Víðförli - 15.12.1984, Side 6

Víðförli - 15.12.1984, Side 6
Tutu biskup fær friðarverðlaun Nóbels Mót kúgun með bros á vör „Þessir menn fara inn og út af fangelsum eins og þið farið í og úr sturtu” sagð ræðumaður hásri röddu sinni og þingheimur skelli- hló. Þó var málefnið langt frá því að vera hlægilegt — Apartheid og kúg- un svarta meirihlutans í S.-Afríku. En ræðumaðurinn Desmond Tutu biskup kunni þessa miklu list að blanda saman gleði og alvöru á svo meistaralegan hátt að boðskapur hans komst enn betur til skila. Hann þekkti „hinn blessaða létti hlátursins,, sem opnar eyru sem huga fyrir varnarorðunum sem gerði mönnum ljósar grimmd og óhugnað aðskilnaðarstefnunnar, og ekki síður niðurlægingu þeirra sem hana framkvæma. Þetta var á Heimsþingi Alkirkju- ráðsins í Vancouver í fyrra. Tutu biskup sem átti að vera einn af aðal- ræðumönnunum, fékk ekki vega- bréfsáritun fyrr en eftir dúk og disk, komst til þingsins á næstsíð- asta degi og hélt þá ræðu í helgi- tjaldinu sem seint gleymist. Ekki gleymist persónan heldur, lágvaxinn, kvikur í hreyfingum, grásprengt hár og glettnisglampi í augum. Og nú hefur hann fengið Friðarverðlaun Nóbels. Joachim Fischer, starfsmaður Hjálparstofnunar kirkjunnar, minnist Tutu með eftirfarandi orð- um. Útvarp Vatikansins kallaði hann „kjarkmikinn baráttumann gegn kynþáttamisrétti”, Biskupafundur kaþólsku kirkjunnar í Suður Afríku lét í ljós mikla þökk fyrir „óþreyt- andi baráttu hans fyrir réttlæti og friði í Suður Afríku”. Hér hlýtur viðurkenningu maður sem er óvinur ríkisins í augum eigin stjórnvalda, hann hefur ekki kosn- ingarétt i eigin landi, hann hefur ekki fengið vegabréf, en ferðaskil- ríki hans tjá þjóðerni hans sem óþekkt. Tutu biskup er mér einstæður maður. Styrkur hans og óbilandi trú á að maðurinn búi þrátt fyrir allt yfir heilbrigðri skynsemi er með ólíkindum. Hann predikar um frið, þegar suður afrísk „öryggisvarsla” lætur skjóta svört börn, konur og karla, eins og gerðist í október s.l. Hann boðar sáttargjörð, þegar hóp- ur svarts fólks er tekinn með valdi frá heimilum sínum, svift ríkis- borgararétti í S.-Afriku og „hent” inn í svonefnt Bantu fríríki. Hann undirstrikar með öllum sínum þunga að kærleikur og umhyggja kirkjunnar verði að umvefja bæði svart og hvítt fólk, meðan hvíti minnihlutinn fótumtreður frumlæg mannréttindi hinna svörtu sam- borgara. í því eldfima andrúmslofti S.-Afríku sem mótast æ meir af of- beldi, er Desmond Tutu einn hinna örfáu svörtu foringja er njóta al- mennrar viðurkenningar, sem enn er fús að semja við ríkisstjórnina til þess að forða þeirri helför sem hann telur að sé óhjákvæmileg og nærri, ef ekki verði að gert. Það er sannfæring Tutu biskups sem og allra svartra og margra hvítra manna í S.-Afríku, að Apart- heid sé jafnillt sem nazismi og kommúnismi. Jafn siðlaust sem þrælahald og sé guðlast þar sem það svívirðir þann tilgang guðs að skapa menn og konur í sinni eigin mynd. Andstaða kirkjunnar og Tutus biskups gegn Apartheid er al- farið byggð á guðfræðilegum rök- um. Þar er ekki verið að blanda saman trú og pólitík, þótt afstaða þeirra hafi að sjálfsögðu pólitískar afleiðlingar. Fyrir nokkru var Tutu biskup kallaður fyrir hina svonefnda Eloff nefnd sem kannaði starfsemi Kirkjusambands S.-Afríku; þar sagði hann m.a. „Þeir geta losað sig við Tutu, þeir geta lagt niður sam- tök kirkjunnar, en ætlunarverk Guðs að koma á ríki sínu þar sem kærleikur, réttlæti og umhyggja ríkir, verður ekki bælt niður” Og við annað tækifæri sagði Tutu: „Fagnaðarerindi Guðs sem knýr okkur til þess að berjast gegn Apartheid sem óguðlegu ástandi, er hið sama fagnaðarerindi sem kallar okkur til starfa fyrir frið réttlæti og sáttargjörð” 6 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.