Bæjarins besta - 23.03.1994, Blaðsíða 2
2
MiJARINS BESTA • Miðvikudagur 23. mars 1994
ísafjörður:
Mikill kippur í far-
miðasölu fyrir páska
FARPANTANIR hjá Flugleiðum á ferðum til ísafjarðar
hafa aukist rnjög mikið síðustu dagana og bendir allt til þess
aðsókn á Skíðavikuna verði ekki síðri nú en undanfarin ár, að
sögn Arnórs Jónatanssonar, umdæmisstjóra Flugleiða á
Isafirði.
Eins og greint var frá fyrir
hálfum mánuði, var salan frekar
dræm síðustu vikurnar en nú
fækkar sætunum óðum. „Mið-
vikudagurinn, 30. mars, verður
ferðaþyngstur hingað vestur en
annars dreifast pantanir jafnt
yfir aðra daga fyrir páskana.
Hins vegar verður ferðaþyngsti
dagurinn héðan 2. í páskum.
Þessar miklu bókanir hófust
í byrjun síðustu viku og í dag
eru þær orðnar alveg sambæri-
legar við sama tíma á undan-
förnum árum. Ég hefengahald-
bæra skýringu á því af hverju
„páskagestirnir“ tóku svona
seint við sér í ár,“ sagði Amór
Jónatansson.
-hþ.
Botnsheiði:
Tuttugu skólabörn sátu
löst í fjórar Mukkustundir
GRUNNSKÓIJNN á Suðureyri liélt sína árlegu árshá-
tíð síðastliðinn föstudag. Elstu bekkingum grunnskólanna
á Flateyri og Þingeyri var boðið á árshátíðina seni saman-
stóð af leiksýningu og dansleik og sóttu fjörutíu nentendur
frá skólunum tveimur súgfirsku krakkana heim.
Krakkamir komu akandi
yfir Breiðadals- og Botns-
heiðar um klukkan 19.30 um
kvöldið en þegar leiksýn-
ingunni lauk tveimur tímum
síðar var skollin á NA-stór-
hríð. Þar senr fregnir af heið-
unum voru ekki góðar ákváðu
Flateyringar að gista á staðn-
um en Þingeyringar sem voru
átveimuröflugumfjaliabílum
ákváðu að freista þess að
komast yfir heiðamar áður en
þær lokuðust endanlega.
Þegar bílarnir voru komnir
að vegamótum Botns- og
Breiðadalsheiða var ekki
lengra komist vegna snjóa og
skafrennings. Þar sem ofan-
koman var sl£k að ekki tókst
að snúa bílunum var gripið til
þess ráðs að fá bóndann í Botni
í Súgandafirði, Bjöm Birkis-
son, tii að moka heiðina með
litlum snjóblásara og koma
þannig bílunum aftur til
byggða. Gekk það verk hægt
en örugglega þrátt fyrir
vonskuveður og voru börnin
komin aftur til Suðureyrar um
klukkan 02 um nóttina.
Þá vardansleiknum að Ijúka
og var því ákveðið að fram-
lengja hann svo ungmennin
frá Þingeyri gætu dansað úr
sér mesta hrollinn. Á meðan
þeystust velunntuarskólans út
um allan bæ til að safna saman
dýnum og svefnpokum. Dag-
inn eftir var leitað til Land-
helgisgæsiunnar og sendi hún
varðskip á staðinn sem flutti
bömin til síns heima.
-sps.
Suðureyri:
Peningum og lyfjum
stolið á heilsugæslunni
AÐFARARNOTT síðastliðins sunnudags var brotist inn í
heilsugæslustöðina á Suðureyri og þaðan stolið peningum og
lyfjum. Talið er að farið hafi verið inn um glugga á húsinu.
Að sögn lögreglu.var rótað
nokkuð til innandyra en sá sem
þama var að verki mun hafa
haft lítið upp úr krafsinu.
Eitthvað lítilræði var þó tekið
af lyfjum og um 1.800 krónur í
peningum. Ekki voru unnar
neinar skemmdir á húsbúnaði
né tækjum utan þess að peninga-
skápur var brotinn upp. Rann-
sóknarlögreglan á Isafirði vinn-
ur að rannókn málsins.
Gestirnir gæða sér á pastaréttunum í hádeginu í gær.
ísafjörður:
Pastahlaðborð á Pizza '67
PIZZA '67 á ísafirði býður nú upp á pastahlaðborð í
hádeginu alla daga vikunnar og er hér um nýjung á Vest-
fjörðum að ræða á matseðli skyndibitastaða, en Pizza '67
veitingastaðir á höfuðborgarsvæðinu hafa boðið upp á
samskonar hlaðborð frá því í haust við góðar viðtökur.
„Hlaðborðið er samansett af
sjö mismunandi pastaréttum,
auk lasagna, ýmiss grænmetis,
súpu, hvítlauksbrauðs og pizzu.
Við skiptum um einstaka rétti
hvem dag og náum þannig alltaf
að endumýja hlaðborðið. Og á
kvöldin eru líka íboði sérstæðir
pastaréttir. Pastahlaðborðið
kostar samtals kr. 850 sem ég
tel að sé mjög hóflegt verð fyrir
svona mikinn mat enda hafa
viðskiptavinirnir verið mjög
ánægðir með þetta framtak
okkar," sagði Ámi B. Olafs-
son, annar eigenda Pizza '67.
Blaðamanni BB var boðið til
hádegisverðar í gær og fékk að
bragða á girnilegum réttum
hlaðborðsins og reyndust þeir
mjög Ijúffengir í alla staði.
Skemmtileg blanda mildra og
sterkra rétta er afar vel heppnuð,
og fjölbreytt úrval tryggir að
allir fá magafylli sína. Og ekki
spillir fyrir hversu hollur og
næringarríkur þessi matur er.
-hþ.
Raðhús tU sölu
Til sölu er tveggja hæða raðhús að
Urðarvegi 54 á ísafirði. Húsið er 195 m2
ásamt innbyggðum bílskúr. Skipti á minni
eign koma til greina.
Upplýsingar í síma 4042.
Véfsfeðf
til sölu
77/ sölu er Arctic
Cat Prowler
vélsleði, árgerð
1991. Lítið ekinn
og ve! með farinn.
Uppiýsingar gefur
Sigurjón í símum
4560 á daginn og
4277á kvöidin.
Vélsleói
til sölu
Stakkur skrifar:
Erþér ekUUH?
SÍÐBÚINN kosningaskjúlfti hríslast um menn. Prófkjör
halda áfram og á Patreksfirði hefur áhugi aldrei verið meiri.
Kvennalistinn á ísafirði sendi bréf fil vinstri flokkanna til að
undirstrika núverandi stöðu sína, sem sé þá að bjóða helst
ekki fram sér hcldur með öðrum. Að vísu hafa þær aftur-
kallað beiðni sína eftir að Framsóknarflokkurinn sagði þvert
nei við beiðninni og hyggjast koma með sitt eigið framboð.
Enginn veit hvort líta beri á
þetta sem afturhvarf frá upp-
runanum eða tilvistarkreppu.
Eftii viil erum merki pólitísks
þroska að ræða, að vilja nú í
eina sæng með krötum úr þessu
skelfiiega flokkakerfi, sem
fyrir 12 árum var versti óvinur
kvennalistakvenna. Hvílíkt
orð. það byrjar og endar eins
og segir samt allt sem segja
þarf. Er um afleiðingar skoð-
anakönnunar úr Reykjavík að
ræða eða einhver djúpstæð rök
sem yfirsjást hlutíausum áhorf-
anda?
Ætla má að skýringin liggi
öilu heldur í því, að DV eigi
nokkurn hlut að máli. En
skoðanakannanir þess ágæta
dagblaðs sýndi að í Reykjavík
höfðu, og hafa sennilega enn,
kjósendur meiri áhuga á breyt-
ingum en sjálfstæðismönnum.
Enda er það skiljanlegt. Borg-
arstjórnarmeirihlutinn sá að
farþegum nteð strætó hafði
fækkað úr 3016 rniiljónir á ári,
en borgarbúum úr 70 þústind f
100 þúsund á stðastliðnum 30
árutn. Rekstríirgruiidvöllurinn
erþví í raun brostinn. Nú skyldi
gerð tilraun og SVR gert að
hlutafélagi og einkavætt.
En borgarstjórnarmeiri-
hlutanum gleymdist að athuga
að strætó er ekki til fyrir far-
þegana. Ó, nei, strætó er til
fyrir strætóbílstjórana, sem nú
eru aftur orðnir opinberir
starfsmenn, að vísu í vinnu hjá
einkafyrirtæki, en hverjum er
ekki sama. Þessar fáu hræður
sem ferðastmeð strætóeru ekki
það margar að nokkur hirði
um að leita álits þeirra. Fyrir
tilverknað einkennisbúninga
opittberra starfsmanna í
Reykjavík er svo komið að
kvennalistakonur bjóða nti
öðrum flokkum, körlum jafnt
sem konum til samlags víð sig
en kjósa þó ekki lagsmenn úr
Sjálfstæðisflokki. Þar á bæ
skyldu menn ekki hina ein-
földu staðreynd. að opinber
þjónusta er fyrir opinbera
starfsmenn en ekki skatt-
borgarana. Fyrir það kunna
frambjóðendur þcss flokks að
líða um allt land í kosningunum
á vori komanda.
Strætó á ísafirði er einka-
rekin, bærinn kaupir þjónustu
af manni út í bær og hefur
geftst vel. Þessu hlýtur að hafa
verið brcytt, hefðu kvennalista-
konur og lagsmenn þeirra af
báðum kynjum komist til valda
í höfuðstað Vesttjarða.
Aíveg; er ótrúlegt hvað
stjónimál geta þróast á undar-
legán yeg. Ollum sem ráða á
ísafirði sýnist vera sama uni
vatnið seiti látið er renna um
vatnsleiðslur bæjarins. Skiptir
engu þótt vinstrisinnaðir líf-
fræðingar sitji í bæjarstjórn og
bæjarstjórinn sé sjálfur iíf-
fræðingur. Meiru skiptir að
reisa sorpbrennslustöð. enda
sést hún vel frá flttgveilinum.
sem flestir gestir koma um eða
veginn sem aliliestir koma
akandi um til bæjarins. Fyrir
augað verður hún ineira áber-
andi en neysluvatnið sem látið
er í magann og notað er í
matvælaiðnaði.
Árið 1993 voru tekin 22 sýni
af neysluvatni bæjarbúa.
Reyndust 36% þeirra nothæf,
23% gölluð (! svo) og 41%
ónothæf. Árin 1991 og 1992
voru tekin samtals 34 sýni og
reyndust 18% þeirra nothæf,
en 82% ónothæf. Ja, héma,
verður þér ekkert iilt af þessu
lesandi góður? Drekkurðu
kannski kók og bíðureftir jarð-
gangavatni? Uin þetta á að
kjósa.
-Stakkur.