Bæjarins besta - 09.06.1999, Blaðsíða 3
KFÍ sér um hátíðahöldin 17. júní
Teiknimyndasamkeppni
og þjóðhátíðarhlaup
Sautjánda júní-nefnd KFÍ,
sem annast framkvæmd hátíð-
arhaldanna á ísafírði á þjóð-
hátíðardaginn að þessu sinni,
hefur ákveðið að efna til
teiknimyndasamkeppni í til-
efni hátíðarinnar. Öllum er
heimil þálttaka, ungum sem
gömlum, og eina skilyrðið er
að myndefnið sé þjóðlegt og
tengist þjóðhátíðinni á ein-
hvern hátt. Skilafrestur er til
ló.júníog veitirGuðjón Þor-
steinsson nánari upplýsingar
ísíma4565l4l eða8965828.
Hann veitir einnig upplýs-
ingar um fyrirhugaða dorg-
veiðikeppni á Asgeirsbakka,
svo og varðandi 3ja km. 17.
júní-hlaup, sem ákveðið hefur
verið að endurvekja á Isafirði.
Komur skemmtiferðaskipa ti! ísafjarðar
Ellefu skip í sumar
en voru fímm í fyrra
Heimsóknir erlendra
skemmtiferðaskipa til Isa-
fjarðar verða 11 í sumar en
voru 5 á síðasta sumri. Heild-
arfjöldi farþega sem koma
með þessum skipum er 3.250
en í áhöfnum þeirra eru naum-
ast minna en tvö þúsund
rnanns samanlagt. Þvf er Ijóst
að með þessunt skipum koma
á sjötta þúsund manns, sem
flestir kaupa sér einhverja
þjónustu hér, að ógleymdum
hafnargjöldunum sem skipin
skila í hafnarsjóð.
Skipin sem koma eru sjö
þótt skipakomurnar séu ellefu.
Skemmtiferðaskipið Explorer
kemur alls fjórum sinnum.
Það er jafnframt fyrsta skipið
sem kemur, en samkvæmt
áætlun á það að leggjast að
bryggju á Isafirði kl. 13 á mið-
vikudaginn í næstu viku.
Caledonian Star kemurtvisvar
en þau skip sem koma einu
sinni hvert eru Hanseatic, Vic-
toria, Pacifíc Princess, Odys-
seus og Saga Rose, sem er
síðasta skipið og kemur l.
ágúst.
I sjö tilvikum leggjast skip-
in að bryggju en í fjórum til-
vikum koma þau á leguna úti
á Prestabugt. Fæstir farþegar
eru með Explorer eða 96
hverju sinni en flestir meðVic-
toria I7. júlí (714), Pacific
Princess 21. júlí (640) og Saga
Rose l. ágúst (618).
I fyrra var heildarfjöldi far-
þega í skipakomunum fimm
2.268 manns en heildarfjöldi
í áhöfnum 1.456. Explorer er
langminnsta skipið sem nú
kemur og lækkar meðalfjöld-
ann í hverri skipakomu frá
því í fyrra.
Eftirmái verkfallsaðgerða fyrir 2 árum
VSÍ krefst sex millj-
óna í skaðabætur
- hyggst stefna tveimur verkalýðsfélögum og sjö einstaklingum
Vinnuveitendasamband ís-
lands (VSÍ) krefst skaðabóta
vegna tjóns sem útgerðarfyrir-
tæki á Vestfjörðum hafi orðið
fyrir í verkfalli Verkalýðsfé-
lagsins Baldurs á Isafirði og
Verkalýðsfélags Alftfirðinga
fyrir rúmum tveimur árum. I
verkfallinu hindruðu verk-
fallsverðir félaganna afgreið-
slu þriggja vestfirskra fiski-
skipa í höfnum utan Vest-
fjarða.
VSÍ telur að aðgerðirnar
hafi verið ólögmætar og
hyggst innan skamms höfða
skaðabótamál á hendur félög-
unum sjálfum og sjö einstakl-
ingum innan félaganna, sem
að aðgerðunum stóðu, verði
bætur ekki greiddar. Af hálfu
VSI er tjón útgerðarfélaganna
metið á tæpar sex milljónir
króna og er þess krafíst að sú
upphæð verði greidd auk
vaxta.
Forsvarsmenn verkalýðsfé-
laganna vísa þessari kröfu-
gerð á bug og telja að aðgerð-
irnar hafi verið eðlilegar og
lögmætar. Þá telja þeir kröfu-
gerð þessa furðu seint fram
komna.
Fellihýsin frá Seglageröinm Ægi, sem voru Nýjustu bílarnir frá Heklu hf. á sýningunni
á sýningunni Vegamót 99, koina á áfanga- við liílagarö i Edinborgarhúsinu.
stað.
Tvær stórsýningar á bílum og fellihýsum
Tvær miklar bflasýningar voru haldnar á Isafirði um síðustu helgi. í íþróttahúsinu áTorfnesi
varToyota-umboðið með sýningu og skemmtisamkomu undir nafninu Vegamót 99 í samvinnu
við VIS (bílalán) og Seglagerðina Ægi, sem sýndi nýjustu gerðir af fellihýsum.
Við Edinborgarhúsið sýndi Bílagarðurehf. nýjustu bílana frá Heklu hf. og bauð í reynsluakstur.
Eitthvað mun aðsóknin að sýningum þessum hafa verið minni en vonir stóðu til, enda var
mikið um að vera kringum hátíðahöld sjómannadagsins.
Sýslumaðurinn
i Bolungarvík
Lögreglumaöur /
héraöslögreglumaöur
Lögreglumann vantar sem fyrst til sumar-
afleysinga við embætti sýslumannsins í Bol-
ungarvík. Æskilegt er að umsækjandi hafi
lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Sam-
kvæmt ákvæði í 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga
erþó heimiltað ráða óskólagengna menn til
afleysinga efenginn með próffrá Lögreglu-
skóla ríkisins sækir um.
Einnig óskast héraðslögreglumaður til
starfa.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að
sækja um.
Búseta í Bolungarvík er æskileg en ekki
skilyrði.
Nánarí upplýsingarveitirundirritaðurí síma
456 7222 ogJón Bjarni Geirsson, varðstjóri
í sima 456 7111.
Bolungarvík, 7. júní 1999
Jónas Guðmundsson, sýslumaður.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vinsemd og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa
Matthíasar Sveins Vilhjálmssonar
Urðarvegi 64, ísafirði
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún S. Valgeirsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Fastanefndir Aiþingis
Einar K. formaður
sjávarútyegsnefndar
Stjórnarflokkarnir hafa
gengið frá skipan formenn-
sku í fastanefndumAlþingis
og verður Einar K. Guð-
fínnsson formaður sjávarút-
vegsnefndar. Kristinn H.
Gunnarsson verður aftur á
móti formaður þingflokks
Framsóknarflokksins.
Ohætt er að segja, að for-
mennska Einars Kristins í
sjávarútvegsnefnd gangi
næst ráðherradómi.
ísafjörður
Leikjanámskeið hjá BÍ
Fyrirhugað er að halda tvö
leikjanámskeið á vegum
Boltafélags Isafjarðar í sum-
ar. Námskeiðin eru fyrir
börn á aldrinum 5-8 ára.
Margt verður til gamans
gert, t.d. farið í ýntsa leiki
bæði innanhúss og utan,
farið í skoðunarferðir og
sund o.s.frv.
Umsjónarmaður nám-
skeiðanna er Hrafn Krist-
jánsson íþróttakennari. Þátt-
takendum verður skipt í tvo
hópa eftir aldri og verður
ann-ar hópurinn kl. 10-12
og hinn kl. 13-15.
Fyrra námskeiðið stendur
frá 21. júní til 2. júlí og hið
seinna frá 12. júlí og til 23.
júlí. Skráning er í síma 456
3945. Gjald fyrir þátttöku
verður kr. 2.500 en boðið
verður upp á systkinaafslátt.
Bergþór með konsert
Bergþór Pálsson óperu- á vegum KFI, sem annast
söngvari verður með söng- dagskrá þjóðhátíðar á ísa-
skemmtun á ísafirði að firði að þessu sinni.
kvöldi ló.júní. Hannkemur
Vikan
framundan
Miðvikdagur 9. júní
Þennan dag árið 1880 var
hornsteinn lagður að Al-
þingishúsinu við Austurvöll
í Reykjavík. Húsið var
byggt „handa alþingi og
söfnum landsins”, eins og
stendur á silfurskildi á horn-
steininum. Til stóð að
byggja húsið við Banka-
stræti en Meldal húsameist-
ari lagðist gegn því. Alþingi
kom í fyrsta sinn saman í
hinu nýja húsi l.júlí 1881.
Fimmtudagur 10. júní
Þennan dag árið 1986 var
fimm þúsund króna seðill
settur f umferð. A honum er
mynd af Ragnheiði Jóns-
dóttur (f. 1646, d. 1715), en
hún var kona tveggja Hóla-
biskupa og annáluð hann-
yrðakona.
Föstudagur 11. júní
Þennan dag árið 1935 lauk
Auður Auðuns lögfræðiprófi
frá Háskóla Islands, fyrst
kvenna. Hún varð síðar
fyrsta konan sem gegndi
embætti borgarstjóra í
Reykjavík og ráðherra.
Laugardagur 12. júní
Þennan dag árið 1967 varð
Björg Kofoed-Hansen, 18
ára, fyrst íslenskra kvenna
til að varpa sér úr flugvél í
fallhlíf. Þetta gerðist yfir
Sandskeiði. Tveim árum
áður hafði faðir hennar,
Agnar Kofoed-Hansen, orð-
ið fyrstur Islendinga til að
stökkva í fallhlíf hérlendis.
Sunnudagur 13. júní
Þennan dag árið 1941 bauð
Sigurður Jónsson forstjóri
ríkinu að taka við Bessa-
stöðum sem gjöf „til þess að
vera bústaður æðsta valda-
manns íslenska ríkisins”.
Ríkisstjórnin tók boði hans
18. júní.
Mánudagur 14. júní
Þennan dag árið 1949 var
þyrlu flogið í fyrsta skipti á
Islandi. Þetta var tveggja
sæta „helecopter-flugvél” af
Bell gerð. Hún hafði verið
flutt til landsins svo hægt
væri að reyna slíka flugvél
við björgunarstörf og
strandgæslu.
Þriðjudagur 15. júní
Þennan dag árið 1981 hlaut
Garðar Cortes óperusöng-
vari bjartsýnisverðlaun
Bröstes þegar þau voru veilt
í fyrsta sinn. Verðlaunin eru
árlega veitt íslenskum lista-
manni sem hefur bjartsýni
að leiðarljósi í listsköpun
sinni.
Auglýsingar og áskrift
sími 456 4560
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 1999
3