Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.07.1993, Blaðsíða 9

Bæjarins besta - 28.07.1993, Blaðsíða 9
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 28. júlí 1993 9 ARNAR G. HINRIKSSON Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími 4144 FASTEIGNAVIÐSKIPTI Athugið! Skrifstofan verðurlokuð til 10. ágúst vegna sumarleyfa. Flateyri. Göngugarparnir munu heíja ferðina á Flateyri á föstudaginn og ljúka henni í Súðavík á mánudaginn. Vestfirðir: Göngugarpar ganga á milli byggða NÆSTKOMANDI fósfu- dag mun gönguklúbburinn Göngugarpar efna til göngu- ferðar milli byggða á Vest- fjörðum og mun gangan standa í fjóra daga eða til 2. ágúst. Safnast verður saman á Flat- eyri á föstudaginn og gengið þaöan um Klofningsheiði til Suðureyrar þar sem gist verð- ur um nóttina. A laugardag verður farið á báti yfir Súg- andafjörð að Selárdal og gengin Grárófa y fir í Tungudal og til Bolungarvíkur þar sem gist verður í Gestahúsinu. Á sunnudag er áætlað að ganga inn Syðridal, yfir Heiðnafjall til Hnífsdals og þaðan til Isa- fjarðar. Einnig er hægt að fara yfir í Seljadal en það mun vera erfiðari leið. Það mun fara eftir ferðalöngum og veðri hvor leiðin verður farin og verður ákveðið þegar þar að kemur. Þegartil Isafjarðarer komið verður Iagst til hvílu í Föndur- loftinu og á mánudag verður ekið út á Arnarnes og þaðan gengið inn Arnardal og yfir í Sauradal og þaðan til Súða- víkur. Þaðan verður þátt- takendum ekið til Isafjarðar. Þeir sem vilja geta farið með rútu til Suðureyrar um kvöldið ef þeir hafa skilið bílinn eftir þar, eða flogið suður um kvöldið, eða gist á Föndur- loftinu. Þátttökukostnaður er áætlaður um 7.500 krónur fyrir manninn og er þá gert ráð fyrir ódýrustu gistingu sem völ er á. Innifalin er svefnpokagisting í þrjár nætur, akstur til og frá flugvelli og akstur á farangri á milli.staða, bátsferð yfir Súg- andafjörð, akstur frá ísafirði út á Amarnes og frá Súðavík til Isafjarðar sem og farar- stjórn. Þeir sem hafa áhuga á að fara í ferðina þurfa að tilkynna þátttöku til Sólveigar á ísa- firði í síma 3845, Steinunnar í síma 91-76171, Ingibjargar í síma 91-10959 og í verslunina Akademíu í Reykjavík en þar er síminn 91-14111. ^ Stefánsgangan ..../.. GONGUGARPURINN aldni Stefán Jasonarson, ung- mennafélagi og fyrrum bóndi í Vorsabæ í Flóa hefur undanfarnar tvær vikur verið á göngu um landið til að minnast árs aldraða í Evrópu og þegar þessar línur eru ritaðar á mánudegi hefur hann lagt að baki 208 kíló- metra af 500 sem hann hyggst ganga. Stefán mun koma til Vestfjarða í næstu viku og áætlar hann að vera á Hólmavík kl. 18 fimmtudaginn 5. ágúst. A sama tíma daginn eftir kemur hann til Isafjarðar og mun móttökunefnd taka á móti honum við Brúarnesti og ganga með honum að Dyalarheimilinu Hlíf þar sem hann mun gista um nóttina. Laugardaginn 7. ágúst mun Stefán siðan ganga til Bolungarvíkur og áætlaráð vera þar um kl. 13. Ástæða er til að hvetja bæjarbúa til aö taka vel á móti þcssum 79 ára gamla göngugarpi og ganga mcð honum frá Brúamestiog í bæinn. Sérstaklegaeru eldri borgararbæjarins hvattir til að ganga síðustu metrana með Stefáni. Stefán erlandskunnur maður og hefur víða komið við. Einkum er hann kunnur l'yrir afskipti sín af félagsmálum og hefur veriö manna gjafmildastur á frístundir sínar. Stefán hefur einnig látið til sín taka á sviði atvinnulífsins Og hefur skilað þardrjúgu verki. Stefánsgangan hefur verið alllengi í undirbúningi en hún hófst á Selfossi þann 14. júlí síðast- liðinn og lýkur í Reykjavík 19. ágúst og mun þá tengjast opnunarhátíð „Gym i Norden” sem er samnorræn hátíð fólks sem er sextíu ára og eldra. íslandsmótið 2, deild Leikur kvöldsins i 2. deild karla kl. 20:00 í kvöld á Torfnesvelli júlí og Kristinn Sævar Jó- hannsson fckk 14 punda lax í Stórabug 22. júlí. Laxveiði á Nauteyri Fyrir stuttu útbjuggu eig- endur fiskeldisstöðvarinnar á Nautcyri í Kristinn Saevar Jóhannsson bítur veiðiuggann af 14 punda Maríulaxi sínum á fímmtudaginn var. ásamt þeim Reyni Stefánssyni í Hafnardal og Snævari Guð- mundssyni á Melgraseyri, uppistöðulón við fiskeldis- stöðina þar sem laxi, regn- bogasilungi og bleikju hefur verið sleppt. Fiskamir eru af öllum stærðum og allt upp S 10 pund og mun ferðamönn- um gefast tækifæri til að renna í lónið. þar um að ræða hæng sem fékkst í Brúarfljótinu." Sigurjón sagði að enn væri mikið vatn í ánni og reiknaði hann með að áin ætti enn langt í land með að vera það sem teldist eólileg. Hann sagði ennfremur að fjórir laxar hefðu veiðst í vatninu til þessa og þrír í fremri ánni. Þar fékkst 14 punda lax á ánni en hér er um að ræða tvo helstu veiðistaði í ánni til margra ára en ekkert hefur veiðst í Blámýrafljótinu á þessúári ógáðeinstveif fiskar úr Dagmálafljótinu. Sigurjón á Hrafnabjörgum biður alla þá veiðimenn sem eru við veiðar í ánni að láta sig vita verði þeir varir við mink eða eitthvað annað óeðlilegt. 125 laxar komnir á land í Laugadalsá „Þaó vorúkomnir 125 laxar á land i gær og sá stærsti er 20 pund,” sagði Sigurjón Sam- uelsson veiðivörður á Hrafnabjörgum er blaðið sló á þráðinn til hans í gær, þriðjudag. „Hollið sem er í ánni núna var komið með átta laxa á miðju veiðitíma- bili en þar á undan komu 16 laxar. Hollið þar á undan var mcð 9 laxa og þar á undan var stærsta hollið ti 1 þessa en það veiddi 18 laxa og var hann 20 pund sá stærsti. Hann fékk Árni Jón Baldursson og var mánudag og var veiðimað- urinn kona frá Patreksfirði. 334 laxar voru komnir upp fyrir teljarann í ánni í gær. Fimm rninkar drepnir við Laugadalsá Fyrir stuttu drap meindýra- eyðirinn Hjalti Guðröðarson fimm minka við Laugardalsá í ísafjarðardjúpi. Karlmink- urinn var drepinn við Blá- mýrafljótið og læðan ásamt þremur hvolpum var voru drepin við Dagmálafljótið. Telja margir veíðimenn þama vera komna skýringuna á því af hverju laxinn veiðist svo illa á þessum veiðistöð í Kristján og félagar með stærsta fískinn Síðastliðinn laugardag voru komnir 44 laxar á land í Langadalsá við ísafjarðar- djúp sem er 37 löxum færra en á sama tíma í fyrra. Síðast þegar við sögðum frcttir af ánni voru 12 laxar komnir á land. Eftirþað tók veiðin kipp en nokkuð hefur dregiö úr veiði aftur. Veiðimenn sem hættu veiði í ánni á laugardag fengu 8 laxa og hollið þar á undan 9 laxa, hollið þar á undan 6 og þat* á undan 8. Stærsti laxinn til þessa úr ánni er 15 pundog fékkst hann í Homvík 12. júlí síöast- liðinn. Laxinn er skráður á Kristján Haraldsson, orkubús- stjóra og félaga en þeir fengu cinnig 14 punda lax í Kvísla- fljóti daginn eftir. Þrír aðrir 14 pundarar hafa einnig kom- ið ár land úr ánni og voru veiðimennirnir þeir bræður Þorleifur og ÞórðurPálssynir og Kristinn Sævar Jóhanns- son frá Reykjavík. Þrír með Maríulaxa Þrír veiðimenn hafa fengið Maríulaxa sína það sem af er sumri í Langadalsá. Þeir eru Þröstur Hjartarson sem fékk 5 punda lax 20. júlí, Magnús Jónsson sem fékk 5 punda 19.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.