Bæjarins besta - 17.03.1993, Qupperneq 12
Fljúgið með elsta starfandi
áætlunarflugfélagi
á íslandi.
FLUGFELAGID
ERNIRf
ÍSAFJARÐARFLUGVELLI
&4200 m 4688
&«$s$»sesttmsmfsi&s$i
TBYGCIWC HF |
Umboð: ^
Sjörn Hermannsson
Hafnarstræti 6, simi 3777
Skotmálið á Flateyri:
Dómur kveðinn
upp á mánudaginn
Á MÁNUDAGINN var
tekid til aðalmeðferðar í
Héraðsdómi Vestfjarða
skotmálið svokallaða á Flat-
eyri.
Það var aófararnótt áttunda
nóvcmbcr á síóastlióinn se m
maóur nokkur skaut úr hagla-
byssu á tvo menn á Flateyri.
Mál þetta var tekið til aðal-
meðferðar í Héraðsdómi
Vestfjarða á mánudaginn var.
Hinn ákærði var þar yfir-
heyrður og vitnaleiðslur fóru
fram. Þá flutti Ólafur Helgi
Kjartansson sýslumaður sókn
í málinu fyrir hönd ákæru-
valdsins og verjandi ákærða,
Helgi Birgisson héraðsdóms-
lögmaður, hélt varnarræðu
sína.
Málið var dómtekið og mun
héraðsdómari Vestfjarða, Jón-
as Jóhannsson, kveða upp dóm
næstkomandi mánudag, 22.
mars.
-hj.
Frá Suðureyri.
Hitaveita Suöureyrar:
Orkubúið tekur væntan-
lega við rekstrinum
EINS og áður hefur verið
greint frá í I?B hafa verið
þreifingar í gangi í þá átt að
Orkubú Vcstfjarða kaupi
Hitaveitu Suðurcyrar. Orku-
bússtjórinn segir að það
kæmi sér ekki á óvart þó
gengið yrði frá kaupunum
fljótlcga.
„Þetta mál er allt í gaumgæfi-
legri skoðun og það kæmi mér
ekki á óvart að það myndi
ganga í gegn nú fyrri part þessa
árs og við tækjum þá við
rekstri Hitaveitu Suðureyrar,”
sagði Kristján Haraldsson
orkubússtjóri í samtali við BB.
-hj.
Svokallað „Skíðakolaport” verður haldið um borð Fagranesinu á sunnudaginn.
ísafjörður:
„Skíðakolaport“ um
borð í Fagranesinu
NÆSTKOMANDI sunnu-
dag fer fram svolítið óvenju-
leg sala um borð í djúp-
bátnum Fagranesi sem liggja
mun við bryggju á Isafirði.
Salan mun verða í líkingu
við Kolaportssöluna í
Reykjavík og hefur aðstand-
andi sölunnar á Isafirði,
Skíðafélag Isafjarðar á-
kveðið að kalla söluna
„Skíðakolaport”.
Á „Skíðakolaportinu” munu
16-18 verslanir á Isafirði selja
vörur sínar auk þess sem
einstaklingum verður gefinn
kostur á að setja upp sölubás,
þar sem þeir geta selt ýmislegt
úr bílskúrnum eða geymslunni
gegn 5.000 króna gjaldi fyrir
básinn. Þá verður kynning á
snakki og gosi auk þess sem
Mjólkursamlag Isfirðinga mun
verða með kynningu á ein-
hverjum hollum rétti. Þá verða
ýmiskonar uppákomur sem
kynntar verða á staðnum.
Skíðafélag Isafjarðar verð-
ur með kaffisölu í matsal
skipsins og rennur allur ágóði
af sölunni auk básagjaldsins til
Skíðafélagsins. Að sögn for-
svarsmanna „Skíðakolaports-
ins” verður einungis um þessa
einu sölu að ræða í vetur og
vilja þeir því hvetja Isfirðinga
til að líta við um borð í Fagra-
nesinu á sunnudaginn. „Skíða-
kolaportið” mun standa frá kl.
14-18.og skal þeim, sem
áhuga hafa á að setja upp sölu-
bás, bent á að hafa samband
sem fyrst við Kristínu Karls-
dóttur í síma 3983 eða Vigdísi
Ársælsdóttur í síma 4121. _
ísafjörður:
Vöruval í Hnífsdal?
BENEDIKT Kristjánsson í
Vöruvali á Isafirði segir að vel
komi til álita að hann opni verslun
í Hnífsdal á næstunni en segir þó
enn of snemmt að segja hvenær
og hvort af því gæti orðið.
Verslunin Búð í Hnífsdal hefur
hætt rekstri eins og kunnugt er og í
kjölfarió hafa vaknaó spurningar
um það hvort Hnífsdælingar yrðu
án verslunar um lengri tíma.
„Eg hef ekki neitað því að
skoóa það mál. En fyrst þarf ýmis-
legt að liggja fyrir varóandi hús-
næðið - hver eignast það og þess
háttar. Við opnum auðvitað ekki
verslun þarna á götunni,” sagði
Benedikt kaupmaður í Vöruvali.
„Eg sé í sjálfu sér ekkert sem
mælir á móti því að opna þarna
búð og það breytir í rauninni engu
þó ég hafi hluta af lagernum úti í
Hnífsdal. Vandamálið er húsnæð-
ið. Það er ekki komið í ljós hvað
verður um húsnæði Búóar og fyrr
en það skýrist getum við ekki tekið
ákvörðun um framhaldið,” sagði
Benedikt ennfremur. l:
Isafjörður:
Isafjörður:
RÉTT fyrir miðnætti á
þriöjudag í síðustu viku
fékk lögreglan á ísafirði til-
kynningu uin óvenjulegar
mannaferðir t frystiklefa
Hraðfrystihússins hf. í
Hnífsdal, cn klefinn stendur
á hafnarsvæðinu á ísafirði.
Við nánari eftirgrennslan
kom í ljós að þar voru á ferð
sjö krakkar á aldrinum 10-14
ára sem gerðu sér það aó
lcik að aka tveimur lyfturum
fyrirtækisins um klefann.
Ekki tókst aksturinn betur en
svo að krakkanir náðu að
skemma tvö plastkör sem þar
voru auk þess sem milli-
veggur skekktist eftir að þau
höfðu ekið á hann nokkrum
sinnum. Þá urðu ýmsar
smærri skemmdir á hús-
næðinu.
Mikil verðmæti eru í hús-
inu sem mun hafa staðið
opið og hefði því hver sem
er getað farið þar inn, stolið
fiski og ekið honum í burtu á
lyftara.
-s.
Innbrot og hraðakstur
Á FÖSTUDAG í síðustu
viku fékk lögreglan á ísa-
firði tilkynningu um að
farið hefði verið inn í hús
við Hlíðarveg á ísafirði
og vídeóupptökuvél með
fæti var stolið. Fóturinn
fannst stuttu síðar í Tún-
götu en málið er óupplýst.
I síðustu viku voru fjöl-
margir ökumenn á ísatírði
stöðvaðir vegna hraðakst-
urs en auðar götur voru í og
við bæinn mestan part
vikunnar. Éru hér komin
fyrstu merkin um vorkomuna
og h vetur lögreglan ökumenn
til að virða reglur um há-
markshraða, jafnvel þótt
götur séu auðar og sól skíni
í heiði.
■ -s.
ÓHÁÐ
FRÉTTABLAÐ
Á ’ ■
VESTFJÖRÐUM
isafjörður:
Fótbrotnaði
á dansleik
MIKIL ölvun var á Isa-
firði um síðustu helgi og
var aðfararnótt sunnu-
dagsins ein sú crilsamasta
hjá lögreglunni í langan
tíma.
Aófararnótt föstudagsins
var fremur róleg en þó barst
lögreglunni ein tilkynning
um líkamsárás. Klukkan
21.20 á laugardagskvöld var
lögreglan kölluö í heima-
hús á Isafirði vegna
heimiliserja og var málið
leyst á staðnum.
Klukkan 02.21 var lög-
reglan kvödd að veitinga-
húsinu Sjallanum þar sem
mikil slagsmál stóðu yfir.
Mennirnir sem þar áttu hlut
að máli voru skildir að og
var annar þeirra fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á ísa-
firói þar sem hann var
rannsakaður en blóð lagði
úr hægri hlust mannsins.
Hann fékk að fara til síns
heima að lokinni skoðun.
Klukkutíma síðar var lög-
reglan aftur kötluð í Sjallann
er þar hafði kona ein fallió
í stiga. Hún reyndist vera
fótbrotin og var flutt á
Fjórðungssjúkrahúsið á Isa-
firði. -s.
ísafjörður:
Féll í stiga
Á FIMMTA tímanum
aðfararnótt síðastiiðins
sunnudags var lögreglan á
Ísafirði kölluð að
fjölbýlishúsi á ísafirði þar
sem maður hafði fallið í
stiga og var talinn mikið
slasaður.
Sjúkrabifreið var kölluð
til og var maðurinn fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á
Isafirði. Meiósli hans
reyndust minni en ætlað var
í fyrstu. Til viðbótar útkalli
þessu var lögreglan fimm
sinnum kölluð í fjölbýlishús
víðsvcgar um ísafjörð og
var í öllum tilfellum unr
kvartanir vegna hávaða að
ræða. _
RITSTJÓRN Q 4560 ■ FAX ® 4564 - AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT TT 4570