Bæjarins besta - 29.09.1993, Side 8
8
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 29. september 1993
SP'ÆT
Ogfleirasport.
Seljalandsdalur:
Hart deiH um skipulags-
breytingar á skíðasvæðinu
- Hafsteinn Ingólfsson verður áfram svæðisstjóri, og starfsmenn áhalda-
haldahúss munu starfa með honum í vetur
BÆJARSTJÓRINN á ísafirði lagði fyrir stuttu fram tillögur að breytingum á starfs-
sviði áhaldahúss bæjarins og skíðasvæðisins á Scljalandsdal sem m.a. fólu í sér að
verkstjóri vélaverkstæðis yrði undirmaður bæjarverkstjóra og að starfsmenn áhaida-
hússins ynnu á skíðasvæðinu þar sem Kristinn Lyngmo verkstjóri gegndi starfi svæðis-
stjóra. Ennfremur lagði bæjarstjóri til að Hafsteini Ingólfssyni, sem gegnt hefur starfi
svæðisstjóra undanfarin ár yrði sagt upp störfum.
Miklar deilur hafa komið
fram um þessar breytingar og
hefur hart verið tekist á, á milli
áhugahóps um skíðasvæðið
F.v. Ragnar „Sót” Gunnarsson, j
son og Kristján Helgason.
Snóker:
nes B. Jóhannes-
Jóhcmnes sigruði
JÓHANNES B. Jóhannesson sigraði á snókermóti Gosa
síðastliðinn laugardag. Jóhannes, sem hafnaði í fjórða
sæti heimsmeistaramóts í flokki 21 árs og yngri í ágúst
síðastliðnum, sýndi tilþrifamikla takta og sigraði sjálfan
heimsmeistarann, Kristján Helgason.
Þeir félagar, Kristján og Jóhannes komu til ísafjarðar
síðastliðinn föstudag og dvöldu fram á mánudag og léku og
kynntu snóker fyrir gesti Gosa. í tilefni af heimsókninni, hélt
Gosi mót á laugardaginn sem lauk með sigri Jóhanns, sem
jafnframt bætti staðarmet Gosa um eitt stig, úr 116 stigum í
117.1 öðru sæti var Kristján Helgason, í þriðja var söngvari
Skriðjökla og leynigestur mótsins þar sem hann skráði sig
svo seint, Ragnar „Sót” Gunnarsson. Þess má einnig geta að
Ragnar var bikarmeistari íslands í snóker árið 1983. Einar
Gunnlaugsson náði iengst Isfirðinga á mótinu, fjórða sæti.
Isfirðingar sýndu heimsókn Reykvlkinganna áhuga,
slæðingur gesta var alla helgina og var Eyþór Einarsson,
einn meðeigenda Gosa, ánægður með hvernig til tókst.
annars vegar og meirihluta
bæjarstjórnar hins vegar. A
fundi íþrótta- og æskulýðsráðs
sem haldinn var 15. september
sl. mætti Hafsteinn Ingólfsson,
forstöðumaður skíðasvæðis-
ins til viðræðna við ráðið
að eigin ósk. Þar kvaðst hann
ekki hafa haft vitneskju um að
verið væri að auglýsa starf
yfirmanns á skíðasvæði þegar
auglýst var laust til umsóknar
starf aðstoöarverkstjóra í
áhaldahúsi enda ekki tekið
fram í auglýsingunni. Fram
kom í máli Hafsteins að í sam-
tölum hans við bæjarstjóra um
skipulagsmál, eftir að aðstoð-
arverkstjóri var ráðinn, hefði
aldrei komið fram að um starf
svæðisstjóra væri að ræða,
heldur troðaramanns.
Iþrótta- og æskulýðsráð
harmaði að í svo veigamiklum
skipulagsbreytingum á íþrótta-
svæði, sem rekstrarlega er á
ábyrgð ráðsins, hafi ekki
verið leitað umsagnar þess. Á
fundi bæjarráðs I safjarðar sem
haldinn var 20. september sl.
lagði Pétur Sigurðsson, bæjar-
fulltrúi Alþýðuflokksins fram
svohljóðandi tillögu um þetta
mál: „Legg til að fyrirhug-
uðum skipulagsbreytingum á
skíðasvæðinu á Seljalandsdal
verði frestað og að Hafsteinn
Ingólfsson verði áfram svæð-
isstjóri á Seljalandsdal. Að-
stoðarverkstjóri verði honum
til aðstoðar og vinni þar
almenn störf, t.d. á snjótroðara
og fl. Nýting á starfsfólki hjá
áhaldahúsi og skíðasvæði
verði rækilega skoðað í vetur
og menn þjálfaðir í störfum á
báðum stöðum, þannig að
sem mest hagræði verði af.”
Meirihluti bæjarráðs lagði
til að tillögurbæjarstjórayrðu
samþykktar en Kolbrún Hall-
dórsdóttir studdi tillögu Péturs
Sigurðssonar.
„Það var vilji meirihluta
bæjarstjórnar að færa rekstur
skíðasvæðisins undir áhalda-
húsið og segja Hafsteini Ing-
ólfssyni upp. Það urðu mikil
mótmæli út af þessu og því var
þetta dregið til baka. Þess í
stað var samþykkt tillaga þess
efnis að rekstur skíðasvæð-
isins verður færóur undir
áhaldahúsið og var mér falið
að útfæra þessa hugmynd og
leita umsagnar íþrótta- og
æskulýðsráðs og tæknideildar
bæjarins. Síðan er annað, að
það er ákvæði í samningnum
viö Hafstein þess efnis að hann
vinnur frá 1. október til 20.
maí ár hvert og ef ekkert verk-
efni er á svæðinu um haustið,
þá er hægt að segja þeim þætti
samningsins upp. Það gerði
ég í samráði við meirihluta
bæjarráðs og óskaði eftir því
að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
gerði grein fyrir þeim verk-
efnum sem eru á svæðinu.
Niðurstaða málsins er því
sú að Hafsteinn verður svæð-
isstjóri í vetur og starfsmenn
áhaldahússins munu starfa á
skíðsvæðinu í vetur. Hugsunin
er sú að hafa tvö gengi verka-
manna í áhaldahúsinu. Við
þurfum á þeim að halda yfir
sumarið en þurfum í raun að
fækka þar yfir vetrartímann.
Því þykir það heillaráð að
hafa þennan hóp uppi á skíða-
svæði á veturna. Hér er ein-
ungis verið að reyna að nýta
starfsfólk bæjarins beturen gert
hefur verið.
Hafsteinn átti sér marga
stuðningsmenn í málinu og því
var niðurstaðan sú aó hann
gegndi starfi svæðisstjóra í
vetur. Það var hart deilt um
jessar breytingar. Annars
Hafsteinn Ingólfsson.
vegar á milli ýmissa áhuga-
manna um skíðasvæðió og
hins vegar meirihluta bæjar-
stjórnar,” sagói Smári Har-
aldsson í samtali vió blaðið.
Skíðasvæðið á Seljalandsdal. Meirihluti bæjarstjómar vildi
segja svæðisstjóranum upp störfúm og setja rekstur
svæðisins undir áhaldahúss bæjarins. Því var harðlega
mótmælt af áhugamönnum um skíðasvæðið.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
HAFNARSTRÆTI1 • ÍSAFIR01 • « 3940 & 3244 . FAX 4547
Fasteignaviðskipti
Fasteign vikunnar
Mjattargata lb: 90 m2 ný íbú 'fí á 2. hæð t f 'jölbýhshmi. IB£ 1
Einbýlishús/raöhús:
Strandgata 17:120 m2 einbýlis-
hús á 2 hæðum ásamt sólstofu
og bílskúr.
Fitjateigur 4:151 m2einbýlishús
á einni hæð + bílskúr. Skipti
möguleg á minni eign á Eyrinni.
Fagraholt 11: 140 m2 einbýlis-
hús á einni hæð ásamt bílskúr.
Bakkavegur 29: 2x129 m2 ein-
býlishús átveimur hæðum ásamt
bílskúr.
Hnlfsdalsvegur 8: 102 m2
einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt kjallara.
Vantar 4-5
herbergja íbúðir og
einbýlishús á skrá
4-6 herbergja íbúðir
Hjallavegur12:114m24raherb.
íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi.
Mánagata 2: 140 m2 4ra herb.
íbúð á 2 hæðum + kjallari og
háaloft.
Mjallargata 6:100 m24raherb.
íbúð á efri hæð, suðurenda í
þríbýlishúsi.
Urðarvegur 45: 103 m2 4ra
herb. íbúð á efri hæð í tvíbýlis-
húsi ásamt bílskúr.
Fjarðarstræti 32: 126 m2 4ra
herb. íbúðátveimurhæðum í a-
endaítvíbýlishúsiásamtkjallara.
U rðarveg u r 41:120 m2 3-4 herb.
íbúð á n. h. í tvíbýlishúsi.
Hreggnasi 3:2x60 m2 4ra herb.
íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi
ásamt rishæð undir súð.
Sundstræti 14: 80 m2 4ra herb.
íbúð á 2 hæðum, v-enda í þrí-
býlishúsi. Endurnýjuð að hluta.
Pólgata 4:136 m2 5 herb. íbúð á
2. hæð í þríbýli + lítill bílskúr.
3ja herbergja íbúðir
Stórholt 7: 76 m2 íbúð á 2. hæð
fyrir miðju í fjölbýlishúsi.
Aðalstræti 25: Ibúð á efri hæð í
tvíbýlishúsi.
Pólgata 6:55 m2 íbúð á 3. hæð til
hægri í fjölbýlishúsi.
Pólgata 6: 55 m2 íbúð á 2. hæð
til vinstri í fjölbýlishúsi.
Pólgata 6: 55 m2 íbúð á 3. hæð
til vinstri í fjölbýlishúsi.
Sundstræti 14:86 m2 íbúðáe.h.
n-enda í þríbýlishúsi. Endurnýjuð
að hluta.
Stórholt 11:75 m2 íbúð á 2. hæð
fyrir miðju í fjölbýlishúsi
Aðalstræti 15: 90 m2 fbúð á efri
hæð, s-enda í fjórbýli. Sérinng.
Aðalstræti 26a: íbúð á efri hæð,
v-enda í þríbýlishúsi.
2ja herbergja íbúðir
Smiðjugata 8: íbúð í sambyggðu
timburhúsi, sér inngangur, laus.
Tangagata 10: íbúð á efri hæð í
tvíbylishúsi, laus.
Aðalstræti 20: 94 m2 íbúð á 4.
hæð í fjölbýlishúsi.
Urðarvegur 80: 66 m2 íbúð á
jarðhæð í fjölbýlishúsi. Sérinng.
Tangaaata 23a: íbúð á ein ni hæð
ásamt Rjallara. Endurnýjuð.
Strandgata 5: 55 m2 fbúð í s-
enda, efri hæð, nýuppgerð.
Ýmislegt:
Sindragata 3: 714 m2 iðnaðar-
húsnæði Sunds hf.
Sumarbústaður í Tunguskógi.
Bolungarvík:
Traðarstígur 6:116 m2einbýlis-
hús á einm hæð ásamt bílskúr.
Ljósaland4:291 m2einbýlishús
á 4 pöllum ásamt bílskúr.
Heiðarbrún4:139m2einbýlishús
á einni hæð ásamt bflskúr.
Vitastígur 11:105 m2 íbúð á efri
hæð í fjórbýlishúsi.
Vitastígur 19:90 m2 íbúð á neðri
hæð í fjórbýlishúsi.
Þuríðarbraut 9: 130 m2 6 herb.
einbýlishús ásamt bílskúr.
Súðavík:
Aðalgata 14: 70 m2 einbýlishús
á einni hæð + kjallari. Skipti
möguleg á eign á Isafirði.