Bæjarins besta - 23.03.1994, Blaðsíða 12
Fljúgiö
meö elsta
starfandi áætlunar-
flugfélagi á íslandi
FLUGFÉLAGIÐ
ERNIRf
ÍSAFJARÐARFLUGVELU
© 4200 • □ 4688
Á ÍSAFIRÐI
SÍM!5267
BILALEIGAN
Þar sem
bílarnir skipta
um eigendur
SKEIÐI 5 • ÍSAFIRÐI
© 4300 • © 4448
ísafjöröur:
Bifreiðin var tekin upp úr ísaljarðarhöfn á sunnudag.
þannig. Afturendi bílsins stóð
enn upp úr sjónum og við
stukkum því út í sjóinn, syntum
að bryggjunni og klifruðum upp
keðjudekkin. Þegar þangað var
komið gengum við af stað upp
í bæ og fengum far hjá vegfar-
anda sem ók okkur á lögreglu-
stöðina, þar sem við fengum að
fara í heita sturtu og jafna okkur.
Það var einh ver heppnis- eða
verndarengill yfir okkur þarna.
Við félagarnir vorum mjög
samtaka og ég held að það eigi
stærstan þáttinn í því hversu
vel okkur gekk að bjarga okk-
ur,” sagði Torfi í samtali við
blaðið.
Torfi vildi koma á framfæri
þökkum til vakthafandi lög-
reglumanna fyrir góðar mót-
tökur og sérstakar þakkir vildi
hann færa Kristjáni Rafni Guð-
mundssyni, ökukennara, fyrir
kennsluna og leiðbeiningarnar
í atvikum sem þessum. „Hann
sagði mér í ökunáminu fyrir
fáum dögum hvemig bregðast
ætti við í svona atvikum og
kenndi mér rétt viðbrögð. Ég
var með hans heilræði á heil-
anum á meðan á þessu stóð og
þess vegna er ég hérna núna,”
sagði Torfi.
Bifreiðin sem er af Renault
gerð ertalin ónýt. Hún vartekin
af hafsbotni daginn eftir.
-s/hþ.
Það var einhver
eða verndarengill
yfir okkur
- segir Torfi Jóhannsson, annar tveggja 17 ára pilta sem urðu
fyrir því ohgppi að missa bifreið sem peir voru á út í ísilagða
Isafjarðarhöfn, aðfararnótt sunnudags
KLUKKAN 01.20 aðfararnótt síðastliðins sunnudags komu
tveir 17 ára piltar á lögreglustöðina á Isafirði og tilkynntu að
þeir hefðu orðið fyrir því óhappi að aka bifreið sem þeir voru
á, í sjóinn við Asgeirskant við Isafjarðarhöfn. Piltarnir voru
blautir og hraktir og voru þeir því drifnir í sturtu og þurr föt
á lögreglustöðinni á meðan aðstandendur voru látnir vita af
ferðum þeirra. Piltunum varð ekki meint af volkinu og þykir
það mikið afrek hjá þeim að komast upp á bryggjuna en um
10 stiga frost var þegar óhappið átti sér stað og sjórinn
ísilagður.
Engin vitni urðu að óhappinu
en svo virðist sem að öku-
maðurinn hafi misst stjórn á
bifreiðinni með þeim afleið-
ingum að hún lenti á landfesta-
polla og hvolfdist þaðan fram
af 4-5 metra háum bryggju-
kantinum og hafnaði á hvolfi í
sjónum. Ökumaður bifreiðar-
innar Torfi Jóhannsson, hafði
haft ökuleyfi sitt í rúman mánuð
er óhappið varð.
„Öfugt við það sem flestir
halda, þá var ég ekki með neinn
Eins og sjá má á myndinni skemmdist bifreiðin nokkuð
að utan við að lenda á pollanum en hún er talin ónýt eftir
sjóferðina.
Torfi Jóhannsson.
fíflaskap eða neitt þvíumlíkt.
Það hafa margir spurt mig hvort
ég hafi verið að taka hand-
bremsusnúning, en svo var ekki.
Ef ég hefði verið að því, þá
væri þetta allt skiljanlegt. Eg
var bara á rúntinum þama og
þegar ég ætlaði að bremsa bílinn
niður, hélt hann áfram að renna
og ég fann að ég réði ekkert við
hann. Hann rann til hliðar,
hafnaði á pollanum og kútveltist
fram af kantinum og lenti á
toppnum í sjónum.
Þetta var náttúrulega sjokk í
byrjun en annars var ég furðu
rólegur. Við vorum tveir í
bílnum. Við fórum í aftursætið,
spörkuðum upp hliðarhurðinni
og rétt náðum að opna hana
Flateyri:
Óshlföarvegur:
Persónubundin
kosning í vor?
SJALFSTÆÐISMENN á Flateyri ákváðu á fundisínum
fyrir stuttu að kanna áhuga annarra flokka og lista á
sameiginlegum lista til sveitarstjórnarkosninganna í vor.
Að sögn Eiríks Finns Greipssonar, oddvita á Flateyri hefur
verið huldinn einn fundur um þetta mál og voru undir-
tektir frekar jákvæðar. Endanleg ákvörðun um fram-
haldið verður tekin á fundi sem halda á um næstu helgi.
„Það verður vonandi gengið
frá þessum inálunt í þessari
viku. Það er fyrirhugað að
hittast í lok vikunnar til þess
að ganga endanlega frá því
hvort listarnir sem nú eiga
fulltrúa í hreppsnefndinni og
pólitísk félög hér á staðnum
vilji ganga þá leið að gánga lil
kosninga með það fy rir augum
að um óhlutbundna kosningu
verði að ræða þ.e.a.s. persónu-
bundna kosningu.
Undirtektirnar á þeim eina
fundi sem haldin hefur verið
eru í þá átt að mér finnst það
trúlegt að það verði sam-
þykkt," sagði Eiríkur Finnur.
-5.
Harður árekstur
AREKSTUR varð milli tveggja bíla Isafjarðarmegin við
Krossinn á Oshlíðinni um sex leytið síðastliðinn föstudag, er
ökumaður bíls á leið til Bolungarvíkur missti stjórn á bíl
sínum með þeim afleiðingum að bíll úr gagnstæðri átt hafnaði
á bílnum sem stóð þversum á götunni.
Engin slys urðu á fólki en
bíllinn erolli óhappinuertalinn
alveg ónýtur og hinn er mikið
skemmdur. Báðir bílarnir eru
nýlegir og af Toyota gerð. Að
sögn lögreglunnar var öku-
maður bílsins á leið til Bol-
ungarvíkur ung stúlka, og missti
hún stjórn á bílnum í djúpum
hjólförum og rann til hliðar
áfram eftir veginum og endaði
á öfugum vegarhelmingi. I því
augnabliki kom annar bíll
aðvífandi, nreðhjón innanborðs
sem jafnframt eru skyld stúlk-
unni, og komst ökumaðurinn
ekki hjá því að aka á bílinn sem
fyrir var á götunni, og þaðan á
ljósastaur. Að sögn lögregl-
unnar var það mikið mildi að
bíll hjónanna skildi hafna á
ljósastaumum því annars hefði
hann líkast til haldið áfram út í
sjó. -hþ.
OHAÐ
FRÉTTABLAÐ
r
A
VESTFJÖRÐUM
ísafjörður:
Afengi
stolið
Á FIMMTUDAG í síð-
ustu fékk lögreglan á ísa-
firði tilkynningu um að
brotist hefði verið inn í
mannlausa íbúð í Holta-
hverfi og þaðan stolið
áfengi.
íbúar hússins höfðu brugð-
ið sér frá í smátíma og á
meðan fór sá eða þeir sem
þama voru að verki inn og
létu hendur um greipar sópa.
Ekki var um mikið magn af
áfengi að ræða. Ekki hefur
neinn verið handtekinn vegna
þessa máls en grunur beinist
að ákveðnum aðilum og er
það mál í rannsókn.
ísafjöröur:
Fjöldi
upplysist
- töluvert magn
af þýfi komið í
leitirnar
SÍÐDEGIS á fimmtudag
í síðustu viku komst lög-
reglan á ísafirði á slóð inn-
brotsþjófa sem síðar leiddi
til handtöku þeirra, hús-
leita og yfirhevrslna.
Við rannsókn málsins upp-
lýstust nokkur innbrot seirt
þjófamir, seni voru þrír ungir
menn. höfðu frantið. Meðal
annars var lagt hald á talsvert
magn af þýfi sem nú er í
vörslu lögreglunnar. Hér er
m.a. um að ræða verkfæri og
biður lögreglan alla þá sern
sakna einhverra hluta sem
talið er að stolið hafi verið.
að hafa samband hið fyrsta.
Nokkrir fyrirtækjaeigend-
ur hafa fundið hiuta af sínum
eigum í góssinu en enn er
nóg el'tir sem ekki hefur tekist
að koma til skila til réttra
aðila.
RITSTJORN
4564 • AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT ® 457C