Bæjarins besta - 23.03.1994, Blaðsíða 6
6
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 23. mars 1994
Anna Margrét Guðjónsdóttir. ferðamálafulltrúi Vestfiarða skrifar:
Ferðaþjónusta á norðan-
verðum VestQörðum
MORGUM finnst etlaust sem verkaskipting, milli þeirra
sem vinna að uppbyggingu ferðaþjónustu, sé óljós. Þetta á
einkum við um svæðið á norðanverðum Vestfjörðum. Það er
heldur ekki skrýtið þar sem t.d. hér á Isafirði eru starfandi
Ferðamálafélag ísafjarðarsýslu, ferðamálanefnd ísafjarðar-
kaupstaðar, upplýsingaskrifstofa ferðamála, Ferðamála-
samtök Vestfjarða og ferðamálafulltrúi Vestfjarða. Til að
auðvelda fólki að greina á milli starfa þessara aðila vil ég í sem
stystu máli gera grein fyrir starfsemi hvers og eins og vona að
það megi koma einhverjum að gagni.
Ferðamálasamtök Vestfjarða
eru samtök hagsmunaaðila, þ.e.
sveitarstjóma og ferðaþjónustu-
aðila, í öllum fjórðungnum.
Markmið samtakanna er að
styrkja ferðaþjónustu sem at-
vinnugrein og fjölga störfum
innan hennar. Verkefni sam-
takanna eru því nánast alltaf á
fjórðungsvísu og má þar t.d.
nefna bæklingaútgáfu, menntun
starfsfólks, aðstoð við minja-
gripaframleiðslu, kynningar-
starf, stofnun ferðamálafélaga
(sjá síðar) o.fl. Starfsmaður
Ferðamálasamtaka Vestfjarða
er Anna Margrét Guðjónsdóttir.
Ferðamálafulltrúi Vestfjarða
(undirrituð) hefur aðsetur á
Byggðastofnun áísafirði. Hlut-
verk ferðamálafulltrúa er að
vinna að ofangreindum verk-
efnum auk ýmissa annara.
Ferðamálafulltrúi er í nánu sam-
starfi við ferðaþjónustuaðila og
sveitarstjórnarmenn um alla
Vestfirði sem og aðra atvinnu-
ráðgjafa innan fjórðungs sem
utan. Eitt af verkefnum ferða-
málafulltrúa var að stofna
(ásamt öðrum) Ferðamálafélag
ísafjarðarsýslu og nágrennis.
Ferðamálafélag Isafjarðar-
sýslu og nágrennis. Félagið var
stofnað í mars á sl. ári og er því
eins árs um þessar mundir.
Ferðamálafélaginu er ætlað að
efla ferðaþjónustu á sínu félags-
svæði með ýmsum aðgerðum
s.s. uppákomum (t.d. Oshiíðar-
hlaup), útgáfu þjónustubækl-
ings, merkingu gönguleiða,
sameiginlegra auglýsinga o.fl.
Aðalverkefnið undanfarið ár
hefur verið að reka upplýsinga-
miðstöð ferðamála á Isafirði.
Starfsmaður upplýsingamið-
stöðvarinnar og jafnframt for-
maður Ferðamálafélags Isa-
fjarðarsýslu og nágrennis er
Anna Margrét Guðjóns-
dóttir.
Sigrún H. Sigmundsdóttir sem
nýlega fór í barnsburðarleyfi.
Við hennar starfi tekur Björg
Jónsdóttir. Meginhlutverkupp-
lýsingamiðstöðvarinnar er að
veita ferðamönnum upplýs-
ingar um alla þá þjónustu sem í
boði er á þjónustusvæði fél-
agsins sem og ferðaþjónustu
annarsstaðar í fjórðungnum.
Einnig er upplýsingamiðstöð-
inni ætlað að veita heima-
mönnum upplýsingar um ferða-
möguleika innan fjórðungs sem
utan enda er þar til mikið safn
bæklinga. Þar svarar starfs-
maður upplýsingamiðstöðvar-
innar fyrirspurnum urn ferða-
þjónustu sem berast á svæðinu.
Síðasta sumar var upplýsinga-
miðstöðin starfrækt í húsnæði
Framhaldsskóla Vestfjarða á
T orfnesi. I vetur hefur hún verið
starfrækt að Hafnarstræti 6 en
óvíst er hvar starfsemin verður
á sumri komanda.
Ferðamálanefnd Isafjarðar er
ein ef nefndum bæjarins. I
nefndinni eru þrír aðalmenn og
þrír til vara, þar af skulu hags-
munaaðilar í ferðaþjónustu til-
nefna einn og annan til vara.
Nefndinni er ætlað að vera
bæjarstjórn til ráðuneytis og
vinna að framförum að ferða-
málum á Isafirði.
Af framansögðu má ljóst vera
að starfssvið þessara aðila eru
afmörkuð enda þótt samstarf
þeirrasémikið. Allirstefnaþeir
líka að sama marki þ.e. að efla
ferðaþjónustu á svæðinu, bæði
ferða- og heimamönnum til
hagsbóta.
Anna Margrét
Guðjónsclóttir,
ferðamálafulltrúi Vestfjarða.
Svanhildur Þórðardóttir kaupmaður skrífar:
Er verulegur verðmugur á föt-
um í Reykiavík og á Isafirði?
EG HRÖKK við þegar ég
las þessa fullyrðingu Önnu
Kristínar Ásgeirsdóttur í
Morgunblaðinu, föstudaginn
18. mars sl. Þar sem mér er
málið skylt sé ég mig til-
neydda til að svara þessu.
I verslunum mínum Legg
og skel og Jóni og Gunnu á
ísafirði höfum við kappkostað
að vera með sama verð á
fatnaði og skóm og í Reykja-
vík og stundum hefur það
jafnvel verið lægra. Einhverj-
um hundrað krónum getur
stundum munað á báða vegu
en það er eðli frjáisrar verð-
lagningar. Ég vil nefna sem
dæmi verslanimar Kjallarann,
4 you búðina og Blu de blu á
Laugarveginum og Kókó,
Hanz og 5. stræti í Kringlunni.
sem eru með söntu vörur og
Jón og Gunna. Hjartað í
Kringiunni og Bangsa á
Laugavegi sem versla með
margt það sama og Leggur og
skel. Fleiri mætti upp telja.
Ef Anna Kristín hefur ált
við verð í Hagkaupi og Vera
Moda (sem hún tekur ekki
Svanhildur Þórðardóttir,
kaupmaður.
fram) byggist það verð á
miklum magninnkaupum sem
útilokað er að keppa við, enda
ekki áhugi fyrir að kaupa allt
að 100 stykki af sama hlut.
Það er auðvitað ósköp auð-
velt að skreppa tii Reykjavíkur
f bæjarferð... umrædd grein sem birtist í Morgunblaðinu
18. mars síðastliðinn.
2-3 sinnum á ári og kaupa allt
sem fjöiskyldan þarfnast fata-
kyns. En það segir sig sjáíft að
ef ailir hugsa þannig leggst
verslun ogþjónustaaf á hinum
smærri stöðum landsins. Vilj-
um við sjá Vestfirði án versl-
unar?
Órökstuddar fullyrðingar,
eins og sú sem um er fjallað,
gera okkur verslunarreksturinn
mun erfiðart og er þó nóg samt
á tímum samdráttar.
Svanhildur Þórðardóttir.
AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ!
- næsta tölublað og bar með síðasta tölublað fyrir páska kemur út
nk. þriðjudag. Skilafrestur auglýsingar er á hádegi á mánudag.
ísafjöröur:
Fjörutíu og fimm
daga fangelsi
fyrir að skalla
Á MIÐVIKUDAG í síðustu viku dæmdi Héraðsdóntur
Vestfjarða, 22 ára ísfirðing í 45 daga varðhald fyrir að
hafa ráðist með ofheldi á aðalvarðstjóra lögreglunnar á
ísafirði og skallað hann í andlitið er lögreglumaðurinn
hugöist færa ákærða í fangageymslur lögreglunnar á
ísafirði, aðfararnótt laugardagsins 27. nóvember 1993.
Fyrir dórni óskaði ákærði
ekki eftir skipun verjanda.
Hann kvað ákæruna rétta og
viðurkenndi að hafa skallað
lögreglumanninn í andlitið
umrædda nótt. Ákærði gaf þá
skýringu á háttsemi sinni, að
hann hafi orðið reiður er lög-
reglumaðurinn var að ræða
við sig inni áiögreglustöðinni
og liinir og þessir lögreglu-
menn kornið tnn (yfirheyrslu-
herbergið og ýjað að því að
ákærði væri sífellt til vand-
ræða í bænum. Ákærði sagði
suma lögregtumenn á ísafirði
vera kunna að því að vera oft
með stæla og hann staðfestt
einnig fyrir dónii að hafa
beðið umræddan lögreglu-
mann afsökunar á hátterni
sínu. daginti eftir að honum
var birt ákæra í málinu. Hann
sagðist þó lengi hafa skamm-
ast sín fyrir verknaðinn og
viti að það senr hann gerði
var rangt.
I dómi Héraösdóms Vest-
fjarða segir m.a.: „Með af-
dráttarlausri játningu ákærða
við rannsókn og meðferð
málsins, sem er í samræmi
: við önnur gtign, þykir ofan-
greind háttsemi hans sönnuð
og er hún rétt færð til refsi-
ákvæða í ákæruskjali. Sam-
kvæmt kæruskrá lögregl-
unnar á ísafirði hefur ákærði
fráárinu 1989sætt lókærum
fyrir ætluð umferðarlagabrot,
ölvunaróspektir. spjöll á lög-
reglubifreiðutn. tálmanir í
starfi lögreglu. líkamsárásir
og fleira.”
Síðar f dómi Héraðsdóms
segir: ..Við ákvörðun refs-
ingar í máli þessu ber að líta
til þess, að ákærði er nú öðru
sinni sakfeiidurfyrirofbeldis-
brot gagnvart opinberum
starfsmönnum við rækslu
skyldustarfa. Hann hefur
engar haldbærar skýrittgar
gefið á framferði sínu og til-
efnislausri árás á lögreglu-
þjóninn, sem teljast vcrður
gróf, þótt alvarlegir áverkar
hafi ekki hlotist af. Gefur
aldurákærða, hegðun undan-
farin misseri og framferði
hanseftir verknaðinn ekki til-
efni til að líta brot hans
mildari augum. Að þessu öllu
virtu þykja ekki efni til að
skilorðsbinda refsingu í mál-
inu, sem þykir hæfilega
ákveðin varðhald í 45 daga.”
Ákærði var dæmdur til að
greiða allan sakarkostnað.
Ákærði áskildisériögmæltan
frest til ákvörðunar um áfrýj-
undómsinstii Hæstaréttar ís-
lands. Dóminn kvað upp
Jónas Jóhannsson. héraðs-
dómari.
ísafjöröur:
-slf.
Tíu daga skíöa-
vikuútvarp
NÆSTKOMANDI föstudag, 25. mars, hefjast út-
sendingar á ísfirskri útvarpsstöð sem kennd er við
Skíðaviku’94. Útvarpsstöðinni, sem gefið hefur verið
nafnið Skíöaviku-Stjarnan, er einn af dagskrárliðum
skíðavikunnarogeraðalmarkmiðstöðvarinnarað kynna
og fylgjast með öllum þeint atriðum sem verða á skíða-
vikudögum.
Útsendingar hefjast kl. 13
á föstudaginn og eftir það
verður samfelld dagskrá frá
morgni til kvölds. Fréttatímar
verða á klukkutíma fresti alla
útsendingardaganaen megin-
hluti dagskrárinnar verður
helgaður tónlist, léttu spjalli,
getraunum sem og beinum
útsendingum frá Seljalands-
dal. Þá mun páskadagskrá
Svæðisútvarps Vestfjarða
hljóma um útsendingartíðni
Skíðaviku-Stjörnunnar sem
er FM 102,2. Útvarpsstjóri
stöðvarinnar verður Gunnar
Atli Jónsson og símanúmer
stöðvarinnar verður 5241
Gunnar Atli Jónsson
úrvarpsstjóri Skíðaviku-
Stjörnunnar