Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.09.1993, Qupperneq 7

Bæjarins besta - 29.09.1993, Qupperneq 7
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 29. september 1993 7 bær hefur notast við og reynst mjög vel. Það felst meðal annars í náinni samvinnu skóla og félagsmióstöðva, eins og í ýmsum námskeiðs- höldum, til dæmis í heimilis- störfum, saumaskap,allskonar listrænum hlutum. Einnig felst það í að samtengja starfið við önnur sveitarfélög. Ég er eini íþrótta- og æsku- lýðsfulltrúinn á Vest- fjörðum og hef því reynt að aðstoða þá sem vinna að þessum málum í nágranna sveitarfélögunum. Ég held haustfundi með sex þessara sveitarfélaga og samvinnan hefur eflst mjög undanfarin ár. Nefna má sem dæmi æsku- lýðshátíóina Líf og fjör sem haldin hefur verið frá árinu 1985. Þar sem þessi samvinna hefur gengið svo vel, þá hafa enn fleiri bæjarfélög annars staðar af landinu tekió upp þetta form af Vestfirðingum. Svo þegar jarðgöngin verða komin verður enn auðveldara að efna til íþróttamóta milli nágranna bæjanna en ella. Ef af sameiningunni verður, þá má segja að nýja íþróttahúsið á Torfnesi verði einskonar Fjórðungsíþróttahús, það mun sinna hlutverki aðalíþróttahúss fjórðungsins. Þá er ég með keppni en ekki æfingar í huga.” Komið til móts við fatlaða Nýja íþróttahúsið er hannað sem fjölnotahús með tónleika- og sýningahald í huga. Nokkrar fyrirspurnir og tilboð hafa borist Birni af því tilefni og segir hann marga kosti og möguleika hússins eiga enn eftir að koma fram sem for- ráðamenn geri sér ekki grein fyrir enn í dag. Eitt af því sem dottið hefur nær upp fyrir í umfjöllun fjöl- miðla um íþróttahúsið er að- staða þroskaheftra og hreyfi- hamlaðra til íþróttaiðkana. íþróttahúsið á Torfnesi er fyrsta nýja íþróttahúsið á Is- landi með merktum löggildum bocciavelli og hafa bæjaryfir- völd fengið mikið hrós fyrir þaó frá Sambandi lamaðra og fatlaðra. 011 æfingaaðstaða í húsinu er hönnuð með tilliti til íþróttaiðkunar fatlaðra og segir Björn mikilvægt að öllu íþróttafólki sé gert jafn hátt undir höfði, hvort sem um hreyfihamlaða eða aðra sé að ræða. Hvenær fá ísfirðingar sundhöll? Gamla íþróttahúsið var tekið í gagnið 1951 og síðan þá hefur sundiðkun skipað stóran sess í íþróttalífi bæjarins. Sundkennslan hefur verið mikið meiri en á mörgum stöðum landsins. Til dæmis voru í Reykjavík, á sínum tíma, aðeins haldin sundnámskeið og fékk hvert skólabarn ekki eins marga sundtíma og jafn- aldri þess á Isafirði. „Sund- kennsla á Isafirði hefur alltaf verið í mjög góðu ástandi og hreint til fyrirmyndar. Hvað íþróttahúsið varðar, þá ríktu önnur sjónarmið og aðrar reglur í opnunartímum. Engin starfsemi fór fram á kvöldin, það þekktist ekki að æfa hand- bolta inni, hvað þá að skíða- menn væru í þrekæfingum eða fleira sem gert er í dag. Það var ekki fyrr en Gísli heitinn Kristjánsson sundhallarstjóri tók við rekstri hússins að farið var að æfa á kvöldin og snemma á sjöunda áratugnum urðu miklar skipulagsbreyt- ingar og allar framkvæmdir markvissari í málum íþrótta- hússins.” Nú er komið nýtt íþróttahús og allir unnendur innanhúss- íþrótta geta vel við unað - eða hvað? Það er ljóst að það tekur sinn tíma að borga íþróttahúsió og margir spyrja sig; hvenær fá Isfirðingar þá sundhöll? „Ég get að sjálfsögðu ekki svarað þeirri spurningu ná- kvæmlega en talað hefur verið um að næsta stórverkefni verði að byggja sundhöll. En því miður get ég bara ekkert sagttil um.hverafstaðabæjar- yfirvalda og íþróttahreyf- ingarinnar verður til byggingar sundhallar á næstu árum. íþróttahúsið á Torfnesi er hannað og smíðað með úti- sundlaug í huga fyrir innan húsið og samkvæmt til- mælum bæjaryfirvalda var baðklefunum breytt á teikni- borðinu þannig að gert er ráð fyrir að samnýta klefa sund- laugargesta og þeirra sem nota íþróttasalinn,” sagði Bjöm. 150.000 komur í íþrottahusið árlega Nú er nýtt íþróttahús ís- firðinga orðið að veruleika, byggingarsagan sem spannar fjórtán ár nálgast óðum sögu- lok og maður spyr sig; er íþrótta- og æskulýðsfulltrúinn þá orðinn verkefnalaus? „Nei, hann er sko ekki verk- efnalaus. Það er eitt að standa í byggingu íþróttahúss og annað að reka þaö. Bæjar- yfirvöld hafa ákveðiö að ég veröi rekstrarstjóri hússins, jafnframt því að sinna mínu fyrra starfi, svo að þaó er ekki hægt að segja að vinnan komi til meðað minnkaþó að húsa- smíðin sé yfirstaðin - síður en svo, starf mitt er orðið enn stærra og viðameira en áður. Það er heilmikið verk að halda utan um alla þá st sem fram fer í svona húsi. Ég tók það lauslega saman um daginn hve margir munu nota húsið árlega og ef öll skipti notenda eru meðtalin, skólanemenda og íþróttamanna, jafngildir það hundrað og fimmtíu þúsund komum í íþróttahúsið á Torfnesi á ári. Tilkoma íþróttahússins á eftir að hafa gífurlega breyt- ingu í för með sér þó að við merkjum hana ekki strax á einni helgi. Þegar horft verður um öxl, þá munum við sjá að þama urðu kaflaskipti í sögu Isa- fjarðar - ekki bara h vað varðar afreksverk íþróttamanna okkar í framtíðinni, heldur líka í bæjarlífi okkar Isfirðinga.” Texti: Hermann Snorrason. Myndir: Halldór Sveinbjöns- son. Starfsmaður Hlíðarslqól Starfsmaður óskast tií afleysinga á Mðarskjóli.Umeraðræða60%vinnufyrirog eftirhádegi. Upplýsingar hjá Ingu í síma 3185. Sundhöll ísaflarðar ALMENMNGSTÍMAR Virka daga opið kl. 07:00-08:30 og kl. 17:00- 19:30 Laugardaga kl. 10.00-16:00 Sunnudaga kl. 10:00-14:00 Ath. Lengur opið á moignana (til kl. 08:30) Ath. Sána og heitur pottur innifalið í sundmiða. Sána (karlmenn): Mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, föstudaga og laugardaga. Sána (konur): Rmmtudagá og sunnudaga. ísfirðingar! Sund veitir ánægju og betri heilsu. Sundhöll ísafjarðar. íþróttahúsið Tbrfnesi íþróttahúsið Torfnesi hefur starfsemi miðvikudaginn 29. september kl. 08:00. Upplýsingar um tímaniðurröðun í íþróttahúsinu sími 5260. Ath. Nokkrir bodmintonvellir lausir á þriðjudögum kl. 20:50 og kl. 21:40. Einnig nokkrir sunnudagstímar. íþróttafulltrúinn. Vélamaður ''//'S/M VEGAGERÐIN Vélamaður óskast til starfa á ísafirði, einkum á veghefil. Upplýsingar gefa Kristinn Jónsson og Pétur Ásvaldsson. Umsóknum skala skilað á eyðublöðum sem fást á skrifstofunni í síðasta lagi 1. október. ísafjarðarsókn Sunnudaginn 3. október kl. 14:00 verður guðsþjónusta í ísafjarðarkapellu. Gídeonfélagarkomaí heimsókn. Eftirmessu verður kaffisala Kvenfélagsins. Síðan hefst aðalsafnaðarfundur. Kosið verður um fjölgun sóknamefndarmanna úr fimm í sjö. Sóknarnefndin.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.