Bæjarins besta - 23.03.1994, Síða 3
MJARINS BESTA • Miðvikudagur 23. mars 1994
3
Vestfjarðamiö:
Menn eru komnir í þá aðstöðu
að þurfa að henda þorskinum
- segir Hörður Guðbjartsson, skipstjóri á Guðbjarti
STEINBITSVEIÐI Vestfirðinga hefur svo til brugðist í
vetur og er þetta önnur steinbítsvertíðin í röð sem bregst að
sögn Harðar Guðbjartssonar
Guðbjarti ÍS-16.
..Helvíti er þetta eitthvað
lélegt með steinbítinn, hann
bara fiskast ekki og það er ekki
hægt að kenna ofveiði þar um,
það er alveg á hreinu. Aður fyn-
voru togararnir að veiða steinbít
á Látragrunninu með góðum
árangri en undanfarin tvö til
þrjú ár finnst ekki nokkur
steinbítur, þetta eru aðeins
skipstjóra á skuttogaranum
nokkur stykki. Við skiljumekki
hvað er að, það bara lánast ekki
klakið hjá þessu kvikindi.
Guð minn góður. Þessar
steinbítsvertíðir sem voru hér
árum saman eru ekki orðnar
svipur hjá sjón. Menn voru fúlir
áður fyrr ef þeir fengu ekki
nema 10-12 tonn í róðri en það
telst til undantekninga í dag ef
þeirfá slíkan afla í róðri,” sagði
Hörður.
-En er ekki nægur þorskur út
af Vestfjörðum?
„Hvenær segja menn að það
sé nægt, ég veit það ekki. Menn
eru farnir að heimta svo mikið
en jú, jú. þeir fá ágætt af þorski
sem mega veiða hann. Dagrún
var nú að koma með 130-140
tonn eftir vikuna. Hún var í
þorski á daginn og að kroppa
steinbít á nóttunni. Togararnir
myndu ekki láta sjá sig á þessum
miðum ef þeir væru ekki allir
orðnir kvótalausir. Við höfum
verið að fá 5-6 tonn af steinbít
yfir nóttina og svo erum við
mát yfir daginn. Við erum bara
í hvíld yfir daginn.”
-Hvað á þitt skip eftir mikinn
þorskkvóta?
„Eg á bara Hagræðingasjóð
eftir, það eru um 60 tonn. Eg
hef forðast þorskinn frá því í
lok síðasta árs og þessi 60 tonn
dekka bara það sem er að
slæðast með af þorski. Eg sé
ekki betur en að margt skipið sé
komið í þá aðstöðu að þurfa að
henda þorski fyrir borð. Við
erum að fá 5-10 tonn af þorski í
túr og ef við ættum engan
þorskkvóta, hvað eigum við þá
að gera? Ef við komum með
þetta í land erum við sektaðir
og veiðileyfið rifið af okkur.
Þetta er alvarleg klemma sem
menn eru komnir í. Ef við erum
komnir nokkur hundruð kíló
fram yfir erum við sviptir
veiðileyfinu og það er hvergi
Hörður Guðbjartsson,
skipstjóri á Guðbjarti.
nokkurs staðar hægt að fá neitt
einasta kíló keypt. Þá sérðu nú
hvað klukkan slær,” sagði
Hörður.
-5.
ísafjöröur:
Skipar Kristinn
efstasætið hjá
krötum?
ÞRÁTT fyrir að aðeins séu
tveir mánuðir fram að sveit-
arstjórnarkosningum hafa
aðeins tveir listar sent í fram-
boði verða, verið kunngerðir.
Alþýðubandalagsmenn hafa
enn ekki birt lista sinn en ljóst
er að Bryndís Friðgeirsdóttir
mun skipa efsta sætið þar.
Kvennalistakonur hafa söntu-
leiðis ekki kunngert sína fram-
bjóðendur en nokkurra erfið-
leika mun hafa gætt innan þeirra
raða með að fá konu í fyrsta
sætið.
Sömu sögu er að segja af
Alþýðuflokksmönnum. Þar á
bæ hefur hvílt mikil leynd yfir
listanum en að sögn Eiríks
Kristóferssonar, formanns upp-
stillinganefndarflokksinsmunu
framboðsmál flokksins skýrast
innan skamms tíma. Y msir nöfn
hafa heyrst manna á meðal
varðandi efstu sæti flokksins
oghefurnafn Kristins Kristjáns-
Kristinn Kristjánsson.
sonar oftast borið á góma í efsta
sætið. Hann er sonur Kristján
K. Jónassonar, sem gegndi
starfi bæjarfulltrúa fyrir flokk-
inn um árabil. Þá hafa einnig
heyrst nöfn þeirra Oðins Bald-
urssonar, starfsmanns skrifstofu
verkalýðsfélaganna á Isafirði en
þess má geta að hann er sonur
Karítasar Pálsdóttur, núverandi
bæjarfulltrúa flokksins, svo og
einnig nafn Sigurðar Olafssonar
formanns Sjómannafélags Is-
firðinga. _v
Bolungarvík:
Valdimar skip-
ar efsta sæfið
hjá Framsókn
ERAMSÓKNARMENN
í Bolungarvík hafa sam-
þvkkt framboðslista sinn
f'yrir komandi sveitar-
stjórnarkosningar.
Listann skipa eftirtaldir
einstaklingar. 1. Valdimar
Guðmundsson. 2. Jóhann
Hannibalsson. 3. Anna Björg-
numdsdóttir. 4. Magnús
Pálmi Ömólfsson. 5. Sesselja
Bernódusdóttir. 6. Bergur
Bjarni Karlsson. 7. Guðlaug
Árnasdóttir. 8. Guðmundur
Óli Birgisson. 9. Kristlaug
Sigurðardóttir. 10. Guð-
nuindur Ragnarsson. II.
Guðmundur Sigurvinsson.
12. Pétur Jónsson. 13. Ragn-
heiður Jónsdóttir. 14. Jónas
Halldórsson.
-s.
ísafjörður:
jr
Nytt skip í flota Isfirðinga
NÝTT skip bættist í flota
ísfirðinga á fimmtudag í
síðustu viku er rækjuskipið
Hafrafell ÍS-222 lagðist að
bryggju við Sundahöfn á ísa-
firði.
Hafrafellið er 300 tonna
rækjufrystiskip sem kcypt var
frá Grænlandi í nóvember á
síðasta ári. Undanfama mánuði
hefur skipið vcrið í breytingum
í Reykjavíkurhöfn og kom í
fyrsta skipti til heimahafnar
sinnar á ísafirði á fimmtudag
Pétur Birgisson, skipstjóri
á Hafrafelli í brúnni á
nýjum vinnustað.
Hafrafell ÍS-222 kemur í fyrsta skipti til ísafjarðar á fímmtudag í síðustu viku.
eins og áður sagði. Strax við
komuna til Isaljarðar var það
gert klárt á veiðar og hélt það í
sína fyrstu veiðiferð fyrir hina
nýju eigendur á sunnudag. Sá
túr var Itins vegar stuttur því
skipið kom inti daginn eftir
vegna brælu.
Eigandi Hafrafells er Kögur-
fell hf., sem cr dótturfyrirtæki
fískvinnslufyrirtækisins Bása-
fells hf„ á ísafirði. Skipið mun
fullvinna alla rækju á Japans-
markað um borð en iðnaða-
rækjan verður unnin í Bása-
felli. Ekki fékkst uppgefið
kaupverð skipsins. Skipstjóri
á Hafrafelli er Pétur Birgis-
son, sem áður var skipstjóri á
Orra ÍS, Snorri Jónsson er I.
stýrimaður og 1. vélstjóri er
Valur Sverrisson.
-s.
Þingeyri:
Kaupfélagið skil-
aði 11 milljóna
króna hagnaði
KAUPFELAti Dyrfirðinga a Þingeyri skilaði 11,2 milljóna
króna hagnaði á síðasta starfsári. Velta fvrirtækisins var um
120 milljónir króna og reyndist hagnaðnr af reglulegri starf-
semi um 8,4 milljónir króna.
Kaupfélag Dýrfirðinga á um
63% í fiskvinnslu- og útgerðar-
fyrirtækinu Fáfni hf„ sem meðal
annars gerir út frystiskipið
Sléttanes ÍS. Mikil endur-
skipulagning hefur staðið yfir á
fjármálum fyrirtækjanna og á
síðasta ári var töluvert af
eignum selt m.a. skutttogarinn
Framnes sem fór til Isafjarðar.
Með sölu eigna og hagræðingu
tókst fyrirtækjunum að lækka
skuldir sínar um 250 milljónir
króna.
Þess má geta að Kaupfélag
Dýrfirðinga verður 75 ára á
þessu ári, en það var stofnað 8.
júní 1919. -s.
Kaupfélag Dýrfirðinga. Fyrirtækið verður 75 ára á þessu
ári og innlegg inn í afmælisárið var 11,2 milljóna króna
hagnaður á síðasta ári.