Víðförli - 15.12.1984, Side 8
Kirkjuþingið 1984
Aldrei meiri málafjöldi
4UÍ iá .
Verkfallið olli því að Kirkjuþing
þjóðkirkjunnar hið 15. í röðinni var
haldið hálfum mánuði síðar en ætl-
að var. Því lauk 8. nóvember og
hafði þá staðið í 10 daga, eins og
lög gera ráð fyrir eftir að farið var
að halda þingið árlega.
Allir kirkjuþingsmenn komu til
fundar nema séra Sigurður Guð-
mundsson vígslubiskup. Varamað-
ur hans, sr. Birgir Snæbjörnsson á
Akureyri sat þingið.
Alls voru 41 mál lögð fyrir þingið
en eitt var tekið af dagskrá, þannig
að 40 mál voru afgreidd. Það voru
iangir vinnudagar á þinginu í Hall-
grimskirkju, enda ekki áður fjallað
um jafn mörg mál.
Hér á eftir verður minnst á helstu
málaflokka þingsins, og tiplað á
flestum þeim málum sem hlutu af-
greiðslu. Er um leið vísað til Gerða
Kirkjuþings, sem fáanleg verða inn-
an tíðar á Biskupsstofu og hefur að
geyma öll mál, álitsgerðir og grein-
argerðir þingsins ásamt niðurstöð-
um.
Starfsmenn kirkjunnar
Eitt helsta mál Kirkjuþings var
svonefnt Starfsmannafrumvarp
kirkjunnar, sem einnig var fyrir
þinginu í fyrra og ýmsir kirkjulegir
aðilar hafa fjallað um. Frumvarpið
fjallar um störf, skyldur og réttindi
hinna ýmsu starfsmanna kirkjunn-
ar. Eru þar sett á einn stað ýmis lög
og mörg felld úr gildi, allt frá 1621,
en nýir liðir teknir upp. Þar er gert
ráð fyrir þremur þiskupum íslensku
kirkjunnar. Ákvæði eru um ráðn-
ingu ellimálafulltrúa, forstöðu-
manns starfsins að Löngumýri og
sjúkrahúsprests, en um þann síðast-
nefnda eru 14 ára gömul lög, en
fjármagn hefur ekki fengist enn.
Auk þess er kveðið er á um ráðn-
ingu ýmissa presta í sérþjónustu,
sem nú eru þegar í starfi.
Nokkrar aðrar tillögur um starfs-
menn kirkjunnar voru samþykktar
á Kirkjuþingi, m.a. að ábyrgðar-
störf og verkefni kirkju dreifist á
sem flestar hendur. Ennfremur að
sérstakur starfsmaður verði ráðinn
á Biskupsstofu til að annast fjármál
kirkjunnar. Kirkjuþing lýsir
áhyggjum yfir versnandi kjörum
presta, sem veldur því að margir
geta ekki gefið sig óskipta að prests-
starfinu, heldur verða að gegna
aukastörfum.
Einnig var samþykkt að kanna
stöðu launaðra óvígðra starfs-
manna og rétt þeirra til eftirlauna
og annarra þátta. Hefja skal undir-
búning að sérstakri leikmanna-
stefnu kirkjunnar, þar sem leik-
menn fjalli um þau kirkjumál, sem
þá skiptir mestu.
Félagsleg þjónusta kirkjunnar
Meðal þeirra mála sem Kirkju-
þing samþykkti var 5 ára átak í
öldrunarþjónustu kirkjunnar. Fjall-
ar það um aðbúnað aldraðra sem og
fræðslu þeirra sem þjónustuna veita
og þeim til handa er aðhlynningar
skulu njóta. Er gert ráð fyrir að
starfsmaður verði ráðinn í hluta-
starf til skipulagningar þessa átaks.
Lausn dagvistunarvandans er brýnt
mál og kallar á alla aðstoð kirkju og
safnaðanna, sagði flutningsmaður
tillögu um það efni. Benti hann á að
önnur trúfélög svo sem kaþólski
söfnuðurinn og Ananda Marga
rækju dagvistir. Einnig hefur kirkj-
an um áraraðir gefið börnum kost á
dvöl í sumarbúðum. Kanna þarf
hversu kirkjan getur aðstoðað í
þessum vanda foreldra og barna, og
tekist á við það.
Nokkur málþing hafa verið hald-
in í Skálholti, þar sem fólk úr ólik-
um hópum þjóðfélagsins hefur
8 — VÍÐFÖRLI