Víðförli - 15.07.1982, Side 2

Víðförli - 15.07.1982, Side 2
Frá mínum bæjardyrum séð Hinar eilífu úrtöiur Þvífyrr... Pöntunarlistar þeir, er Útgáfan Skál- holt og Æskulýðsstarf kirkjunnar hafa sent til allra sóknarpresta vegna barnaefnis, ættu nú allir að vera komnir á áfangastað. Listarnir þeir ama em sendir út til að hægt sé að fá nokkra mynd af því hversu stórt upplag þurfi að vinna fyrir veturinn. Þannig er hægt að tryggja að allir fái umbeðið efni, en' enginn verði afskiptur. Það er því mjög mikilvægt að þeir prestar sem hafa gert upp hug sinn um efnisval, en ekki sent listana um hæl, geri það um leið og hentugleikar leyfa. Skilafrestur er að vísu ekki fyrr en 15. júlí - en því fyrr, þeim mun betra! Mætingamerki Auk þess nýja barnaefnis, sem verð- ur á boðstólum hjá Skálholti í vetur og getið hefur verið um í bréfkorni meðfylgjandi pöntunarlistunum, hefur verið pantað ýmislegt erlendis sem að gagni mætti koma í starfinu á komandi vetri. Má nefna að pantaðar hafa verið tvær gerðir af mætingamerkjum. Önnur gerðin er ætluð til að líma á blöð, bækur eða hvaðeina, sem við- komandi leiðbeinandi kýs. Hinni gerðinni fylgja stórar myndir sem merkin eru límd á. Einnig hafa verið pantaðar fjórar gerðir af loðmyndum, sem hafa not- ast vel í barnastarfi. Ofangreint ætti að liggja fyrir hjá Útgáfunni Skálholti í haust, verði allt með felldu yfir sumartímann. Fyrir mörgum árum, áður en ég varð prestur, hitti ég einu sinni einn af mínum gömlu og góðu deildarbræðr- um í Bankastræti. Hann var orðinn prestur úti á landi og eftir fagnaðar- kveðjur spurði ég hann af miklum áhuga hvernig starfið gengi. Hann sagði sér liði ósköp illa þótt sólin skini í Bankastræti því sumarblíðan léki svo við sóknarbörnin að þau þættust aldrei mega vera að því að koma í kirkju. Og hann útskýrði fyrir mér „hinar eilífu úrtölur" svo það hefur aldrei liðið mér úr minni. Hinar eilífu úrtölur Þegar ég gerðist sjálf prestur vissi ég að hversu ótrúlegt sem það virtist þá myndu „hinar eilífu úrtölur" fyrr eða síðar mæta mér líka. Ég finn það enda gjörla nú orðið að sóknarbörn mín, merkileg og áhugasöm sem þau eru, ætlast mjög eindregið til þess að ég haldi að mér höndum á annaríkustu tímum ársins. Niðurstaðan af samtöl- um okkar verður æ sú sama, að það sé ekki annað að gera en hafa hægt um kirkjustarfið þegar safnaðarfólk er sem ákafast að meðhöndla gjafir Guðs sér og þjóðinni til bjargar. Guðsþjónustur í góðu tómi Sjálfri mér til huggunar minni ég mig þá á að markmið mitt sé að hafa guðsþjónustur okkar þegar við fáum sem best notið þeirra, því við séum söfnuðurinn og okkar sé að skipu- leggja starf okkar, sjálfum okkur til blessunar. Samt verður mér oft hugs- að til þess í sumarfærðinni hvað nú sé gott að komast um og hversu erfitt það er oft í hálku og sköflum á vet- urna. Og svo verður það áleitin spurning við mig sem líklega alla presta, hvernig við getum betur nýtt þessa annatíma ársins til kristnihalds þótt við getum ekki haldið reglubundnar messur eins og á vetrum. Ég ræði málin við Guð og svo við sóknarbörn- in og presta, sem ég hitti. Ég les Fréttabréfið okkar af áfergju og messutilkynningar í blöðunum því þar fæ ég fréttir af starfinu hjá hinum. Mikið er ég þakklát fyrir þær hug- myndir, sem er miðlað þar og þær góðu og uppörvandi undirtektir, sem ég fæ alltaf þegar ég spyr presta nán- ar um eitthvað, sem ég gæti kannski hermt eftir þeim. Annað snið Þegar við förum að velta hugmynd- um á milli okkar er alltaf von til að einhverjar góðar áætlanir komi fram þótt sumar þeirra kunni svo að mis- takast þegar til kemur eða heppnast kannski í byrjun en verða svo úr sér gengnar. Ég sé að prestar eru farnir að hafa bænarstundir, þeir eru líka farnir að hafa lesmessur. Mér kemur í huga að bæði formin gæti ég notað þegar ekki er stemning til að kalla saman kirkjukóra og halda hefð- bundnar messur. Ég sé lika að sumir söfnuðir velja sér annan tíma til messuhalds á sumrin en sunnudag klukkan tvö. Ég fyrir mitt leyti kýs frekar kvöldtímann heldur en sunnudagsmorguninn, mér er heldur ekki fast í hendi að hafa þá helgistund á sunnudagskvöldi, hún fer jafn vel, finnst mér, á föstu- dagskvöldi eða hverju öðru kvöldi vikunnar. Út að boða Ég fékk að vera með á kirkjudögum á ísafirði fyrir páskana. Séra Jakob og fleiri úr söfnuðinum fóru ásamt for- ingjum Hjálpræðishersins og fólki úr Hvítasunnusöfnuðinum inn í frysti- húsin í kaffitímunum, sungu, sögðu frá trú sinni og buðu á samkomur kirkjudaganna. Þá varð sú von mín sterkari að bráðum myndi ég gera alvöru úr því að fara út á kartöfluakr- ana í haust og hafa örstuttar helgi- stundir fyrir sóknarbörnin mín góðu, sem eru ennþá of önnum kafin til að koma nokkurs staðar en þurfa ekki síst í öllum þeim erli á friði Guðs að halda. Kannski. . . Kannski verður þetta í haust. Og kannski hef ég þá líka framkvæmt hugmyndir mínar um persónulegt trúboð. Ég hef svo mikla trú á per- sónulegu trúboði. Ég gæti hugsað mér að fara á milli sóknarbarna minna og hvetja þau til að hugleiða trú sína, lesa Biblíuna og nota til samtala við Guð einhverja af þeim fjölmörgu stundum, sem þau eru að vinna með höndunum en geta látið hugann reika. Ég gæti gefið þeim „mannakorn" semviljatiluppörvun- ar til biblíulestrar. Kannski verður þetta. Ég þarf að nota þær stundir, sem ég hef sjálf til að tala við Guð um þetta. Og fegin fylgist ég með framkvæmdum í öðr- um sóknum. Líka hugmyndum, sem kannski verða að veruleika. Frá mín- um bæjardyrum séð er margt að ger- ast í kirkjunnni. Auður Eir Vilhjálmsdóttir

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.