Bæjarins besta - 29.09.1993, Blaðsíða 5
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 29. september 1993
5
ísafjörður:
Hamraborg í
aldarfjórðung
VERSLUNIN Hamraborg
hf. fagnar tuttugasta og
fimmta aldursári sínu á
morgun, fimmtudag. Af því
tilefni býður verslunin
gestum sínum til afmælis-
veislu milli klukkan þrjú og
sjö. I boði verða hinar frægu
Hamraborgarsamlokur og
pepsí ásamt íspinna í eftir-
rétt.
I framhaldi af afmælinu mun
sjoppan breyta um stíl, ýmis
vikuleg tilboð verða í gangi á
næstu mánuðum sem felast í
mjög hagstæðu vöruverði
ákveðinnar vöru í viðkomandi
viku. Einnig verða gefnir á
komandi haustdögum sérstakir
burðarpokar fyrir vörumar.
BB sló á þráðinn til Úlfars
Agústssonar, framkvæmda-
stjóra og einn eigenda Hamra-
borgarog spurði hann um sögu
verslunarinnar.
„Húsið er byggt árið 1963
og fyrsta starfsemin var rekstur
veitingahúss, Eyrarvers, í eigu
Gunnlaugs Guðmundssonarog
fjölskyldu hans, fram til vors
1968.
Þann 30. september það ár
stofnuðu fimm Isfirðingar
verslunina Hamraborg á Isa-
firði. Hvatamaður að stofn-
uninni var Sigurður Sv. Guð-
mundsson frá Hnífsdal sem nú
býr í Hlíf en nafnið, Hamra-
borg, er einmitt komið frá
honum. Meó honum var sonur
hans, Heiðar Sigurðsson sem
nú rekur Húsgagnaloftið í
Ljóninu, Hörður Arnason
mágur minn sem nú býr í
Hafnarfirði, Guðjón Sig-
tryggsson sonur Sigtryggs
Jörundssonar og ég,” sagði
Úlfar Agústsson.
„Við keyptum vörubirgðir
verslunar JónsÖ. Bárðarsonar
kaupmanns sem þá var til
staðar í núverandi húsnæði
Topphárs að Aðalstræti. Þar
var Hamraborg starfrækt fyrsta
hálfa mánuðinn, eða þar til
okkur tókst að semja við
Agúst heitinn Leósson skó-
kaupmann um húsnæðið að
Hafnarstræti sjö.”
Með tímanum týndust hluta-
eigendur úr og árið 1971 voru
þeir Úlfar og Heiðar aðeins
tveir eftir með reksturinn og
starfræktu þeir Hamraborg á
þremur stöðum. Fyrir utan
núverandi staðsetningu að
Hafnarstræti 7, þá var eitt úti-
bú að Túngötu 21 og annað í
Hnífsdal þar sem Vöruval er
nú til húsa. „Við vorum líka
með kjötvinnslu á þeim tíma,
að Hrannargötu 2 sem við
keyptum af Agústi Péturssyni.
Heiðar sá um útibúið í Hnífs-
dal og kjötvinnsluna, og ég sá
um verslunina í Hafnarstrætinu
og í Túngötunni. Síðan keypti
Stefán Dan Óskarsson, þá-
verandi deildarstjóri Túngötu-
búðarinnar, útibúið sjálft og
rak það til nokkurra ára.
Hamraborg í Hafnarstræti er
því eini hluti fyrirtækisins sem
starfað hefur óslitið í þessi
tuttugu og fimm ár.“
Elsta sjoppan í
bænum
„Eiginlegar sjoppur fyrir
tíma Hamraborgar voru veit-
ingahús. Þær voru lengi vel
bannaðar á Isafirði og fyrir
1960 var aðeins lúgusala
leyfð. Það voru því engar
sjoppur í því formi sem við
þekkjum í dag.
Upphaflega var Hamraborg
kjörbúð og hún var á öllu því
gólfi sem sjoppan, lagerinn og
skrifstofan er á í dag. Verslunin
var starfrækt í kjörbúðarformi
til ársins 1975 og við byrj-
uðum að hafa einn hornhluta
búðarinnar opinn á kvöldin.
Þá giltu miklu strangari reglur
um opnunartíma verslana og
smá saman færðum við búð-
ina í það form sem hún er í í
dag. Árið 1980 létum við
hanna og teikna nýtt útlit
sjoppunnar og gengum frá því
sama ár. Sú innrétting hefur
haldist síðan,” sagði Úlfar
Ágústsson að lokum.
-hþ.
Bolungarvík: °
Báðir aðilar munu
flýta sér hægt
- segir Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík um
hugsanlega sameiningu eða samvinnu Ósvarar og Þuríðar
Á ÞRIÐJUDAG í síðustu
viku samþykkti bæjarstjórn
Bolungarvíkur að fela odd-
vitum listanna þriggja sem
skipa bæjarstjórn Bolungar-
víkur, að ræða við forsvars-
menn Þuríðar hf., um hugs-
anlega sameiningu eða sam-
vinnu fyrirtækjanna Ós-
varar hf., og Þuríðar hf.
Ólafur Kristjánsson, bæjar-
stjóri í Bolungarvík sagði í
samtali við blaðið að haldnir
hefóu verið þrír fundir með
Þuríðarmönnum, þar sem
farið hefði verið yfir stöðu
mála almennt sem og einstök
atriði hjá Þuríði hf. „Þessar
viðræður hafa verið mjög
góðar. Menn hafa skipst á upp-
lýsingum og metið stöóuna út
frá hagsmunum byggðarlags-
ins. Þessar viðræður hafa
verió mjög hreinskiptar og við
vonumst til að geta lagt á-
kveðnar tillögur fyrir bæjar-
stjórn fyrir vikulokin.”
En er Ólafur bjartsýnn á að
samningar náist um sam-
einingu eða samvinnu?
„Ég er alltaf bjartsýnn, en
alltaf kemur eitthvað óvænt
fram. Þessum viðræðum hefur
verið vel tekið og eflaust
eigum við eftir að kljást um
einhver ákveðin atriði og það
er ljóst að báðir aðilar munu
flýta sér hægt. Ég er allavega
bjartsýnn á að menn skilji í
vinsemd, hvemig svo sem fer.
Ég hef sagt það áður að við
Bolvíkingar sitjum á dín-
amítsprengju og verðum því
að gæta okkar í orðum og
athöfnum,” sagði Ólafur. _s
Gegn fmmvísun þessa miða veitist handhafa hans
imm/i
i
afsláttur aföllum
vörum verslunarinnar
L _
Gildir til 6. október 1993
Hafnarstrœti 11, ísafirði, sími 4722
Gegn framvísun þessa miða veitist handhafa hans
I
með200 kr. afslœtti
L
J—
Gildir til 6. október 1993
Sjomannastöfan
Hafnarhúsinu, ísafirði, sími 3812
Gegnframvísun þessa miða veitisthandhaffi hans
Gildirtil 10. október!993
Olíufélag Utvegsmamiwhf
Hafnarhúsinu, ísafirði, sími 3245
rL
1% afsláttur afTEFM RESISTM
hvílum potturn og pónnum frá TEFAL. Pbttamir eru úr áli og hút
að intum með ffórum lögum afPFTE-húð sem tryggir að matur
brennur ekki við. Botninn er alsettur hár- m ÆÆ Æ M/ J
fínum trefjum sem sjá utn jafna hitadreifingu
siíaumur
Silfurgötu 5, ísafirði, sími3321
Gildir til 6. október 1993
Gegn framvísun þessa miða veitist handhafa hans
I ________ BLOMABUÐISAFJARÐAR
Aðalstrœti 26, ísafirði, sími 4134
I
Gegn framgísun þessa miða veitist handhafa ^ans
Gildir til 6. október 1993
afsláttur af samloku
með skinku og ósti,
og litlu Prince Polo
Bílasjoppan KrMð
Sindragötu 6, ísafirði, sími 3556