Víðförli - 15.12.1984, Blaðsíða 12

Víðförli - 15.12.1984, Blaðsíða 12
Af héraðsfundum og fleiru Héraðsfundir prófastsdæmanna 15 eru haldnir á haustmánuð- um. Þangað koma fulltrúar safnaðanna og sóknarprestar, gefa skýrslur um kirkjulegt starf heima fyrir og ræða málefni kirkjunnar almennt. Prófastur stýrir héraðsfundi. Víðförli ræddi við nokkra prófasta og spurði frétta. s Sr. Sigmar Torfason Leikmenn koma mikið til liðs. —Við héldum héraðsfundinn að hluta til með Austfjarðaprófasts- dæmi. Við komum saman á laugar- deginum 25. ágúst á Seyðisfirði og funduðum fram eftir degi með okk- ar sérmál í Múlaprófastsdæmi, en síðdegis vorum við allir saman og fjölluðum um sameiginlegt mál: Ár Biblíunnar. Séra Magnús á Seyðis- firði flutti þar gagnlegt erindi um notkun þeirrar góðu bókar og um- ræður urðu góðar. Á sunnudags- morgni var messað en eftir hádegi fórum við öll til Hjaltastaðakirkju og þar var fagnað 100 ára afmæli hennar. Við gerum það gjarnan að tengja héraðsfundi einhverjum slík- um atburðum— sagði séra Sigmar Torfason á Skeggjastöðum, pró- fastur Múlaprófastsdæmis, er Víðförli spurði frétta af kirkjustarfi þar eystra —Það sem ber hæst hjá okkur og tengir Austfirðinga er auðvitað sumarbúðastarfið á Eiðum og þar eiga þeir alla þökk ungu prestarnir, sem vinna þarna á sumrin. Það er mikil blessun að hafa fengið þessa ungu starfsmenn í hér- aðið, kirkjustarf hefur sumsstaðar stóraukist, eins og t.d. á Seyðis- firði, þar sem þróttmikið barna og æskulýðsstarf ber góðan ávöxt. Sama gildir um Egilsstaði, en þar fær sóknarpresturinn mikinn stuðn- ing frá Ungu fólki með hlutverk sem er á Eyjólfsstöðum, þar er nú eitt af vormerkjunum í íslenskri kirkju.— Ekki má gleyma stórgjöfum Gísla Sigurbjörnsonar, sem þakkaðar voru á fundinum. Hann gaf 530 sálmabækur til kirkna í prófasts- dæminu til minningar um langafa sinn sr. Halldór á Hofi og syni hans fjóra sem allir voru prestar á Aust- fjörðum. Þetta kom sér vel, sumar kirkjurnar höfðu enn ekki eignast nýju sálmabókina. Ég afhenti fyrstu bækurnar á Egilsstöðum á 17. júní og minntist þá sérstaklega séra Halldórs sem var einn mesti baráttumaðurinn í sjálfstæðis- baráttu okkar íslendinga, mikill og góður samverkamaður Jóns Sig- urðssonar.— Aðspurður um hver þróun væri í kirkjustarfi eystra, sagði séra Sig- mar. —Manni hefur nú alltaf fund- ist miða heldur hægt, en núna miðar sumu nokkuð áfram, margt er svo jákvætt, þótt nóg sé af hinu. Mér finnst afstaða leikmanna hafa breyst mikið. í mínum uppvexti voru margir mótsnúnir kirkju og kristindómi, en koma þeir mikið til liðs. Það má vera að hér segi aldurinn til sín hjá mér, maður sjái bjartari hliðar með auknum aldri, maður miklaði fremur með sér erfiðleikana þegar árin voru færri. Annars voru engin stórtíðindi á héraðsfundi, engar kirkjubyggingar eða þessháttar. Ég er líka orðinn það gamall að ég breyti ekki um starfshætti. Ég fylgi því sem ég lærði af forverum mínum sem pró- fastur — mér finnst ég ekki taka á málum að kröfum tímans. Það er allt að breytast, við stöndum á tímamótum, það er margt orðið öðruvisi. Það getur verið býsna öndvert að vera prófastur og búa hér í Bakka- firði. Það getur orðið 400 km akstur að fara og hitta presta sína, og stórt spursmál hvort ekki ætti að kjósa prófast til ákveðins tíma, samt ættu breytingarnar ekki að vera of örar. En það væri mikils virði að fá aðlögunartíma, fá að starfa með fráfarandi prófasti. Það er ansi strembið að fá kassa með gögnum og forverinn horfinn til Reykjavíkur.— Sr. Fjalarr Sigurjónsson Altént lífsmark! Héraðsfundur Skaftfellinga var haldinn 9. september að Brunnhóls- kirkju á Mýrum. Sóttu hann full- trúar úr flestum hinna 14 sókna prófastsdæmisins auk hinna fimm sóknarpresta. Meginmál héraðs- fundar voru fræðsluerindi sr. Jón- asar Gíslasonar dósents um Biblí- una, lestur hennar og notkun í um- ræðuhópum og ennfremur erindi starfsmanna Hjálparstofnunar kirkjunnar þeirra Guðmundar Ein- arssonar og Gunnlaugs Stefánsson- 12 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.