Víðförli - 15.12.1984, Síða 4

Víðförli - 15.12.1984, Síða 4
Heimsókn í Póllandi Vísitasía í Kaupmanna Herra Pétur Sigurgeirsson biskup greinir í samtali við Víðförla frá minnisverðustu þáttum ferðar bisk- upshjóna til Póllands í boði sam- kirkjuráðsins þar, 23.-25. nóv., og þaðan til Danmerkur að vísitera ís- lenska söfnuðinn þar. Við vorum 10 daga í ferðinni, þannig að við vorum ytra um tvær helgar, i sitt hvoru landinu og hvi- líkar andstæður. Fyrri laugardag- inn vorum við í Varsjá við gröf séra Populescos í viðkvæmustu kviku heimsmálanna í dag, þar sem ófrels- ið blasti við í allri sinni nekt og sýndi að dagar píslarvættisins eru ekki liðnir. Seinni laugardaginn vorum við í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaup- mannahöfn. Minning hans sýndi hvernig frelsið gat náð fullkomlega fram að ganga í gegnum hans starf, svo að landið okkar varð frjálst og fullvalda ríki. Okkur er það ljóst eftir þessa ferð að við íslendingar metum það eng- an veginn sem skyldi að lifa í frjálsu landi. Það ná engin orð yfir þau réttindi að fá að búa við það frelsi sem við njótum. Við kynntumst nokkuð trúar og menningarlífi Pólverja þessa daga, vorum gestir kaþólska biskupsins í Varsjá og heimsóttum m.a. þær stjórnarskrifstofur sem annast kirkjuleg málefni önnur en ka- þólsku kirkjunnar. Þar kom fram að ríkið vill hafa vinsamleg sam- skipti við kirkjuna en þolir ekki af- skipti hennar af málum ríkisins. Þar ætti ríkið eitt að hafa áhrif og úr- skurðarvald. Hann lagði áherslu á erfiðleika Pólverja eftir stríð hversu uppbyggingin kostaði mikil átök, Við leiði séra Populescos. þar urðu og mistök, iðnaður fékk forgang umfram landbúnað, og þessvegna varð matarskortur og miklar skuldir við Vesturveldin. Ein eftirminnilegasta stundin í Póllandi var við leiði séra Popu- lescos. Ég bað um að koma þangað og það fékkst þótt ekki væri það á dagskrá okkar. Það var suddaveð- ur, en mikill þögull mannfjöldi fór í röð framhjá blómum skrýddri gröf- inni. Þessi stund var átakanlega sár fyrir alla nærstadda. Inni í kirkj- unni var ljósum og blómum skrýtt og stór mynd af séra Populesco framan á prédikunarstólnum. Það var uppörvandi að sjá hið kraftmikla starf Biblíufélagsins í Póllandi, það er dreift rúml. 100 þúsund biblíum á ári. Skrifstofan var eins og bögglapóststofa fyrir jól hér heima svo að það er engin fyrir- staða á útgáfu og dreifingu Biblí- unnar. Lúterska kirkjan er lifandi eins og aðrar kirkjur í Póllandi. Fólk finnur frelsi í gegnum kirkjuna sem ekki er utan hennar. Eftirminnilegt fannst mér að heyra af könnun sem gerð var við kaþólska háskólann í Lublin. Þar kváðust 90% unga fólksins á aldrinum 15-19 ára til- búnir að deyja fyrir trú sína en 4,5% fyrir ríkjandi stjórnarmynst- ur. Þarna er um ákveðna vísbend- ingu að ræða. Framkvæmdastjóri Samkirkju- ráðsins Dr. Zdgislaw Pawlik á miklar þakkir skildar fyrir skipulag heimsóknarinnar. Hann lagði mikla áherslu á þökk Pólverja fyrir hjálp- arstrarfið, enda var boðið og heim- sóknin í tilefni þess að hjálparstarf- inu er nú að ljúka. Við guðsþjónustu í lútersku kirkjunni í Varsjá, þar sem ég pré- dikaði, var ég beðinn að flytja ís- lensku þjóðinni þakkir fyrir hjálp undanfarinna ára „hin útrétta hjálparhönd frá íslandi studdi hlut- fallslega mest í erfiðleikum okkar” sagði talsmaður þess stóra safn- aðar. í Póllandi vorum við borin á höndum og vandlega séð um að dvölin þar yrði okkur sem ánægju- legust. 4 — VÍÐFÖRT T

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.