Bæjarins besta - 31.07.1996, Page 8
Fasteignaviðskipti
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDU
HAFNARSTRÆTI1 • ÍSAFIRÐI • s 456 3940 & 456 3244 • 0456 4547
Sólgata2:100m2einbýlishúsáeinni
hæð ásamt kjallara. Laus Verð:
6.700.000,-
Urðarvegur 24:240m2 endaraðhús
á tveimur hæðum ásamt innbyggð-
um bílskúr. Verð: 11.700.000,-
Og hér er hann kom-
inn á iand.
Aðalstrceti 19: 110 m2 5 herbergja íbúð á 2. hæð í
fjölbýlishúsi. Verð 6.800.000,-
3.800.000,-
4-6 herbergja íbúðir
Engjavegur 31: 92,1 m2 4ra her-
bergja íbúð á neðri hæð í tví-
býlishúsi. Mikið uppgerð Verð:
5.900.000,-
Fjarðarstræti 13: 80m2 4ra her-
bergja íbúð á etri hæð í tvíbýlishúsi.
Verð: 6.200.000,-
Fjarðarstræti 38: 130 m2 5 herb.
ibúð á 2 hæðum í þríbýlishúsi.
Hagstæð lánfylgja. Verð 6.500.000,-
Pólgata 5:181 m2 7 herbergja ibúð
isuðurendaá2 hæðum og risi ásamt
kjallara. Verð: 8.000.000,-
Pólgata 5A:121m2 4-5 herbergja
íbúð á neðri hæð í þríbýlishúsi ásamt
bílskúr. Verð 6.000.000,-
Seljalandsvegur 20: 119m2 4ra
herbergja ibúð á neðri hæð í
tvíbýlishúsi. Verð: 6.800.000,-
Stórholt7:116m24raherbergjaíbúð
á 2. hæð til vinstri í fjölbýlishúsi. Gott
útsýni. Verð: 7.300.000,-
Stórholt 11: 103m2 4ra herbergja
íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi ásam
bílageymslu. Verð: 7.800,000,-
Túngata 20: 90 m2 4ra herb. íbúð á
3. hæð ífjölbh. Verð. 6.500.000,-
Tangagata 20: 70m2 4ra herbergja
íbúð á neðri hæð ítvíbýlishúsi. Verð:
3.800.000,-
2ja herbergja íbúðir
Aðalstræti 8a: 63.9m2 íbúð á
tveimur hæðum í suðurenda
tvíbýlis-slu. Verð: 2.200.000,-
Sundstræti 29: 55m2 íbúð á neðri
hæðsuðurendaíþríbýlishúsi.Skipti
á stærri eiqn möguleg. Verð:
2.200.000,-
Bolungarvík:
Hólsvegur7: Einbýlishúsátveimur
hæðum.Tilboð.
Skólastígur 21: 3ja herb. íbúð á
neðri hæð í fjórbýlishúsi. Verð:
Vitastígur 19:3ja herb.íbúð á neðri
hæð í fjórbýlishúsi.
Selst á góðum kjörum. Verð:
2.200.000,-
Völusteinsstræti: 240 m2 ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
innbyggðum bílskúr. Verð:
11.000.000,-
Þuríðarbraut 9: 127 m2 einbýlis-
hús á einni hæð ásamt bílskúr. Verð:
6.900.000,-
Þjóðólfsvegur 14: Einstaklings-
íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi.
Tilboð.
Sveinbjörn þreytir 18
punda iaxinn.
Laxveiöi
Fékk 18
punda lax
við Skutuls-
fjarðarbraut
Sjötíu laxar voru
komnir á land í Laug-
ardalsá j ísafjarðardjúpi
á sunnudagskvöld,
samkvæmt upplýsing-
um sem blaðið fékk frá
Sigurjóni Samúelssyni,
veiðiverði á Hrafna-
björgum í gærdag. Því
til viðbótar hafði einn
lax veiðst úr Laugar-
bólsvatni og tveir úr
fremri ánni í dalnum.
Mjög daufar smálaxa-
göngur hafa verið í
ánni í sumar. Litlar
fréttir hafa fengist frá
Langadalsá, enda
mun veiðivörður
árinnar varla hafa sést
þar svo dögum skiptir.
Samkvæmt heimildum
blaðsins mun heildar-
laxafjöldinn þar vera
kominn í 140-145 laxa.
í Hvannadalsá munu
hafa veiðst 30 laxar,
tólf Rauðamýramegin
og átján Tungumegin.
Lax hefur veiðst á fleiri
stöðum en í hinum
hefðbundnu laxveiði-
ám við Djúþ, því á
laugardagskvöld setti
Sveinbjörn Magnús-
son, sjómaður á
Guðbjörgu ÍS-46 í tvo
laxa við Skutulsfjarðar-
braut og var annar
þeirra 18 pund að
þyngd. ,,Ég fékk stærri
laxinn, 18 þunda fisk,
á milli kl. 22 og 23 fyrir
neðan skúrinn sem
gæsirnar hafa verið
geymdar í við Skutuls-
fjarðarbraut. Hann tók
silfraðan Toby, en
hann ásamt svörtum
Toby hefur reynst best
á laxinn á þessu
svæði. Ég fékk sex
punda lax stuttu áður
við Brúarnesti og var á
leiðinni heim er ég sá
læti á Pollinum. Ég
kastaði og laxinn var á
eftir stutta stund. Þetta
var ágætis kvöldveiði,”
sagði Sveinbjörn. Fjöldi
manns fylgist með
viðureign Sveinbjörns
við laxinn á laugar-
dagskvöld og hafði
gaman af.
Fasteignir í þessari auglýsingu eru aðeins sýnishorn
af söluskrá skrifstofunnar. Allar frekari upplýsingar
varðandi söluskrá fasteigna eru veittar á skrif-
stofunni að Hafnarstræti 1,3. hæð.
3ja herbergja íbúöir
Boðið verður upp á kajakferðir um Vatnsfjörð og Breiðafjörð frá Fiókaiundi um versiunarmannaheigina.
Eitthvaö fyrir aiia um Versiunarmannaheigina á Vestfjöröum
Sandkastalakeppni og göngufferðir
Gönguferðir, kajakferðir,
sandkastalakeppni og síðast en
ekki síst dansleikir eru meðal
þess sem boðið er upp á um
verslunarmannahelgina á Vest-
fjörðum.
í Isafjarðarbæ verður yfir-
skrift helgarinnar „Friður og
ró". Gönguferðir eru um alla
dali og firði, sumar skipulagðar
með leiðsöguniönnum en aðrar
á eigin vegum. Gönguferð með
leiðsögumanni verður farin
föstudaginn 2. ágúst (siglt með
Fagranesinu á fyrsta áfanga-
stað) og er gönguleiðin -Bæir-
Sandeyri-Grunnavík-Dynj-
andi-Bæir, en komið verður
aftur til Isafjarðar 5. ágúst.
Siglingar út í Vigur og göngu-
ferðir eru daglega frá Isafirði.
Dagsferð, sigling norður í
Aðalvík og gönguferð á Hest-
eyri er góð og létt leið og mjög
eftirsótt. Sem fyrr eru siglingar
í Jökulfrði, Aðalvík, Hornvík,
Æðey og Vigur, samkvæmt
áætlunum báta og skipa er sigla
með ferðamenn, og síðan eru
sérferðir eftir áhuga gestanna.
Sandkastalakeppni verður
haldin í Önundarfirði laugar-
daginn 3. ágúst. Þetta er
fjölskylduskemmtun, ungir
sem aldnir niæta með fötur og
skóflur og hefja byggingafram-
kvæmdir á hvítri skeljasands-
strönd Önundarfjarðar. Dóm-
nefnd mun velja bestu sand-
virkin og veitt verða viðurkenn-
ingarskjöl. Þessi óvenjulega
keppni fór í fyrsta skipti fram í
fyrra og fjöldi þátttakenda fór
frani úr björtustu vonum skipu-
leggjenda. A eftir keppni
verður kaffi og „með því.“
A Hólniavík verður ýmislegt
til boða. Fimmtudaginn 1.
ágúst verður svokallaður
skemmtilestur sem heitir
Galdrar á Ströndum á Cafe Riis
kl. 21:30. Markaðsdagar hand-
verksfólks á Ströndum, sem
kalla sig Strandakúnst, verða
frá föstudegi til mánudags við
Kaupfélagið á Hólmavík. A
föstudagskvöld verður dans-
leikur í Félagsheimilinu Ar-
nesi. Hljómsveitin Húsdraug-
arnir frá Hólmavík verða að
spila á Cafe Riis. Firmakeppni
í golfi verður haldin á laugar-
deginum á Skeljavíkurvelli og
messa verður í Arneskirkju á
sunnudeginum.
Við Flókalund í Vatnsfirði
verður haldið kajakmót Flóka
Vilgerðarsonar. Létt og
skemmtileg dagskrá verður frá
fimmtudegi til mánudags þar
sem boðið er upp á hinar ýmsu
kajakferðir fyrir byrjendur sem
og lengra komna.
I Bjarkalundi í Reykhóla-
sveit verða haldnir þrír úti-
dansleikir um verslunarmanna-
helgina sem björgunarsveitin
Heimamenn stendur fyrir. A
föstudagskvöld er það hljóm-
sveitin Sólstrandargæjarnir
sem sendir sand og sumarblíðu
yfir mannfjöldann, en á laugar-
dags og sunnudagskvöld sér
hljómsveitin Hunang um
stemmninguna. A sunnudags-
kvöld og ef til vill einnig á
laugardagskvöld, munu hljóm-
sveitirnar Puntstráin og Súkkat
troða upp í Hótel Bjarkarlundi.
Á Tálknafirði verður boðið
upp á tvær skipulagðar göngu-
ferðir um verslunarmanna-
helgina. Fyrri gönguferðin
verður laugardaginn 3. ágúst
og er farið yfir í Fífilstaðadal í
Arnarfirði frá Fagradal í
Tálknafirði. Er þetta gömul „
gönguleið sem tekur um 6-7 *
tíma. Seinni gönguferðin tekur *
tvo daga og leiðsögumaður
verður Þröstur Reynisson á .
Patreksfirði. Farið verður inn •
á Svínanes sem er á milli
Skálmafjarðar og Kvígindis- .
fjarðar, en þangað hefur enginn •
komið í 20 ár.
Djúpmannabúð verður með [
kaffihlaðborð frá laugardegi til .
mánudags í tilefni verslunar- •
mannahelgarinnar, en annars
verður engin skipulögð dag-
skrá. Svipað verður upp á
teningnum í Reykjanesi, en
búist er við að fjölskyldufólk
nýti sér aðstöðuna við skólann
og nú hótelið eins og raunin
hefur verið undanfarin ár, en
þar hefur alltaf þó nokkur fjöldi
safnast sanian.
Einbýlishúsraðhús:
Árholt7:134m2einbýlishúsúrtimbri
á einni hæð ásamt bílskúr. Verð:
10.700.000,-
Engjavegur 12:210m2einbýlishús
átveimur hæðum, ásamt innbyggð-
um bílskúr. Verð: 11.000.000,-
Fjarðarstræti 38:130 m25 herb. íbúð
á tveimur hæðum í þríbýlis-húsi.
Haqstæð lán fylgja íbúðinni. Verð:
6.500.000,-
Fagraholt 2: 160m2 einbýlishús á
einni hæðásamttvöföldumbílskúr.
Tilboð óskast.
Garðavegur 1:97,6m2einbýlishús
á einni hæð ásamt 44 m2 bílskúr.
Verð: 7.900.000,-
Hafraholt 52:151,5m2 einbýlishús
úr timbri á tveimur hæðum ásamt
32,3m2 bílskúr. Laus í ágúst ‘96.
Verð: 12.000.000
Hjallavegur 19:242m2einbýlishús
á tveimur hæðum ásamt innbyggð-
um bílskúr. Verð: 12,700,000,-
Hlíðarvegur 48: 146,4m2 einbýlis-
hús á þremur pöllum. Fallegt útsýni.
Verð: 8.000.000,-
Seljalandsvegur 84a: 85m2 ein-
býlishús á einni hæð. Endurbyggt
1992. Verð: 6.900.000,-
Skólavegur9:127m2einbýlishúsá
einni hæð ásamt bílskúr. Verð:
9.500.000,-
Skipagata 11: 78 m2 einbýlishús á
tveimur hæðum Verð: 5.700,000,-
Smiðjugata 4:141 m2 einbýlishús á
einni hæð ásamt risi og kjallara.
Verð: 6.000.000,-
Hlíðarvegur 38:183,2m2 rnðhús á þremur hæðum.
Verð: 9.500.000,-
Aðalstræti 20: 98m2 íbúð á 2. hæð
t.v. ífjölbh. ásamt sérgeymslu. Verð:
7.200.000,-
Fjarðarstræti 38: 72,1 m2 íbúð í risi
í þríbýli í góðu standi. Verð:
3.600.000,-
Hlíðarvegur 27: 76m2 íbúð á efri
hæð tvíbýlishúsi ásamt 35m2
bílskúr.Verð: 5.700.000,-
Stórholt 9: 74,6m2 íbúð á 1. hæð
f.m. ífjölbýlishúsi. Verð: 5.300.000,-
Engjavegur 17:92,6m2 4ra herbergja íbúS á efri hœð í tvíbýlishúsi. Verð
7.100.000,- Einnig íbúð á neðri hæð í sama húsi. Verð 4.600.000,-
8
MIÐVIKUDAGUR 31. JULI 1996