Bæjarins besta - 23.03.1994, Page 11
RÍJARINS BESTA • Miðvikudagur 23. mars 1994
11
Bolungarvík:
Vegleg árshátíð Grunn-
skólans, Tónlistarskólans
og Félagsmiðstöðvarinnar
ÞAÐ var glatt á h jalla á skemmtistaðnum Víkurbæ síðast-
liðinn laugardag þegar Grunnskólinn, Félagsmiðstöðin Tópas
og Tónlistarskólinn í Bolungarvík héldu sameiginlega árs-
hátíð, þriðja árið í röð.
Árshátíðinni var skipt í
tvennt, skemmtidagskrá sex til
tólf ára barna hófst kl. tvö en
skemmtun eldri nentenda hófst
kl. átta um kvöldið og endaði á
diskóteki. Að vanda var fjöl-
breytt efni í boði, en mikið sam-
starf er jafnan á milli þessara
þriggja aðila.
„Á fyrri sýningunni sýndu
nemendurnir m.a. viðamikið
leikverk, fluttu þulur og söngva,
sýndu free-style dansa og fleira
og dagskráin endaði á kaffi og
meðlæti. Þarna var mikill fjöldi
gesta, líklega urn þrjú hundruð
manns.
Á seinni sýningunni var m.a.
tískusýning þar sem sýndir voru
helstu straumar tískuheimsins
frá fjórða áratugnum til dagsins
í dag, sýnt var unglingaleikritið
„Óvitarnir“ í tengslum við
vímuefnavarnir, það var rappað
um nemendur og kennara,
fluttur dansannáll allt frá Charl-
eston til hip-hop, nemendur
Tónlistarskólans og Grunn-
skólans fluttu vel valin tónverk,
auk þess sem nemendur gerðu
góðlátlegt grín að öllum kenn-
urunum og fluttu brandara milli
hverra atriða. Kvöldið endaði
svo á dansleik sem stóð til kl.
tvö,“ sagði Árný Friðriksdóttir,
ein þriggja manna í árshátíð-
arnefnd. -hþ.
Við bjóðum ódýra og fljótlega prentun
í einum eða fleiri litum.
- Líttu við eða hringdu og kynntu jpér málið!
» g ■ •« | |
§5 m \//\/NI/NlfM<M/%)r4
- Dreifimiðar
- Merkimiðar á límpappír
• Fundargerðir
• Auglýsingar
• Kennsluefni
H-PRENTHF
SÓLGÖTU 9 • ÍS/AFIRÐ • SÍMAR 4560 & 4570
fleira.
Flateyri:
Flateyringar búnir með
97% borskkvóta síns
í VERINU, sjávarútvegsblaði Morgunblaðsins sem kom út
í síðustu viku er m.a. sagt frá því að Flateyringar hafi verið
búnir með um 97 % þorskkvóta síns um siöustu mánaðarmót.
Á Bíldudal var 41 % kvótans
búinn þann 1. mars og á 58% í
Bolungarvík og á Suðureyri. Á
SNERPA
BBS
í sambandi við
alheimsþorpið
Gagnabankinn
Snerpa BBS
4417
Patreksfirði var 69% þorsk-
kvótans búinn um síðustu mán-
aðamót, 73% á Tálknafirði,
77% á Þingeyri, 79% í Súðavík
og Isfirðingar voru búnir með
70% af sínum þorskkvóta um
síðustu mánaðamót.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður, fósturföður, tengdaföður og afa,
Andrésar Hermannssonar
frá Ögurnesi
Þórunn Vernharðsdóttir
Hrönn Andrésdóttir,
Davíð Guðmundsson,
Selma Antonsdóttir,
Halldór Antonsson,
Anna María Antonsdóttir,
Óli Vernharður Antonsson, Guðrún Haraldsdóttir,
og barnabörn.
Vilmundur Jónsson,
Sif Jónsdóttir,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Dagný Þrastardóttir,
Auðunn Guðmuridsson,
Gunnar
Finns
SPAUGARI síðustu
viku, Frosti Gunnarsson,
strætisvagnabílstjóri, skor-
aði á Gunnar Finnsson, raf-
virkja og hreppstjóra
Súðavíkur að koma með
næstu sögu og hér kemur
framlag hans.
Á Alþingi áttust eitt sinn
við íhaldsmaður og sósíalisti.
Deila þeirra var hörð og
óvægin og féllu mörg þung
orð þeirra á milli. Að loknum
þingfundi vildi svo til að þeir
brugðu sér samtímis á sal-
emið. íhaldsmaðurinn var á
undan inn, gekk rakleiðis inn
á klósett og læsti að sér.
Sósíalistinn kallaði þá yfir
þilið, „þótt við rífumst svona
illa í þingsal, þá getum við
nú alveg pissað hlið við
hlið!“ Þá kallar íhaldsmað-
urinn til baka, „vertu ekki
með þessi látalæti, maður!
Ég veit vel að þegar sósía-
listar sjá eitthvað stórt, þá
vilja þeir alltaf þjóðnýta
það!“
Eg skora á félaga minn,
Bjarnþór Gunnarsson, út-
gerðarmann í Hnífsdal, að
koma með næstu sögu.
öllin
við Norðurveg
GAUI...
...ÁVALLT
LANGBESTUR!
Imunglsg
myncfcancfeMga
Veðurspádeild Veðurstofu Islands
23. mars 1994 kl. 10:33
Horfur á landinu næsta sólarhring:
Stornrviðvörun: Búist er við stormi á SV-
miðum, Faxaflóaamiðum, Breiðafjarðar-
miðum, Vestfjarðamiðum, NV-miðum, V-
djúpi, Grænlandssundi, N-djúpi,SA-djúpi og
S-djúpi.
Vindur snýst til norðanáttar V-lands og
verður víðast orðið alllivasst eða hvasst undir
kvöldið. A-lands verður nokkuð hægari V-
læg átt í dag en gengur í NV-stinningskalda
eða allhvasst í nótt. í dag verður snjómugga
eða éljagangur um mest allt land en í nótt
léttir til á S- og SA-landi. Lægir í fyrramálið,
fyrst V-til. Kólnandi veður.
Horfur á landinu föstudag:
Dálítil N-átt með éljum NA-lands í fyrstu en
annars hæg brejrtileg átt og léttir til. Frost á bilinu 0
til 4 stig og hætt við talsverðu næturfrosti í
innsveitum.
Horfur á landinu laugardag:
Hægviðri og síðan hæg A-átt á landinu. Víða
léttskýjað. Heldur hlýnandi.
Horfur á landinu sunnudag:
A-kaldi og stinningskaldi og fer að þykkna upp S-
lands en áfram hægur vindur og bjartviðri í o
O öðrum landshlutum. Hiti á bilinu 2-6
stig, hlýjast SV-lands. ^
5Ó
Oska pftir hömstrum. Uppl.
gefur Astþór í stma 3654.
Tilsölu Yamaha340 ETvél-
sleði árg.’86, langur meó
bakkgfr. Upplýsingar f sfma
8285 og 8148.
Til sölu er AEG frystikista.
Upplýsingar í síma 7377.
:í Bolungarvík. Viltu
hringja t Híldi á Isafirði. Eg er
búin aðiýna núrnerínu þínu!
Bolvíkingar & nágrannar,
Verslun okkarað Skó!astig3
er opin fram að páskum
dagana 28/3, 31 /3 og 2/4 kl.
14-18. Drymla, félag harrd-
verksfólks.
2 páfagaukarí stóru búri f i
gefins. Uppl. ísíma 4330.
Til sölu er Wirichester Rani
hálfsjálfvirk ha"'"1”"'-
Einnig Yashica
myndavél með tveir
um 35-70 og 70-210
einnig 140 amperaru.—
transari. Uppl. i sima 75/
Til sðlu
gamallengóður. f
ný dekk..........
vél, fóðringa
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------i
ísafjörður:
Feröa-
ið ítrekar
beiðnir um
styrki
Á AÐALFUNDI Ferða-
málafélags ísafjarðarsvslu
sem haldinn var í síðustu
un samþykkt:
..Aðal fundnr I-crðamála-
félags ísutjarðarsvslu. hald-
tnn 15. mars 1994 skorar á
sveitarstjórnir í sýslunni sem
og bæ jarsljórnir ísaljarðar og
Bolungarvíkur að grciða
félaginu umbeðna styrki. Að
öðrum kosti sér stí/"T> f'41-
upp 1 ýsingamiðstöð fyrir
fcrðamcnn sem verið helúr
i..ÍÍSAifeiÁúi rxi
ísafjörður:
í SÍÐASTA töhihlaði var
sagt frá vandræðagangi
incð útboðsmál 3. áfanga
sorpbrennslustöðvarinnar í
Engidal í Skutulsfirði.
í fréttinni var sagt að
Eiríkur og Binar Valur hf„
hefðu átt hæsta tilboð t verkið
enþaðmun ekkiyera rétt þvf
Naglinn hf„ var með tilboð
sem varrúmlega615 þúsund
krónum hærra. Þá var sagt að
Naglinn hf., hefði verið með
2. áfanga en það ninn hafa
verið Ágúst og Flosi hf., sem
unnu það verk. Þetta leið-
réttist hcr mcð. v