Víðförli - 15.07.1982, Side 6

Víðförli - 15.07.1982, Side 6
Hópurinn, sem sótti ráðstefnuna, fyrir framan Löngumýri, þar sem hún var haldin. Á þjóðkirkjan sér eina rödd Páfinn er á f erð og flugi um heiminn og tjáir sig um hin margví slegustu ef ni, frá nánu samlífi hjóna til stríðsátaka stórveldanna. Þar virðist hljóma rödd kaþólsku kirkjunnar. Að vísu virðist þar ekki talað út úr hjarta allra kaþólskra manna, en það er önnur saga. Hjá mótmælendum hafa kirkjuþing og biskupafundir helst lagt fram skoð- anir kirkjunnar á hinum ýmsu málum, sem brenna á mannfólkinu. Eru þeir rödd kirkjunnar? Er það mögulegt, að nokkrir menn geti tjáð sig fyrir hönd nær 93% þjóðar- innar, en það er fjöldi þjóðkirkjufólks hérlendis, spyrja sumir. Stór hópur manna óskar hins vegar eftir ákveðinni afstöðu kirkjunnar til ýmissa þjóðmála, sem gæti orðið til stuðnings í flókinni tilveru nútímans. Fyrr í þessum mánuði voru nor- rænir fjölmiðlamenn á ráðstefnu á Löngumýri í Skagafirði. Þar voru annars vegar ritstjórar kirkjulegra blaða og fréttafulltrúar þjóðkirkn- anna, en einnig blaðamenn, sem fjalla um kirkjulegt efni í almenn- um fjölmiðlum. Fyrrgreind spurning var mjög á döfinni, er lagt var fram hið nýja vikublað sænsku kirkjunnar „Kyrkans Tidning". Það er í les- bókarbroti, 36 síður og hafa 50.000 manns gerst áskrifendur að því. Þetta blað leysir af hólmi allmörg fréttabréf og minni tíma- rit kirkjulegra aðila, sem fá hins vegar fastar síður í nýja blaðinu. Clarence Nilsson, dómprófastur í Uppsölum, er formaður blað- stjórnarinnar og upplýsti hann á fundinum, að leiðara blaðsins væri ætlað að vera upplýsandi, en ætti ekki að taka afstöðu í viðkvæmum málum. Hins vegar væru fastir dálkahöfundar, sem skrifuðu um slík efni undir nafni. Það hefur þó komið í ljós, að leiðarar blaðsins hefðu orðið áveðnari með hverju eintaki, og reyndar tekið ákveðna afstöðu t.d. í kvenprestamálinu. Menningarritstjóri Stavanger Aftenblad, Odd Kval Pedersen, benti á að leiðari án skoðunar væri eðli sínu samkvæmt enginn leið- ari. Betra væri þá að hafa engan leiðara eins og tíðkast í blaði norska kirkjuráðsins, Kirke Aktu- elt. Hann lagði áherslu á, að rit- stjóri kirkjulegs málgagns verður að hafa sömu stöðu, sama frelsi og sömu ábyrgð og ritstjórar annarra blaða. Annað hvort er hann rit- stjóri eða ekki. Sænskumælandi hluti finnsku kirkunnar gefur út blað, Kyrk- pressen, og er það sent á hvert heimili, sem tilheyrir því biskups- dæmi. Borga söfnuðirnir áskrift- argjaldið, sem erlágt, endakemur blaðið út í yfir 100 þúsund eintök- um. Olav Melin, ritstjóri þess, var meðal þátttakenda á ráðstefnunni og gat hann þess, hversu mikils virði það væri fyrir kirkjuna að ná þannig til nær allra heimila. Hins vegar reyndist erfitt að taka á við- kvæmum málum í blaðinu. Ef mönnum líkar ekki umfjöllun blaðsins þar, eru skipulagðar fjöldauppsagnir, sem veikja fjár- hagsgrundvöllinn. Blaðinu hættir því til að verða fremur litlítið og varla nógu athyglisvert. Þar krist- allast einn meginerfiðleiki kirkju- legs blaðamanns, sem þarf að vera trúr lögmálum blaðamennsk- unnar og eignast trúverðugleika sem slíkur, en vera einnig trúr sinni stofnun og styðja að viðgang hennar með fréttaflutningi sínum. Gagnrýni á kirkju, jafnvel jákvæð og vel meint, á erfitt uppdráttar í kirkjulegum málgögnum, sem stafar fyrst og fremst af skilnings- skorti á því, hvert er eðli fjölmiðla, sagði Olav Melin. En hver flytur rödd kirkjunnar? Ekkert eindregið svar fékkst á Löngumýri, en það var bent á hin kirkjulegu kórverk tO hliðsjónar. Þar syngja menn með mörgum og mismunandi röddum, en tO hlust- andans koma þau sem einn hljómur. Sumir hafa að vísu sóló- hlutverk, en lokastefin í stórverk- unum eru ævinlega flutt af öllum kórnum í samhljómi. GOdir ekki eitthvað svipað um rödd kirkjunnar?

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.