Bæjarins besta - 28.07.1993, Blaðsíða 10
10
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 28. júlí 1993
Ketill
Helga
BRYNJA Guðmunds-
dóttir spaugari síðustu
viku skoraði á Ketil Helga-
son, fiskverkanda í Djúp-
fangi hf. í Bolungarvík að
segja frá að þessu sinni og
hér kemur sagan hans:
Einu sinni var verið að
pakka skreið hjá Magnúsi
Snorrasyni fiskverkanda og
útgerðarmanni í Bolung-
arvík. Hafði hann verkað
töluvert af skreið um vorið
og lá mikið við að pakka
henni því skipið var aó
koma til að taka hana. Hafði
hann safnað saman á bilinu
30-40 manns til að verkið
tæki sem skemmstan tíma.
Þar á meðal var Arnþór
Magnússon sonur hans og
var honum falið það verk
að stjórna skreiðarpress-
unni. Þar sem Magnús geng-
ur um húsið og aðgætir
hvort allt gangi ekki snuðru-
laust fyrir sig, sér hann sér
til mikillar gremju að mynd-
ast hefur stór haugur af
ópressaðri skreið fyrir
framan pressuna. Veróur
honum þá litið upp á press-
una og sér sér til mikillar
undrunar að drengurinn er
horfinn. Kallar hann þá á
hann af öllum lífs- og sálar-
kröftum og viti menn. Stend-
ur þá ekki Arnþór Magnús-
son í dyrunum með fullan
kassa af Coca Cola og annan
kassa fullan af Prins póló og
býður mannskapnum aó fá
sérhressingu. Setjast nú allir
niður í pásu. Eftir dágóða
stund stendur Magnús upp
og segir „Jæja, best aö halda
áfram Amþór minn, þakka
þér kærlega fyrir þessar
höfðinglegu veitingar.“
Snýr þá Arnþór sér snöggt
að honum og segir „Sömu-
leiðis pabbi minn, ég lét
skrifa þetta hjá þér.“
Eg skora á Sigmund Þor-
kelsson, hestabónda og
harðfiskverkanda í Bolung-
arvík.
Súðavík:
Bessi með
190 tonn af
þorski
Bessinn kom til heima-
hafnar sinnar í Súðavík á
laugardaginn með 190 tonn
af þorski sem fór allur til
vinnslu hjá Frosta hf.
A fimmtudag í síðustu
viku kom Sighvatur
Bjamason inn með 4 tonn
af rækju og rifið troll en
skipið var þar á undan í
landi á mánudegi. Valur
kom sama dag með 5,8 tonn
af þorski og Orri kom á
fóstudag með 15,5 tonn af
rækju. I gær þriðjudag
landaði síðan Kofri 18
tonnum af rækju.
ísafjörður:
Stefnir
með 160
tonn af
þorski og
ufsa
Sex rækjuskip hafa
landað á Isafirði síðast-
liðna viku til dagsins í
gær. Guðmundur Pét-
urs landaði á fimmtudag
í síðustu viku 24 tonn-
um, Gísli Júl landaði 5
tonnum á föstudag og
fór svo í slipp og Haf-
berg landaði 18 tonnum
á mánudag.
Daginn eftir landaói Auð-
unn 13 tonnum, Sæfellið 7
tonnum og Víkurbergið 28
tonnum. Rússneskt skip
kom til ísafjarðar á laugar-
dag og var hafist handa við
að skipa upp úr því 160
tonnum af frystri rækju á
mánudag. Rækjan fer öll
til vinnslu hjá Rit hf. Guð-
bjartur landaði 120 tonn-
um af blönduóum afla á
fóstudag og Guöbjörg IS
landaði sama dag 145 tonn-
um af þorski.
Júlíus Geirmundsson
kom síðan á laugardag með
150 tonn af frosnum fiski
sem svarar til 167,5 tonna
upp úr sjó. Aflaverðmæti
túrsins var 36-37 milljónir
króna. Sama dag landaði
Stefnir 160 tonnum af
þorski og ufsa og Páll Páls-
son landaói 140 tonnum af
þorski á mánudag.
Heiðrún hefur verið frá veiðum í tíu daga vegna bilunar í spilrafal og Dagrúnu seinkaði í slipp í
Reykjavík vegna bilunar í vél.
„Heiðrún hefur veriö biluð nú í tíu daga. Það fór spilrafall en hann er kominn á staðinn og ég geri ráð fyrir
að hún fari aftur á veiðar á fimmtudag eða fóstudag,” sagði Björgvin Bjarnason, framkvæmdasfjóri Osvarar
í samtali við blaðið.
„Dagrún átti að fara í slipp á mánudag en þá kom í ljós að það virtist vera vatn á gírnum. Þegar farið var að
skoða það mál betur kom í ljós að nokkrar legur voru brotnar og því var ákveðið að skipta um þær svo þær
skemmdu ekki út frá sér. Dagrún mun því fara í slipp strax eftir verslunarmannhelgi og þá eru svona tvær
vikur í að skipið geti haldið á veiðar. Sami skipstjóri verður á skipinu, Víóir Jónsson og gert er ráð fyrir aö
sama áhöfn veröi á skipinu að mestu leyti.
„Af þessu afgreiddu er eini óvissuþátturinn hjá okkur, kaupin á frystihúsinu en þau mál munu skýrast nú
í vikunni. Við mióum okkar áætlanir við aö ná kaupum á því en ef það gerist ekki þá endurskoðun við okkar
áætlanir snarlega. Þær hafa allar gengið út á það að skipin fiski fyrir þetta frystihús og ef við fáum það ekki
verðum við aó endurskoða okkar áætlanir.”
-Ertu vongóður um að fá frystihúsið?
„Ég er hóflega bjartsýnn á þaó. Það er aldrei neitt öruggt í þessu. Það var til dæmis mjög óvænt að
samkeppnin skyldi koma innanfrá. Við vissum þaö þegar við vorum að reyna að kaupa þessi skip að við værum
í bullandi samkeppni vió aöra landshluta en við héldum að vió værum einir um þetta en það reyndist ekki vera.
Vió látum það samt ekki raska okkar áætlunum,” sagði Björgvin í samtali við blaðið.
Bolungarvík:
Loðnan
komin til
Bolungarvíkur
Eing og kemur fram
annars staðar í blaðinu
er loðnan komin til Bol-
ungarvíkur. Höfrungur
AK hefur landað þrisvar
á einni viku samtals
1,726,3 tonnum sem fóru
til bræðslu á fiskimjöls-
verksmiðju Einars Guð-
finnssonar hf.
Línubátar staðarins
komu meó alls 7 tonn að
landi í síðustu viku og var
Guðný þeirra aflahæst með
4.8 tonn í þremur róðrum.
Dragnótarbátarnir lönd-
uðu alls 25,1 tonni og var
Páll Helgi aflahæstur með
9.8 tonn í fimm róðrum.
Færabátarnir lönduðu
117.2 tonnum og vpru þrír
efstu bátarnir þeir Iris með
8.2 tonn í þremur róðrum,
Þjóðólfur með 6,8 tonn í tv
róðrum og Haukur sem
kom með 6,4 tonn úr einum
róóri. Flosi landaði 15,2
tonnum af rækju og Gunn-
björn 6,4 tonnum.
Þingeyri:
Sléttanesid komid með 17 milljóna
króna aflaverðmæti
Engar fréttir fengust af smábátum á Þingeyri þessa vikuna en Fram-
nesið landaði 21. júlí síðastliðinn 84 tonnum af karfa og ufsa. Skipið er
enn á veiðum.
Sléttanesið er einnig á veiðum og er væntanlegt til lands í lok næstu viku. Þar
er á veiðum á Hampiðjutorginu svokallaða og var komió með aflaverómæti uppá
17. milljónir króna á mánudag að sögn útgerðarmanns skipsins.