Víðförli - 15.12.1984, Side 16
Landssöf nun Hjálparstofnunar kirkjunnar á jólaföstu hófst
9. des. s.l. Inn á hvert heimili landsmanna hefur borist söfnun-
arbaukur ásamt fréttabréfi og gíróseðli. Þess er vænst að
landsmenn skili söfnunarbaukum með gíróseðlinum til banka
eða póstafgreiðslna. Þá taka sóknarprestar á móti framlögum
auk skrifstofu Hjálparstofnunarinnar og Kirkjuhússins,
Klapparstíg 27, Reykjavík.
Nú verður áhersla lögð á að söfnunarfé verði varið til fyrir-
byggjandi hjálparstarfs. í ráði er, að fjölga íslendingum í
störfum að þróunarverkefnum á vegum Hjálparstofnunarinn-
ar. Nú hafa fimm íslendingar verið ráðnir við störf að þróun-
arverkefnum á vegum Hjálparstofnunarinnar. Þá mun Hjálp-
arstofnunin halda áfram matvælasendingum á þurrkasvæðin í
Afríku, en ástandið er talið verst í Eþíópíu.
Landssöfnun
Hjálparstofnunarinnar
á jólaföstu
Messudagur á hausti.
Hvílíkur morgunn:
Botnssúlur
stíga fram úr skrúðhúsi
tungsskinsnæturinnar
klæddar hvítum messuserk
albúnar til helgrar þjónustu.
Sól fer austan
og leggur gullna stólu
um herðar fjallinu
því næst baldýraðan hátíðahökul,
er tekur Súlum niður á Svartagil.
Súlur hefja höfuð
mót hvítblárri altaristöflu himinsins
og tóna:
Kyrieleison.
í kórnum standa Búrfell og Ármannsfell.
Þau fara með andstefin,
meðan Skjaldbreiður blaðar
í predikun dagsins.
í dag er messusókn góð að vanda:
Tindaskagi situr í þyrpingu
undir norðurveggnum,
lúinn eftir smalamennsku liðinna vikna.
Hrafnabjörg róa
í hefðarstúku
líkt og maddama af því tagi,
sem nú eru tœpast lengur á dögum,
hnykkja höfði með reisn
svo að strákastóð austurfjallanna
hnípir þögult
og bíður með þolinmæði eftir
síðasta ameninu.
Sumir eru of seinir til messunnar:
Hengillinn keyrir fák sinn sporum,
gufumekkirnir standa úr nösum hestsins.
Hengillinn má þakka fyrir
að ná seinni blessuninni.
En Ingólfsfjall hefur tafizt
eins og löngum áður
í ófærðinni.
Það kemst ekki til kirkju
á þessum tíma árs,
einungis á sumrin,
þegar tíbráin lyftir fjalli fyrsta
landnámsmannsins,
sem gengur í lotningu
norður Grafninginn
yfir Vatnið
til altaris
á knébeð
við Öxará.
Almenna bókafélagið mun gefa
út ljóðabækur eftir tvo íslenska
presta á næsta ári, þá séra Bolla
Gústavsson í Laufási og séra Heimi
Steinsson á Þingvöllum. Víðförli
birtir hér eitt af ljóðum séra
Heimis.