Víðförli - 15.12.1984, Blaðsíða 3

Víðförli - 15.12.1984, Blaðsíða 3
Fyrstu niðurstöður í könnun r á gildismati Islendinga: Trúhneigð í jarðsambandi Könnun Hagvangs á gildismati og lífsviðhorfum íslendinga hefur að vonum vakið mikla og verð- skuldaða athygli. Hvort tveggja er, að könnun svo víðtæk sem þessi er nýmæli hér á landi, og hér gefst okkur íslendingum tækifæri til að gera nokkurn samanburð á, hvað er skylt og hvað óskylt með okkur og öðrum þjóðum. Ég mun á þessum vettvangi ein- ungis fjalla um þær niðurstöður, sem nú liggja fyrir um trúarlíf ís- lendinga. Þá vil ég fyrst nefna og árétta, að einungis eru nú handbærar fyrstu niðurstöður. Mun gleggri og um margt áhugaverðari vitneskja mun þá fyrst verða tiltæk, þegar svör við hinum trúarlegu spurningum hafa verið tengd svörum við spurning- um, sem varða aðra hluti, t.d. við- horf til fjölskyldu og hjúskapar, fóstureyðinga, vinnunnar, frelsis og jafnréttis o.s.frv. Að hve miklu leyti má greina fylgni á milli við- horfa til slíkra veraldlegra fyrir- bæra og trúarlegra viðhorfa? Með öðrum orðum sagt, hvert er jarð- samband þeirrar sterku trúhneigð- ar, sem könnunin vitnar um? Hvar innan þeirrar heildarmyndar, sem við getum nefnt heimsmynd eða lífsviðhorf íslendingsins, finnum við trú hans, andspænis hverju verður hún virk eða óvirk. Ég verð að játa, að mín fyrstu viðbrögð eru á þá leið, að trú íslendingsins komi þá skýrast í ljós, þegar athyglin beinist frá þessu okkar jarðneska lífi til lífsins eftir dauðann. En þá ber þess að geta, að það er slagsíða á könnuninni sjálfri hvað þetta mál snertir. Það er spurt um lífið eftir dauðann, himnaríki og helvíti, sál- ina (ódauðlegu?), samband við látna. Minna er spurt um þetta líf, þegar trúin á í hlut. Þeim mun brýnna verður þess vegna að leita eftir öðrum leiðum, eins og að framan getur, að trúarlegum við- horfum til jarðlífsins. Það er þá full ástæða til að fara að með mikilli gát, þegar ályktanir eru dregnar af niðurstöðum könn- unarinnar um trúarlífið. Ekki aðeins er hér um fyrstu niðurstöður að ræða, heldur ber einnig að hafa í huga, að könnunin snýst að lang mestu leyti um önnur mál en trú- mál. Til þess að verða einhvers verulega vísari um þann víðfeðma málaflokk þarf sérstaka trúarlífs- fræðilega könnun, og þá vísast fleiri en eina, sem væri með allt öðru sniði. En þrátt fyrir þá annmarka, sem benda má á varðandi gildi þeirra upplýsinga, sem nú liggja fyrir, er fyllilega tímabært að leggja nokkur orð í belg um niðurstöðurnar. Óhætt er að fullyrða að íslend- ingar eru í samanburði við aðrar vestrænar þjóðir óvenjulega trú- hneigð þjóð, „religiös”. Sú afhelg- un veraldar, „sekularisering”, sem svo mjög setur svip sinn á ýmsar aðrar iðn- og tæknivæddar þjóðir, virðist hér á landi vera mun skemmra á veg komin. Vafalítið ræður í því efni talsverðu nábýlið við náttúruöflin, oft óblíð. Spurn- ingar um hinstu rök lífs og dauða verða áleitnari við slikt nábýli held- ur en í veröld, sem pakkað er inn í plast, gler og stál. En einnig mætti nefna sem hugsanlega skýringu, að hér á landi hefur breytingin frá samfélagi bænda og sjómanna til nútíma iðnaðarþjóðfélags gerst með svo miklum hraða, að við höf- um ekki haft tíma til að afhelgast, til að glata trúnni. Spurningin er, hvort nokkuð muni til þess koma úr þessu!. Ekki verður svo skilið við þetta Dr. Björn Björnsson. mál, að ekki sé minnst á kirkjuna og hennar hlut. Kirkjan nýtur trausts, en talsvert virðist á vanta, að það traust beri ávöxt í þátttöku fólks í kirkjulegu starfi. Kirkjan nýtur trausts, en fjarska virðast hugmyndir fólks um kristna kenn- ingu vera á reiki. Þegar spurt er um Jesúm Krist, svo dæmi sé tekið, verður fátt um svör. Ecclesia semper reformanda. Kirkjan á að vera í stöðugri endur- nýjun. Nú er tilefnið, tíminn og tækifærið. Sú endurnýjun hlýtur að taka til starfshátta kirkjunnar, sem um margt eru hindrun í því að virkja þann velvilja og það traust, sem fólkið í landinu ber til kirkjunnar. Og sú endurnýjun hlýtur að beinast að boðunar- og fræðslustarfi kirkj- unnar, þar sem sérstakt átak yrði gert í því skyni að efla fullorðins- fræðslu í söfnuðum landsins. Margt er nú þega vel gert á þessum sviðum báðum. En betur má ef duga skal, miklu betur. VfnF^RT T _ 3 / J

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.