Bæjarins besta - 17.03.1993, Síða 6
6
RÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 17. mars 1993
Hvað gerðist á lslandijyrir25 ámrn?
ísafirði 6. febrúar 1968:
Ofsaveður veldur stór-
slysum oggífurlegu tjóni
Guðmann ásamt systkinum sínum og foreldrum, Karitasi Guðbjörgu Guðleifsdóttur og
Guðmundi bónda Asgeirssyni á Kleifum stuttu eftir björgunina . Ljósm.: P.Jackson.
Harry Eddom á sjúkrahúsinu á ísafirði.
Fárviðri gekk yfir fiski-
miðin og Iandið um síðustu
helgi. Mestur varð veður-
ofsinn á Vestfjörðum og
Norðurlandi. Alvarlegastar
urðu afleiðingarnar á ísa-
fjarðardjúpi, þar sem tveir
breskir togarar og íslenskur
fískibátur fórust og 26 sjó-
menn týndu lífí, 20 breskir
og sex íslenskir.
Togarinn Ross Cleveland
frá Hull fórst með 18 mönnum
á ísafjarðardjúpi. Um svipað
leyti strandaði annar breskur
togari á Snæfjallaströnd. Var
lengi tvísýnt um hvort takast
mætti að bjarga áhöfninni en
varðskipið Oðinn náði að
bjarga 18 skipverjum, en einn
fórst. Togaranum Ross Cleve-
land hvolfdi skyndilega, en
mikil ísing hafði hlaðist á
skipið. Ofsaveður var á og
héldu 22 togarar sjó á þessum
slóðum. Attu áhafnir skipanna
fullt í fangi með að halda
þeim ofansjávarog stóðu sjó-
mennirnir við að höggva ís
sem hlóðst á skipin. Loft-
skeytamaður eins togarans
heyrði síðasta kall skip-
stjórans á Ross Cleveland:
Viðerum aðfara yfirum! Og
örlítið seinna: Við erum að
fara! Skilið ástarkveðju
minni og skipsmanna til eigin-
kvenna okkar og fjölskyldna.
Frækileg björgun
Notts County strandaði rétt
innan við Súrnadal á Snæ-
fjallaströnd. Varðskipið Oð-
inn, sem statt var undir Græn-
uhlíð, kom fljótlega á vett-
vang. Ekkert var hægt að að-
hafast að sinni vegna veður-
ofsans, en skömmu eftir há-
degi 5. febrúar tókst Oðins-
mönnum með harðfylgi og
lífshættu að bjarga skipsá-
höfninni, 18 manns, en einn
skipverja var látinn úr kulda
og vosbúð.
Hímdi næturlangt
undir húsvegg
Einn skipverji af breska
togaranum Ross Cleveland,
sem sökk í ofviðri á Isa-
fjarðardjúpi, komst lífs af. Er
það fyrsti stýrimaður, Harry
Eddom, 26 ára gamall. Liggur
hann nú á sjúkrahúsinu á Isa-
firði, allmikið kalinn áfótum
og höndum, en þó furðu hress.
Þegar togarinn sökk komst
Harry Eddom í gúmbát ásamt
tveimur félögum sínum. Bát-
inn rak með þá í tíu til tólf
klukkutíma, en bar loks að
landi innst í Seyðisfirði. Voru
tveir mannanna þá látnir, en
stýrimaður lagði af stað í átt
að húsi sem hann sá við botn
fjarðarins. Varhann lengi að
komast þangað, líklega mest
allan mánudaginn. Hús þetta
var sumarbústaður og reyndist
harðlokað og neglt fyrir alla
glugga. Hafði hann ekki mátt
til að brjóta upp. Stóð Harry
Eddom síðan í skjóli við
húsið alla næstu nótt og fram
áþriðjudagsmorgun, en mest-
allan tímann var grenjandi
hríð.
A þriðjudag árla sá hann
dreng, sem var að reka kindur,
og gat kallað til hans. Hann
hjálpaði skipbrotsmanni heim
að næsta bæ, Kleifum, og var
það ekki nema 15 mínútna
gangur.
Sjúkrahús í
umsátursástandi
ísafirði 9. febrúar 1968:
Sjúkrahúsið á Isafirði hefur
verið í umsátursástandi síðan
kl. 6 í gærmorgun. Þá byrjuðu
breskir blaðamenn og ljós-
myndarar að þyrpast að
dyrunum og vildu komast inn.
Átti starfsfólk fullt í fangi með
að verjast innrásarhernum og
varð sjúkrahússlæknirinn,
Ulfur Gunnarsson, aö standa
í handalögmáli við Bretana,
sem börðust um á hæl og
hnakka til að komast inn í
bygginguna.
Blaðamennirnir ætluðu að
vera viðstaddir þegar Rita
Eddom hitti mann sinn, Harry,
sem liggur á spítalanum eftir
einstæða hrakninga. Það
gerðistumkl. 11 árdegis. Eftir
nokkurtþóf leyfði sjúkrahús-
læknir loks að einn ljós-
myndari (frá Sun) fengi að
vera viðstaddur, en blaða-
menn frá öðrum frétta-
stofnunum dönsuðu stríðdans
umhverfis sjúkrahúsið.
Um 40 breskir fréttamenn
munu vera hér á landi vegna
þess máls. Horfa fæstir þeirra
í kostnað. Hafa þeir leigt
fjölda íslenskra flugvéla, sem
eru í sífelldum ferðum á milli
Isafjarðar og Reykjavíkur, oft
með áteknar filmur og ekki
annan flutning. Myndsendi-
tæki Landsímans eru í sífelldri
notkun og álag á talsímasam-
band við Bretland slíkt, að
biðtími er orðinn langur.
(Heimild: Öldin okkar
1961-1970)
Fréttapunktar
frá árinu 1968
* Aðfararnótt sunnudagsins 4. febrúar 1968 gekk mikið
ofsaveður yfir landið og urðu Vestfirðireinna mest fýrir
barðinu á hamtorunum. Tveir breskir togarar fórust 5
veðrinu auk vélbáts frá Bolungarvík. Menn á Vestfjörðum
voru á einu máli um, að þetta aftakaveður hafi vertð eitt
hið versta, sem þar hafði komið í manna minnum.
* Þórður Jónsson á Látrum lýsti veðurofsanum á eftir-
farandi hátt: „Um tvöleytið aðfararnótt sunnudagsins skall
hér á norðan fárvirði með frosti, snjókomu o'g ofsalegu
hafróti. Var þá sjáanlegt með hliðsjón af veðurspánni að
í uppsiglingu var annaðHalaveður. Hús nötruðu, allt fauk
sem fokið gat, og freðinn skarinn buldi á húsum einsog
nagladrífa.
* Vélbáturinn Ver, 36 tonna bátur, sém gerður var út frá
Btldudal, fékk á sig brotsjó 26. janúar, þar sem hann var
staddur tvær sjómtlur út af Kópanesi í Patreksfjarðarflóa.
Lagðist báturinn á hliðina, fylltist af sjó og sökk litlu
síðar, Fimm manna áhöfn var á bátnum, og tókst skip-
verjutn naumlega að bjarga sér í gúmbát áður en Ver sökk.
Hröktust skipverjar í gúmbátnum í fimm klukkustundir
eða allt þar til skipverjar á varðskipinu Albert sáu neyðar-
blys frá gúmbátnurri og björguðu þeir mönnunum skömmu
síðar.
* Gengi íslensku krónunnar var fellt um 35,2% gagnvart
erlendri mynt 11. nóvember. I greinargerð frá Seðlabanka
Islands sem fylgdi falli krónunnar sagði m.a. aó megin-
ástæðan fyrir gengisfellingunni hafi verið sú, aó tveimur
árum á undan hafi verið léleg aflabrögð, einkum á síld-
veiðum, auk þess sem fiskverð á erlendum mörkuðum
hafi farið lækkandi og þar með hafi útflutningsverðmæti
íslensks fisks lækkað um 45%.
* Þann 15. janúar 1968 greindu íslensk daghlöð frá
forsetakosningum þeim er fóru síðá'n fram um voríð. I
nýársávarpi sínu í sjónvarpinu hafði Ásgeir Ásgeirsson,
þáverandi forseti greint frá því að hann myndi ékki gefa
kost á sér til endurkjörs og komu þá fram hugmyndir um
hin ýmsu nöl'n varðandi eftirmann hans. Þar voru m.a.
nefndir þeir Gunnar Thoroddsen, Halldór Kilján Laxncs,
Hannibal Valdimarsson, Pétur Thorsteinsson og Kristján
Eldjárn sem hlaut embættið.
* Þann 26. maí 1968 tók hægri umferð gitdi á Islandi.
Var það samdóma álit allra sem að breytingunni unnu, að
hún hafði tekist með miklum ágæcúm. Fá umferðaróhöpp
urðu, enda þótt þúsundir Reykvíkinga sem og annarra
landsmanna, reyndu hæfni sína í umferðinni þegar fyrsta
daginn.
* Þann 30. júní var Dr. Kristján Eldjárn kjörinn forseti
íslands með miklum meirihluta atkvæða eða rúmlega
65% atkvæða. Mótframbjóðandi hans GunnarThoroddsen
hlaut 35% atkvæða.
* 25. mars 1968 hrapaði bandarísk hcrþota af Kclla-
víkurtlugvelli utan við Fellsmúla, en svo heitir suðurendi
Skarðsfjalls á Landi. Flugmaðurinn, scm var einn í vél-
inni, komst út úr henni í fallhlíf. í vélinni voru 24 flug-
skeyti sem ætluð voru til að granda óvinaflugvélum. 23
flugskeytanna fundust strax í námunda víð vélina en eitt
fannst ekki.
Gudmann Gudmundsson — “See you next time.”
Greetings
to young
lifesaver
A GRATEFUL trawler
wife sent a Christmas
greetings telegram to a
young lcelandic fisherman
in Grimsby yesterday.
It was a very special tele-
gram. For. two-and-a-half
years ago, he saved the life
of her husband — Harry
Eddom. the sole survivor of
the Hull trawler Ross Cleve-
land.
When the trawler sank in a
gale off Iceland's north-west
coast, Mr. Eddom managed to
scramble into a liferaft and
make for the shore.
He staggered. exhausted
and sufTering from frostbite.
up the heach to an old out-
house. There he was found
by Gudmann Gudmundsson.
then a 14-years-old shepherd
lad.
Gudmann. now a deckhand
in the trawler Gudrun.
managed to carry him back
to the fnrmhouse half a mile
awa.v where his mother ffave
him warm clothing and food.
Úrklippa lír bresku blaði
þar sem sagt er frá
kveðjunni sem Guðmann
fékk frá eiginkonu Harry
Eddom.
Togarinn Notts County á strandstað á Snœfíallaströnd.