Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.12.1993, Síða 10

Bæjarins besta - 29.12.1993, Síða 10
10 BíJARlNS BESTA • Miðvikudagur 29. desember 1993 Eldvarnagetraun barnsins: Tapað líf er óbætanlegt! í SÍÐASTA tölublaði BB birtist „Etdvarnaj>etraiin bariLsins” semer liður í brunavarnaátaki landssambands slökkviUðsmanna 1993. Vejjrm plássieysis reyndist ekki unnt að birta vísbcndingar við spurningunum sex og birtast þær því hér að neðan. Minnt skai á að skilafrestur svara er Cyrir niðnætti 31.desetnber nk. og skulti þau sendast til Landssambands siökkviliðsnmima, pósthólf 4023, 124, Reykjavík. Visbending við 1. spurningu Neyðarnömer. Á neyðarstund er mikilvægt að símanúmer neyðarþjónustu sé einfalt og auðvelt að muna. Hvemig er neyóarsímsvönin nú háttað í landinu? Núverandi kerfi er þannig að lögreglan hefur síma 0112 í Reykjavík, Seltjamamesi og Mosfellsbæ og slökkvjlió og sjukra- flutningar 11100, til vara 0112, og Almannavamír 22040 eða 11150. Vitað er að í landinu eru tugir símanúmera, sumir segja jafnvel 170, sem þjóna því hlutverki að vera neyðarnúmer. I brennandi húsnæði eða við önnur neyðartilvik, t.d. líkamsárás, er öruggara að hafa citt núnter, stutt og einfalt, sem auðvelt er að muna. Hvað skal gera ef eldur verður laus? Varið alla við... Eldur er laus, sjáið um að allir fari út Hringið í neyðarsímanúmer slökkviliðs. Tilkynnið hvar er aö brenna, takið á móti slökkviliðinu cr það kemur á staðinn og gefið nánari upplýsingar ef þær eru fyrir hendi. Notið slökkvitæki á staðnum til að hefta útbreiðslu eldsins þar til slökkviliðið kemur. Ef tími leyfir, lokið hurðum og gluggum til að hefta útbreiðslu eldsins þar til slökkvilíðið kcmur. Foreldrar athugið: Skiljið lítil böm aldrei ein eftir. Setjið líntmiða á símtækí á heintilinu með neyðarsímanúmeri lögreglu og slökkvihðs. Kennið hörnum og unglingum hvemíg og hvenær á að hringja í neyðarsímanúmer sem á við í ykkar heimabyggð. VLsbending vld 2. spurningu Leikur að cldfæmin. Böm undir fimm ára aldri eru í verulegri lífshættu vegna eldsvoða sem verða í heimahúsuni. Of margir eldar vcrða vegna leiks bama meö eldspýtur og vindlingakveikjara sem freista þeirra yngstu, vegna þess meóal artnars hve litskrúðugir þeir eru. Eru eldspýtur og vindlingakveikjarar geymdir, þar sem böm ná ekki til. á þínu heintíli? Vísbcnding við 3. spurningu Eldsvoðar vcgna matargerðar. Eldamennska er algengasta ástæða fyrir cldsvoóum í heímahúsum ekki síst ef verið er að nota feiti við matargerð. Temjið ykkur eftmfarandi Farið ekkt út úr eldhusmu meðan á eldamennsku stendur Staðsetjið ekki auðbrennanleg efni fyrir ofan eldavélina. Komi upp eldur í potti eða pönnu á eldavélinni, þá rjúfið strauminn að hellunni og rennið lokí yfir pottinn eða pönnuna til að kæfa eldmn. Hrtngið i siökkv iliðið. Hellið aldrei vatni á feitield, Algengasta orsök bruna er vegna mannlegra mistaka frekar en að eldavélar og rafmagnstæki bili og valdí íkveikju. Vísbending við 4. spumingu Þekktu U1 útgönguleiða á þínu heimiii. Eldsvoðar á heimilum eru algengastir eldsvoða og flestir þeirra er farast í eldsvoða verða f>TÍr því á heímílum. Reykingar í rúmi eða annars staðar á heimilinu em algengasta orsök eldsvoða senr hefur dauða í l,'i nteð ser. Of margir farast x þessum eldsvoóum. Flestir þessara elda kvikna í stofum, skálum og svefnherbergjum vegna þess að glóð fellur í sófa eða rúrnföt. Reykurinn er í flestunx tilfellum hættulegri en eldnrinn. Þeír sem reykja eru raunverulega aó leika sér meö eldinn. Með því að vera varkár í meðhöndlun á vindlum, víndlingum og eldspýtum er meiri möguleiki á að þið getió varast eldsvoóa vegna þeirra. Þetta em dauöír hlutir, þeír valda ekki eldsvoða, það em þíð, fólkið sem notar þessa hlutí, sem eruð upphafxð að eldímim. Vi i ið '■ æ kái Vísbending við 5. spurningu Reykskynjarar. Reykskynjarar hafa stxmdum verið kallaðir ódýrasta lxftryggxng sem fólk getur keypt Meira en helmingur allra eldsvoóa í heima- húsum kviknar að nótm þegar fólk er í fasta sveífii. Ef eldur kemur upp þegar fjölskyldan er sofimdi, vekur reykskynjarinn þig. Reyk- skytijari gctur skiiið á millx lifs og dauða í eldsvoða. Prófið reyk- skynjara einu sinni í mánuði. Ef hann virkar ekki, skiptið þá um rafhlöðu. Ef það dugar ekki er skynjarinn að öllum likindum ónýtur. Kaupið þá nýjan og setjið hann strax upp. Ath! Gott er að hafa fyrir reglu að skipta um rafhlööu í reyk- skynjaranum t.d. í desember ár hvert. Vísbending við 6. spurningu Augrislys barna og ungiinga uni áramót. Á undanförnum árum hafa augnáverkar af völdum flugelda orðið alvarlegri cn áður. Algengast er mar á auga, yfirleitt með hlæðingum xnni í auganu. Oft er um varanlega skemmd að ricða með sjón- skerðíngu. Samfara þessu geta fylgt brot í andliti og í verstu úlfellum hefur þurft að fjarlægja augað. í rannsókn sem augnlæknarnir Haraldur Sigurósson, Guðmundur Viggósson og Fríðbert Jónasson geröu og birt var í Læknablaóinu desemberheftí 1991, kemur fram aó algengasla orsök augnáverka um áramót voru flugeldar. Tivolibomhur, blys og hveflettnr deildu öðru sæti. Flestir hinna slösuðu vont börn og unglingar. Flest slysanna uróu um áramótín 1978-1988 í kjölfar notkunai' öflugra skotelda, svokallaðra tívolíbontba. Þá slösuðust fimm einstaklingar alvarlega á auga, þar af þrír vegna tívolibomba. Tölu- verðarumræóur og blaðaskrif urðu þá um hættuna af notkun flugelda og í framhaldi af því voru tívolíbombur bannaöar. Foreldrar. Látum lltil böm aldrei bera eld að flugeldum og blysum._____ Vélstiórafélag ísaljarðar: Sjómenn eiga ekki að taka þátt í kaupum á kvóta Aðalfundur Vélstjórafélags ísafjarðar sem haldinn var 26. desember síðastliðinn hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun í fjórum liðum: Fundurinn leggur áherslu á að nytjastofnar á íslandsmiðum eru sameign þjóðarinnar eins og fram kemur í 1. grein laga um stjórnun Ftskveiða og leggur áherslu á að starfa beri samkvæmt pví. Þá telur fundurinn að kvótakerfið í núverandi mynd hafi engum árangri skilað og þurfi að endurskoða það frá frunni. í þriðja lagi telur fundurinn að setja þurfi lög er komi í veg fyrir að sjómenn séu látnir taka þátt í kaupum á vóta eða veiðiheimildum í hvaða mynd sem er og í fjórða lagi telur fundurinn að setja beri allan afla á markað eða að fiskverð verði markaðstengt, til að tryggja sjómönnum rétt gangverð fyrir aflann. ísaljarðardjúp; 12,5 tonn komu á land í jólavikunni Aðeins 12,5 tonn af rækju bárust á land í síðustu vikunni íyrir jól en rækjubátarnir liggja nú bundnir við bryggju fram yfir áramót. Fjórir bátar lönduðu hjá Bakka í Hnífsdal, samtals 1.943 kg. Finnbjörn kom með 390 kg., Guðrún Jónsdóttir 585 kg., Gunnar Sigurðsson 513 kg., og Sigurgeir Sigurðsson 455 kg. Enginn bátur lagði upp hjá Básafelli eða Frosta í þessari viku en fjórir bátar lögðu upp hjá Þuríði hf. í Bolungarvík, samtals 2.120 kg. Bryndís kom með 208 kg., Páll Helgi 1.045 kg., Sæbjörn 537 kg., og Sædís kom með 330 kg. Tíu Dátar lögðu upp hjá Rit hf. á ísafirði, samtals 8.470 kg. Árni Óla kom með 1.524 kg., Gissur hvíti 1.900 kg., Hafrún II 706 kg., Húni 606 kg., Neisti 502 kg., Páll Helgi 1.372 kg., Sæbjörn 490 kg., Sædís 182 kg., Ver 868 kg., og Örn kom með 320 kg. Alls hafa rúm 909 tonn af rækju komið á land það sem af er þessari vertíð og eru því um 1.590 tonn eftir af 2.510 tonn kvótanum. Suðavík; Bessinn fiskar í siglingu Togarinn Bessi frá Súðavík hefur landað í tvígang frá því við sögðum síðast aflafréttir frá Súðavík, samtals um 170 tonnum af þorski. Skipið landaði 110 tonnum 14. desember og kom síðan aftur 22. desember með 60 tonn. Bessinn fór á veiðar á mánudaginn og verður á veiðum um áramótin en skipið á pantaðan söludag í Bremenhaven í Þýskalandi 20. janúar næstkomandi. Undanfarnar vikur hafa staðið yfir miklar breytingar á rækjuverksmiðju Frosta hf. í Súðavík og ganga þær eftir áætlun að sögn forráðanianna fyrirtækisins. Ráðgert er að verksmiðjan verði tekin í notkun á ný um miðjan janúar. Isaljöröur: Júlíus með 33 milljóna króna aflaverðmæti Allur ísfirski togaraflotinn kom til hafnar á ísafirði fyrir jólin og var afiinn fremur dræmur enda útiveran stutt og veður með leiðinlegra móti. Rækjutogarinn Skutull landaði 50 tonnum að verðmæti um átta milljónir króna þann 21. desember og náði skipið þar með 300 milljón króna markinu sem útgerðin hafði sett sér á haustdögum. Daginn eftir landaði Guðmundur Péturs 20 tonnum af rækju og Hálfdán í Búð kom með 22 tonn, mestmegnis þorsk. Sama dag landaði Guðbjartur 30 tonnum og Hersir kom með 9 tonn af rækju. Á Þorláksmessu landaði Framnesið 8 tonnum, Haffari 10 tonnum af rækju og Kofri 8 tonnum af rækju sem fór til vinnslu hjá Bakka hf. í Hnífsdal. Þá landaði Guðbjörgin 65 tonnum og var uppistaðan í aflanum þorskur. Frysti- togarinn Júlíus Geirmundsson kom einnig í land fyrir jóíin og uppskipun hófst fyrsta virka dag eftir jólahá- tíðina. Júlíus kom með 140 tonn af frosnum fiski sem gerir 263 tonn upp úr sjó og var aflaverðmætið um 33 milljónir króna. Uppistaðan í aflanum var ýsa og þorskur. Flest ísfirsku skipin voru í landi á milli jóla og nýárs en vitað er um fióra togara sem héldu á miðin og eru væntan- legir til lanas á föstudag. Það eru togararnir Guðbjörg, Páll Pálsson, Framnes og Stefnir. Bolungarvík: Reytingur á línuna Að sögn starfsmanna hafnarvogarinnar í Bolungarvík var reytingur á línuna síðustu dagana fyrir jól og var aflinn allt að sjö tonn á bát eftir leguna. Sama var uppi á tengingnum í fyrsta róðri á milli jóla á nýárs en þá fekk Flosi 5,7 tonn í einni legu og Guðný 3,6 tonn. Togarar þeirra Bolvíkinga Heiðrún og Dagrún lönduðu báðir fyrir jólin, samtals 80 tonnura. Dagrún kom 20. desember með 50 tonn og var um 30 tonn af aflanum 5 kílóa þorskur. Heiðrún landaði daginn eftir, 30 tonnum og var svipað uppi á teningnum á peim bæ. Skipin fóru bæði á veiðar milli hátíða og eru væntanleg til lands á föstudag.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.