Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.03.1999, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 03.03.1999, Blaðsíða 2
Vtgefandl: Ábyrgðarmenn: H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson Sólgötu 9, 400 ísafjörður Halldór Sveinbjörnsson Ð 456 4560 Rltstjóri: O456 4564 SigurjónJ. Sigurðsson Netfang prentsmlðju: Blaðamaður: h.prent@snerpa.is HQynur Þór Magnússon Stafræn útgáfa: Netfang ritstjómar: http:/Awww.snerpa.is/bb bb@snerpa.is Bæjarins Uesta er í samtökum öæjar- og héraðs- fréttahlaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema helmllda sé getlð. L. A Verðmæt er hver rinnandihönd Þegar sextfu manns í fiskvinnslu missa atvinnuna á einu bretti hriktir í stoðum ekki stærri vinnumarkaðar en ísafjörður er. Engan þarf að undra þótt menn setji ýmist hljóða eða kjarnyrði hrjóti af vörum líkt og hjá Pétri Sig- urðssyni, forseta Alþýðusambands Vestfjarða, sem kvað ósköpin náttúruhamfarir af mannavöldum. Uppsagnir starfsfólks í fiskvinnslu á Isafirði ættu ekki að koma á óvart frekar en aðrar uppsagnir í þessum geira atvinnulífsins. Meðan sú stefna rfkir að þjappa því sem fiskimiðin gefa af sér á sem fæstar hendur og þau viðhorf ríkja meðal hinna útvöldu handhafa gæðanna að engu máli skipti hvar aflinn berst að landi, er ekki við öðru að búast. Hagsmunum stórútgerðarinnar, þar sem þúsundum milljóna er varið í skip sem aldrei þykja nógu öflug og búnaður þeirra aldrei nógu afkastamikill, verður ekki fórnað fyrirpeð. Frystihúsa-jón og gunna getabara mokað snjó, en það snjallræði fundu menn upp á kreppuárunum. I litlu samfélagi telur hver sú hönd mikið sem dæmd er úr leik. Þess vegna telja líka ný störf mikið þótt fá kunni að vera. Fyrir hálfu öðru ári, þegar einna mest var tekist á um flutning Landmælinga ríkisins til Akraness, vöktum við athygli á því að Landshelgisgæslan myndi sóma sér vel á Isafirði. Hér er góð höfn. Isfirsk fyrirtæki í stakk búin til að þjóna skipum gæslunnar, að því undanskyldu að hér verða þau ekki tekin í slipp. A vetrum reynir hvergi meira á skip gæslunnar en úti fyrir Vestfjörðum. Þá er gott að heimahöfnin sé nærri. Og Landhelgisgæslan er ekki ein af þeim stofnunum sem menn þurfa í tíma og ótíma að hendast til Reykjavíkur til að sinna erindinum í. Tæknilega séð er engin þörf á að hún sé í Reykjavík. Síð- an sögðum við: ,,Er ekki tímabært að bæjarstjórn Isafjarðarbæjar, þingmenn kjördæmisins og sjómanna- samtök hér um slóðir láti í sér heyra. Þessum aðilum ætti ekki að vera ofraun að hugleiða málið, sem áreiðanlega er hagsmunamál fyrir Vestfirðinga.” Man einhver eftir viðbrögðum þessara aðila? Þau hafa ekki verið plássfrek á síðum BB og blaðinu er ekki kunn- ugt um að þau hafi íþyngt öðrum blöðum og fjölmiðlum. Ætli megi ekki orða það svo að hingað til hafi viðbrögðin hvorki náð því að vera stuna eða hósti. En, hver veit nema að eyjólfar framboða til Alþingis taki að hressast þegar vora tekur. Og kannski tekur bæjarstjórnin málið á dagskrá þegar atvinnuástandið ber næst á góma. Vestfirðingum veitir ekki af að fjölga árum í þeim lífróðri sem bíður þeirra til varnar byggð í fjórðungnum. s.h. OUÐ VIRUNNAD Jón í sögunni af Jóni miðskipsmanni er í upphafi greint frá fæðingu drengsins og skírn. Faðirinn vildi láta hann heita Jón en móðirin andmælti: Þetta út-þvælda nafn! Faðirinn svaraði: Það sýnir bara vinsældir þess! Og hann réð. Nafnið Jón er til í ótal útgáfum. Fyrsti heimsfrægi maðurinn með því nafnier Jóhannes skírari. Síðan má nefna Jóhannog Jóan, Jóvan, John, Jean, Giovanni. Hannes o.s.frv. I Söguþáttuin landpóstanna getur að lesa merkar ættarakningar í Skafta-fellssýslum. Flestir karlmenn þar báru nafnið Jón Jónsson en flestar konur hétu Guðrún Jónsdóttir. A meðan hétu Vestfirðingar Híerónýmus eða Tímóteus, Hannibal, Þeófílus eða Nikódemus. Munur á frumleika eftir landshlutum? Aivariegir áfellisdómar varðandi yfirstjó\ „Ge — rræðisleg v - alvarlegar villur í framlegðarútrei Skýrsla „Þríhöfða" (Elías- ar Oddssonar, Gunnars Þórðarsonar og Rúnars Guð- mundssonar) um rekstur Is- húsfélags ísfirðinga hf. var lögð fram á stjórnarfundi fé- lagsins 2. febrúar sl. Þar var lýst hugmyndum þeirra um brýnustu úrbætur í fram- leiðsluþætti fyrirtækisins og tekið á ýmsum þáttum vinnslunnar, svo sem stjórn- un, yfirsýn og ábyrgð stjórn- enda, starfsmannahaldi, flæði vinnslunnar og teng- ingu ákvarðana varðandi fjármál og framleiðslu. Afl- að var upplýsinga úr öðrum fiskvinnslum til samanburð- ar. Einnig var samið skipurit fyrir fyrirtækið, allt frá stjórn til óbreyttra starfsmanna, og samdar starfslýsingar. Sam- in voru flæðirit og gerðir út- reikningar á framlegð ým- issa afurða. Tap íshúsfélagsins af reglulegri starfsemi árið 1997 var um 125 milljónir króna. Eftir átta mánaða uppgjör 1998 kom síðan í Ijós að þar munaði um 55 milljónum frá því sem stjórninni hafði áður verið kynnt. í staðinn fyrir bætta afkomu og ásættanlega reyndist staðan vera al lt önn- ur. Þetta mun hafa verið í annað skipti á árinu sem fyrir stjórnarmenn voru lagðar rangar tölur. Samkvæmt heimildum blaðsins Iagði Gunnar Þórð- arson til í nóvember sl. að öllum starfsmönnum félags- ins yrði sagt upp og farið yrði í vinnu til að finna fyrirtækinu rekstrargrundvöll. Þegar sá grundvöllurlægi fyriryrði síð- an endurráðið eftir þörfum. Ef rekstrargrundvöllur til framtíðar fyndist hins vegar ekki gæti kornið til lokunar vinnslunnar um tíma eða var- anlega. Hann mun einnig hafa viljað taka á ný upp þráðinn við Hraðfrystihúsið hf. um sameiningu eða samvinnu fyrirtækjanna. I kjölfar Þríhöfðaskýrslunn- ar urðu þær breytingar á yfir- stjórn Ishúsfélags Isfirðinga, eins og áður hefur komið fram hér í blaðinu, að aðalstjórnin lét af störfum (Magnús Reynir Guðmundsson stjórnarfor- maður, Gunnar Þórðarson og Jón Kristmannsson) en vara- stjórnin tók við (Guðni Geir Jóhannesson stjórnarformað- ur, Jón Olafur Þórðarson og Kristján G. Jóhannsson). Einn fráfarandi stjórnar- manna, Gunnar Þórðarson, rit- aði skýrslu dags. 12. febrúar sl. í tilefni „afsagnar" sinnar. Þar kemur fram, að á síðasta aðalfundi félagsins í maí 1998 hefði verið frá því gengið að hann kæmi inn sem aðalmað- ur í stjórn. A þeim fundi benti hann á að bókfært tap af reglu- legri starfsemi á árinu 1997 hefði verið um 125 milljónir króna og rekstrartapið síðan 1994 þegar Gunnvör eignaðist íshúsfélagið væri þar með komið í nærri hálfan milljarð. Gunnar gerði alvarlegar at- hugasemdir varðandi afkomu og stjórnun fyrirtækisins en fékk engar undirtektir fundar- manna, jafnvel þótt allir stjórnarmenn Gunnvarar væru á fundinum. Um stjórnarfund sem hald- inn var 12. júní 1998 segir í skýrslu Gunnars: „Eins og á aðalfundinum komu gögnin talsvert eftir að fundurinn hófst og hafði afkoman rýrnað um rúmar 20 milljónir króna og afkoman orðin að 12 millj- óna tapi. I ljós kom að starfs- menn félagsins voru fullkom- lega ófærir um að vinna þá vinnu sem þeirn var falið og reyndust bæði framlegðarút- reikningar og bókhald vera vitlaust." Enn segirí skýrslunni: „Nýr maður var ráðinn sem fram- leiðslustjóri í lok ágúst, Elías Oddsson. Að vísu hafði hann það skrýtna hlutverk að vera stoðdeild frá framkvæmda- stjóra og án allra valda. Þetta var hluti af meginvandamáli fyrirtækisins sem var stjórn- arseta „frystihússtjórans" sem stjórnarmanns... En eitt gott hlaust af ráðningu Elíasar, sem urðu vandaðir framlegð- arútreikningar sem hafa verið gerðir síðan í byrjun septem- ber. í lok október lágu fyrir bókhaldstölur um að afkoma fyrirtækisins fyrstu átta mán- uðina hefði batnað verulega. Með sama áframhaldi yrði um hagnað að ræða á árinu 1998 og hægt að tala um algjöran viðsnúning í rekstrinum. Þetta var meðal annars kynnt á fundi með yfirmönnum íslands- banka sem stjóm Gunnvarar átti með þeim í Reykjavík. Þegar hins vegar endurskoð- andi fór yfir tölurnar kom í ljós skekkja upp á 55 milljónir króna. Til að reyna að láta þetta líta betur út ákváðu stjórnarformaður og fram- kvæmdastjóri að láta gera tíu rnánaða uppgjör í stað átta... Tapið reyndist verða 78,1 milljón sem gerir 93,7 millj- ónir á ársgrundvelli." Varðandi afsögn aðalstjórn- arinnar segir síðan í skýrsl- unni: „Stjórn Gunnvararkem- ur saman kl. 18 á föstudags- kvöldið [5. febrúar sl.] og um kl. 21 hringir Jón Ólafur í undirritaðan með þær fregnir að það sé vilji stjórnar Gunn- varar að aðalstjórn íí segi af sér og varastjórn taki við. Jón Kristmannsson og M.R.G. neiti að segja af sér nema und- irritaður geri það líka. Ekki var minnst á þá staðreynd, að þessi gjörningur hafði þegar verið gerður og það án þess svo mikið að bera það undir undirritaðan. Þannig séð er allur sá gjörningur ólöglegur. Undirritaður bregst illa við þessu og segir að ekki komi til greina að skrifa undir af- sögn án þess að tvennt komi til: Að hann verði virtur af Auókúlu-, Mýra- og Þingeyrarhreppar hinir fornu íbúasamtök stofnuð - Ragnheiður Ólafsdóttir kjörin fyrsti fnrmaður „Menn skyldu minnast þess, að alþingismenn, bæjar- fulltrúar og bæjarstjóri starfa í umboði fólksins á svæðinu - þeir eru þjónar okkar en við ekkiþjónarþeirra. Það ermik- ilvægt að þessir aðilar standi saman og vinni saman að upp- byggingu byggðanna hér - ef ekki nú, þá hvenær? í ljósi atburða undanfarinna ára er fólk enn með ugg í brjósti vegna atvinnumála á Þingeyri og reyndar á öllu félagssvæði okkar“, segir Ragnheiður Ólafsdóttir á Þingeyri, fyrsti formaður hinna nýstofnuðu íbúasamtakafyrrumAuðkúlu- hrepps, Mýrahrepps og Þing- eyrarhrepps. „Þess má minnast, að þegar Fáfnir fór endanlega á hausinn á sínum tíma, þá sögðu þing- mennirnir okkar og yfirvöld sveitarfélagsins að við yrðum bara að sjá um málin sjálf. Manni finnst þetta svolítið skondið, vegna þess að þegar Breiðdalsvík og Djúpivogur voru að lenda í sambærilegum hremmingum fyrir stuttu, þá voru þingmenn strax daginn eftir komnir til fundar við stjórnendur og áður en varði var búið að koma hjólum at- vinnulífsins af stað á ný. Það voru þingmenn Austfirðinga og ráðherrar sem þá brugðust hart við. Þingmennirnir okkar hér vestra og bæjarstjórnin hér mættu hugleiða þetta“, sagði Ragnheiður. Samtök þessi voru stofnuð á mjög fjölsóttum fundi á Þingeyri sl. sunnudagoghlutu nafnið íbúasamtökin Atak. Fundarstjóri var Þórir Örn Guðmundsson og fundarritari Guðmundur Friðgeir Magn- ússon. RagnheiðurÓlafsdóttir setti fundinn en Sigmundur Þórðarson kynnti aðdragand- ann að stofnun samtakanna. í samþykktum félagsskap- arins segir m.a. að tilgangur hans sé að hlúa að og efla byggð á félagssvæðinu, vinna að hagsmuna- og framfara- málum, auka samhug og sam- starf íbúanna og vinna að fegr- Ragnheiður Ólafsdóttir. un og umhverfisvernd. í því skyni verði leitað samstarfs við bæjaryfirvöld, ríkisvaldið, fyrirtæki, félög og einstakl- inga. Ragnheiður Ólafsdóttir var kjörin formaður Átaks en Sig- mundur Þórðarson varafor- maður. Aðrir í aðalstjórn eru Unnur Sigfúsdóttir, Sævar Gunnarsson og Auðbjörg Halla Knútsdóttir. Fram komu níu tillögur að nafni á sam- 2 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1999

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.