 9 OPIÐ KL. 09-12 OG KL. 13-17 FLUGLEIDIR - SÖLUSKRIFSTOFA - MJALLARGÖTU 1 • ÍSAFIRDI Veisluþjónusta - heitt og kalt borð Pantið tímanlega fyrir ferminguna Mánagötu 1 ísafirði, 4? 4306 Ferjurekstur: Hættir ríkið styrkveitingum vegna Fagranessins 1996? NÝTT frumvarp til vega- laga er nú fyrir Alþingi. I því frumvarpi er ekki gert ráð fyrir því að ríkinu verði heimilt að greiða út styrki af vegaáætlun til ferja sem sigla til staða sem eru í vegasam- bandi allt árið. Ekki cr þó skorið á greiðslurnar strax hcldur veitur þriggja ára að- Iögunartími. Þetta þýðir að mjög líklega hættir ríkið að veita fé til reksturs Fagra- nessins eftir árið 1996. „Ef að þetta verður til þess að stöðva ferjusiglingar hér í Djúpinu og þjónustu við ferða- menn og íbúa hér á svæðinu þá líst mér ekki vel á það,” sagði Smári Haraldsson bæjar- stjóri á Isafirði í samtali við BB. „Spurningin sem hins vegar brennur á manni er sú hvað verður gert í sambandi við rekstur Fagranessins á næstu árum. Verður komið upp aó- stöðu til að Fagranesið geti tekið bíla? Það er spurningin í dag,” sagði Smári. Er líklegt að ríkið veiti fé í þá framkvæmd nú þegar til stendur að stööva styrk- veitingamar jafnvel eftir 1996? Djúpbáturinn Fagranes. Það má kannski lesa milli línanna að það þyki varla skynsamlegt? „Já, það gæti verið. En spurningin í dag er hvað verður með Fagranesið á þessu ári. Verður farið í framkvæmdir vegna bíla- bryggja? Ef það verður ekki gert, hvað verður þá gert í staðinn? Hitt er svo annað sem við verðum að sjá framúr til lengri tíma. Það er hvernig verður með ferðir norður á Strandir. Þær eru mikilvægar fyrir okkur vegna ferða- mannanna.” Finnst þér iíklegt að aðrir taki við rekstrinum hætti ríkið að veitafé til ferjunnar? „Eg skal ekki segja hvað gerist ef til þess kemur. En það yrði mikil breyting og ég held að sveitarfélögin yrðu ekki fús til að taka þetta á sig og taka við af ríkinu,” sagði Smári Haraldsson bæjarstjóri á Isafirði. ~hj- Ferjurekstur: Annað hvort ferja eða bættir vegir -munum ekki halda tveimur samgönguleiðum opnum yfir veturinn, segir Björn Olafsson hjá Vegagerðinni BJÖRN Ólafsson verk- fræðingur þjónustudeildar Vegargerðar ríkisins segir að ekki hafi neitt verið ákveðið um það hvort ferju- bryggjum verður komið upp á Isafirði eða inni í Djúpi á næstunni. „Það hefur ekkert verið rætt sérstaklega. Við áttum fund á Isafirði með þeim sem að málinu koma, nú í vikunni. Vorum þaraðbyrjakönnunar- viðræður við þá aðila sem málið snertir. Við ræddum við fulltrúa Isafjarðarkaup- staðar, hreppana inni í Djúpi, Djúpbátsins og fleiri, og vorum fyrst og fremst að heyra þeirra skoðanirog sjónarmið,” sagði Björn í samtali við BB. í frumvarpi til nýrra vega- lega er ekki gert ráð fyrir því að n'kið styrki ferjur sem sigla til staða sem eru í vegasambandi allt árið. „Það eru sérstaklega eyjarn- ar sem þurfa þjónustu. Þær eru ekki tengdar við vegakerfið. En þú sérð hvað stendur í vegalögunum, þar er þetta nokkuð skýrt.” Þú átt við að styrkveitingar verði aflagðir til ferja sem sigla til staóa sem eru í vega- sambandi allt árið? „Við munum væntanlega fylgja vegalögum hvað þetta varðar.” Vegagerðin leggur þá ekki út í kostnað við ferjubryggjur nú þegar til stendur að ríkið hætti jafnvel styrkveiting- unum? „Við þurfum að fylgja lögunum og munum fylgja þeim. Við höfum tvo valkosti, ferjur eða vegi. Á sunnan- verðum Vestfjörðum er ekki mokað og vegir ekki þjónust- aðir og ekki byggðir upp. Við vorum meðal annars að fjalla um þetta á fundinum; hvaða valkost menn telja vænleg- astan. En við munum ekki halda uppi tveim samgöngu- leiðum opnum allan veturinn. Það á eftir að ræða það hvaða valkost menn telja vænleg- astan; að bæta vegina eða velja ferjuna,” sagði Björn Olafs- son verkfræðingur þjónustu- deildar Vegagerðarinnar. ^ ísafjörður: Handtekinn með fíkniefni ÍSFIRÐINGUR um tví- ingnum. Þeir voru allir í tugt var handtekinn á ísa- fangaklefáum nóttinaen var fjarðarnugvelli á mánu- dagskvöld með fíkniefni í fórum sínum. Maðurinn sleppt í gær og var málið þá talið upplýst. Efnið hafði maóurinn keypt í Reykjavík sem var að koma frá Reykjavík rcyndist vera og var það ætlað til eigin neyslu hjá fjórmenning- með rúm 18 gr. af hassi, tæpt gramm af marijúana og eitt gramm af amfeta- míni. I framhaidi af töku manns- ins voru þrír Bolvíkingar handteknir og reyndust þeir eiga efnið ásamt ísfirð- unum. Tveir menn til við- botar voru yfirheyrðir vegna málsins en þeim var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Mál- ið verður yent til Sýslu- mannsins á Isafirði til frekari meðferðar. -s. RITSTJÓRN *ZT 4560 - FAX TT 4564 ■ AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT S 4570

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.