Víðförli - 15.12.1984, Side 13

Víðförli - 15.12.1984, Side 13
ar um hjálparstarf heima og erlend- is. —Þetta voru ljómandi innlegg. Almenningur áttar sig oft ekki á að- ferðum og hugmyndafræði hjálpar- starfsins og voru ánægðir að fá þessar upplýsingar og erindi sr. Jónasar sýndi mönnum glögglega hversu góð hjálpargögn eru fólgin í nýju útgáfu Biblíunnar,— sagði prófasturinn sr. Fjalarr Sigurjóns- son í viðtali við Víðföria. —Starf okkar hefur verið með hefðbundnum hætti, að vísu urðu prestaskipti í Ásum, sr. Hanna María hætti störfum en maðurinn hennar sr. Sigurður Árni tók við. Kirkjustarfið hefur allt þróast á jákvæðan hátt frá fyrra ári. Messur voru 256 en 244 árið áður, 91 barn skírt en 71 árið áður, giftingum hefur fjölgað úr 17 í 20, jarðarför- um hefur til allrar hamingju stór- fækkað úr 42 í 22 og altarisgestum hefur fjölgað um nær 10% milli ára.— Skaftafellsprófastsdæmi er erfið starfseining, enda vegalengdir mikl- ar og byggðin skiptist um sandana. Þess má geta að styttra er fyrir prestinn í Vík að hitta dómprófast í Reykjavík og fara þar með gegnum þrjú önnur prófastsdæmi heldur en að fara að hitta sinn eigin prófast. Sama gildir t.d. um fermingar- barnamótin sem haldin hafa verið árlega í prófastsdæminu um skeið. Það er svipuð vegalengd fyrir börn- in úr Vík og betri færð yfirleitt að fara upp í Borgarnes en austur á Höfn. Skemmtileg nýbreytni var á síð- asta starfsári og verður væntanlega á árvissum atburði: Kirkjukórarnir komu saman yfir helgi í apríl, æfðu saman með söngmálastjóranum og sungu við messu á tónleikum á sunnudegi á Höfn. —Það er kannske ekki eins mikið líf í okkur sem skyldi, en það er altjént lífsmark, og alltaf miðar eitthvað áfram,— sagði séra Fjalarr prófastur á Kálfafellsstað. Héraðssjóður er mikil lyftistöng — Héraðsfundir okkar standa frá kl. hálftíu á morgnana fram að kvöldmat og einkennast af mjög virkri þátttöku. Yfirleitt koma 2-3 fulltrúar frá hinum 17 söfnuðum auk okkar prestanna 10, þannig að Héraðsfund sækja á sjötta tug. Þannig var í ár er við komum sam- an á Fólkvangi á Kjalarnesi 28. okt. s.l. — Séra Bragi Friðriðsson í Garðabæ er prófastur í Kjalarnesprófasts- dæmi, næststærsta prófastsdæmi landsins og segir hér frá héraðs- fundi. — Venjan er að safnaðarfulltrúar flytji stutt skrifuð yfirlit yfir starf safnaðanna, þegar prófastur hefur lokið sinni skýrslu. Ennfremur flutti að þessi sinni Páll Jónsson sparisjóðsstjóri skýrslu frá Hjálpar- stofnun kirkjunnar. Við vorum í boði safnaðanna á Brautarholti og Saurbæ og messað var á báðum stöðum eftir hádegið og síðan var hátíðadagskrá í Fólksvangi sem öll- um kirkjugestum var boðið til. Hún var helguð ári biblíunnar og þar flutti m.a. Tryggvi Gíslason skóla- meistari merkt erindi um Guð- brandsbiblíu og áhrif hennar á ís- lenskt þjóðlif. Að þessari dagskrá lokinni, var fundarstörfum haldið áfram og m.a. kjörið í héraðsnefnd. Sú nefnd ákveður hversu Héraðs- sjóður skuli notaður og hefur hvor- ugtveggja reynst mikil lyftistöng fyrir sameiginlegt starf í prófasts- dæminu. Héraðssjóður kostar ýmsa fundi og ráðstefnur, m.a. leiðar- þing vegna Kirkjuþings, presta- fundi og umræðufundi, í ár t.d. vegna starfsmannafrumvarpsins. Héraðssjóður hefur líka stutt við útgáfu efnis vegna biblíulesturs, en við höfum lagt sérstaka áherslu á það undanfarin ár að koma upp Biblíuleshópum og það hefur sann- arlega borið árangur. Umfang kirkjústarfsins fer sífellt vaxandi og þar með kirkjusókn. Þessvegna er bygging safnaðarheimilis mjög víða á döfinni, annað hvort í undirbún- ingi, eða í framkvæmd. Söfnuðirnir vinna í þágu ýmissa aðila. Með margvíslegum hætti þjóna þeir manneskjunni sem heild — ,,Örvun aö helgihaldi alko- hólista” —Við hittumst í Ólafsvík 2. septem- ber, prestar og safnaðarfulltrúar hinna 25 sókna í Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi. aðalmálið var Ár Biblíunnar og séra Björn Jóns- son á Akranesi flutti ágætan fyrir- lestur um útgáfur hennar í 400 ár á íslandi. í tengslum var sýning á flestum þeim útgáfum. Eru þær í eigu sr. Björns og séra Gísla Kol- beins í Stykkishólmi. Þá komu þeir Hjálparstofnunarmenn, Guðmund- ur Einarsson og Sigurjón Heiðars- son og kynntu starfssemina og urðu það gagnlegar umræður.— Séra Ingiberg J. Hannesson próf- astur er nýkominn af þingi Samein- uðu þjóðanna, þar sem hann var í sendinefnd íslands, er hann svarar nokkrum spurningum Víðförla um héraðsfund í sínu prófastsdæmi. „Markverðast héðan er líklega hið mikla átak í endurbyggingu og við- gerðum kirknanna á fáum árum. Grundarfjarðarkirkja er nú full- gerð, afskaplega fallegt hús og verið er að gera upp Setbergskirkju í VÍr»FÖT?T T

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.