Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.06.1999, Blaðsíða 9

Bæjarins besta - 09.06.1999, Blaðsíða 9
Fyrir einni öld var þetta hús í eigu Helga Sveinssonar verslunarmanns, sem síðan varð fyrsti útibússtjóri Is- landsbanka á ísafirði. Útibúið var frá upphafi árið 1904 til húsa þarna heima hjá Helga og allt þangað til hann Iét af starfi og fluttist úr bænum árið 1920. Það var því ekki löng leið hjá Helga í vinnuna í bankanum. Ekki er heldur löng leið hjá Helgu í vinnuna í bankanum, því að hún starfar í útibúi Landsbankans að Pól- götu 1, alveg rétt hjá. Sá er helsti munurinn að Helga þarf að bregða sér augnablik út undir bert loft til að komast á vinnustað í banka en þess þurfti Helgi ekki. Jón byskup Arason... Nóg um ætt og ævi hússins. Helga og Jón Hallfreð hafa fundið skyldleika sín í milli í áttunda lið. Ef hvergi leynist með þeim nánari skyldleiki hljóta þau að teljast fremur fjarskyld á íslenskan mæli- kvarða. Sagt er að allir Islend- ingar, sem eru á annað borð af íslenskum ættum, séu komnir af Jóni Arasyni Hólabyskupi og það á fjölmarga vegu. Jón lét höfuð sitt á höggstokki konungs og siðbótarinnar svokölluðu árið 1550 og má ætla að við sem nú tórum á Islandi séum afkomendur hans í 12. til 14. lið eða þar um bil. ...og Jón á Völlunum Séra Jón Halldórsson á Völlum í Svarfaðardal er einnig nefndur sem sameig- inlegur forfaðir allra núlifandi Islendinga. „Mamma getur rakið alla til Jóns á Völlun- um“, segir Helga. Séra Jón þessi áVöllunum er að líkind- um sá sem jólasveinar einn og átta fundu. Jón Hallfreð: „Ég held að jólasveinarnir hafi verið að koma úr fjöllunum á milli Svarfaðardals og Hjaltadals í Skagafirði. Það einmitt í Hólakirkju sem var hringt.“ Helga: „Það er kannski ann- arra en okkar að fara út í ætt- fræði jólasveina." Afkomendur Auðunar skökuls Auk þeirra Jóns áVöllunum og Jóns byskups mætti nefna hér enn einn ættföður allra íslendinga og miklu eldri, Auðun skökul í Víðidal í Húnavatnssýslu. Hann er tal- inn ættfaðir helstu konungs- ætta Evrópu og meðal annars er hægt að rekja ætt Elísabetar Englandsdrottningaróslitið til hans. Ekki skal neitt um það sagt hér, hvort einhver tengsl séu milli kynsældar hans og viðurnefnisins. - Nú er í ættfræðiforritum endalaust pláss fyrir hvaða fróðleik sem er, um hvaða til- tekinn einstakling sem þar er. Gerið þið mikið af því að skrá upplýsingar unt fólk? „Já, við gerum það. Við skráum búsetuna og líka oft ef tiltækar eru einhverjar frá- sagnir af viðkomandi fólki. I þessu öllu er heilmikil saga og sagnfræði, fyrir utan sjálfa ættarakninguna.“ Jón Hallfreð: „Þetta er saga lands og þjóðar." Sagnagrunnur á ættfræöisviöi - Nú dettur manni í hug margfrægui' gagnagrunnur á heilbrigðissviði - er hægt að láta taka sig út úr skránum hjá ykkur? Helga: „Það hefur nú eng- inn beðið um það ennþá!“ Jón Hallfreð: „Enda held ég að við séum ekki með nein- ar upplýsingar sem eru ekki á glámbekk hvort sem er.“ - Mig minnir, að einhvern tíma fyrir mörgum árum, þeg- ar verið var að gefa út íslenskt læknatal, hafi læknir nokkur krafist þess að þar yrðu ekki birtar upplýsingar um raun- verulega foreldra kjörbarns og fengið því framgengt með dómi að það yrði ekki gert... „Það eru vissulega ýmis vandamál sem fylgja þessari skráningu, einkum varðandi faðerni. Ekki ætlum við að sverja að þar sé allt rétt feðrað. Einnig er orðið mikið um kjör- börn og fósturbörn. í þeim tilvikum reynum við að tengja þau við raunverulega foreldra en ekki fósturforeldra, enda er þetta ættfræðiskráning. I skýringatexta greinum við hins vegar frá kjörforeldrum og fósturforeldrum." Mektarmenn börnuðu út ng suður - Það er vel kunnugt, að mektarmenn á fyrri tíð, svo sem sýslumenn og prestar og stórbændur, voru barnandi út og suður nólt sem nýtan dag í skjóli valdsins og létu vinnu- menn eða kotunga eða sauða- þjófa gangast við faðerninu. Það er minnisstætt þegar sögukennari nokkur í Mennta- skólanunt í Reykjavík lét þau orð falla í kennslustund, að karlleggurinn væri óvissari en kvenleggurinn. Vissu fleiri en þögðu þó, hugsaði einhver... Helga: „Líklega eru nú flestir rétt mæðraðir.“ Það kunna því að vera nokk- uð ótraust vísindi, þótt undir- ritaður sé talinn tíundi maður í beinan karllegg frá séra Jóni Egilssyni íHrepphólum, þeim er ritaði Biskupaannála. Séra Jón var bróðir séra Olafs Egilssonar í Vestmannaeyj- um, sem brott var numinn í Tyrkjaráninu 1627 og ritaði síðan reisubók um herleiðing- una í Barbaríið. En það er önnur saga. leyst úr máli Kanadamanns Þau Helga og Jón Hallfreð eru sammála um hvað sé það skemmtilegasta sem hafi hent þau í sambandi við ættfræð- ina. „Við fengum fyrirspurn ffá Vestur-íslendingi í Kan- ada, sem var að leita að rótum sínum hér heima á íslandi. Hann vissi nöfnin á afa sínum og ömmu en ekkert fleira, vissi ekki einu sinni hvaðan af landinu þau voru. Við fundum þetta fólk og gátum sent manninum upplýsingar um ættir hans og uppruna. Hann var svo ánægður að hann setti þetta inn á heima- síðuna sína. Við gátum rakið ættir þessa manns saman við bæði mínar ættir og Halla og hann setti þær upplýsingar líka inn á heimasíðuna. Þetta er einmitt tilgangurinn. að geta fundið ræturnar. Þegar svona tekst til, þá finnst manni einhverjum lilgangi náð.“ Manntalsvetur Yfirleitt gengur nokkuð greiðlega að rekja ættir Islend- inga þrjár aldir aftur f tímann. Veturinn 1702-1703 varfyrsta allsherjarmanntal tekið á Is- landi. Það uppátæki þótti und- arlegt og nefnist sá vetur síðan Manntalsvetur. Fyrir þann tíma verður ættrakning tor- veldari þótt margar einstakar greinar megi þræða allt til landnámsaldar og Noregs fyrir landnám. Helga: „Fyrir okkur er þetta eins og stór krossgáta..." Jón Hallfreð: „Eða öllu heldur púsluspil. Myndin verður aldrei heil en maður er alltaf að reyna að fækka göt- unum í henni. Mig minnir að Kári Stefánsson hafi talað um það væru hátt í milljón Islend- ingar frá upphafi vega sem einhverjar heimildir væru til um.“ Ættfræðiáhuginn fer vaxandi - Það virðast vera ótrúlega margir Islendingar sem hafa áhuga á ættfræði... Jón Hallfreð: „Og þessi áhugi er alltaf að aukast.“ Þau Helga og Jón Hallfreð telja að ættfræði sé óvíða stunduð með sama hætti og sama áhuga og á Islandi. Enda er það auðveldara í einangr- uðum og einsleitum samfé- lögum þar sem auk þess er mikið til af rituðum heimild- um eins og hér. Þó munu Norðmenn vera nokkuð gefnir fyrir þau fræði og nýlega var í fréttum greint frá mikilli vakn- ingu á þessu sviði í Banda- ríkjunum. Þar var opnuð ætt- fræðisíða á Netinu og hún sprakk á fyrsta degi vegna gíf- urlegrar aðsóknar. „Ekki veit ég hvað veldur", segir Helga. „Þetta er einhver fortfðarfíkn“, segir Jón Hallfreð. En hvort sem við erum komin af þeimAuðuni skökli, Jóni á Völlum í Svarfaðardal og Jóni Arasyni eða ekki, þá er víst óhætt að fullyrða að öll heimsbyggðin sé komin af þeim Adam og Evu, sem á sínum tíma bjuggu í óvígðri sambúð í Eden og víðar, eftir því sem fornar bækur herma. - Hlynur Þór Magnússon. í 7. 7 Auglýsingar og áskríft sími 456 4560 V J ÍSAFJARÐARBÆR GRUNNSKÓLINN Á ÍSAFIRÐI wm Óskum eftir að ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa skólaárið 1999/ 2000. Kennara í eftirtaldar kennslu- greinar: Almenn bekkjarkennsla í 3. og 5. bekk (2-3 stöður). Textflmennt (handavinna/saumar) 4.-6. bekkur (80% starf). Sérkennsla (100% starf). Ymis störf: Þroskaþjálfi (50-75% starf). Skólaliði (40% starf) frá kl. 12:00 ádaginn. Starfsmenn í mötuneyti nemenda og félagsmiðstöð (tvö störf samt. 175%). Starfsfólk í heilsdagsskóla (tvö störf 60% og 30%) frá kl. 12:40 daglega. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, aðstoðarskólastjóri (sími 456 3044) og forstöðumaður félagsmiðstöðvar |(sími 456 3808). Umsóknarfrestur er til 16. júní nk. Skólastjóri. Til sölu Til sölu er 120m2 iðnaðarhúsnæði að Tjarnarkambi 6, Bolungarvík. Upplýsingar í símum 456 7394 og 893 8394. Halldór Jónatansson. Fasteign til sölu Til sölu er 4ra herbergja íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsinu nr. 20 við Aðalstræti á ísa- firði. íbúðin er u.þ.b. 100m2 að stærð, ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðaréttindum. Vönduð íbúð á góðum stað í miðbæ ísafjarðar. Góð greiðslukjör. Allar nánari upplýsingar um eignina gefur BjörnJóhannesson hdl., Aðalstræti 24, ísa- firði í síma 456 4577 frá kl. 10:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. LÖGSÝNEHF. Lögfraeðiþjónusta „Guggan" lengd lun 18 metra Frystitogarinn Hannover sem áður hét Guðbjöig IS og var í eigu Samherja og þar áður Hrannar hf. á ísa- firði, verður lengd um tæpa jmetra í haust. Eftir breytinguna verður skipið um 86 metra langt. Tilgangurinn með breyting- unum er að gera skipið enn betra að sögn framkvæmda- stjóra Samherja. Sumarferð aldraðra Á undanförnum 15-20 ár- um hafa Rauðakross deild- irnar á Vestfjörðum staðið fyrir sumardvalarferð fyrir aldraða Vestfirðinga. Ferðirnar hafa verið afskaplega vinsælar og hef- ur verið gist á ýmsurn stöð- um á landinu. Að þessu sinni er ferðinni heitið í Húnavatnssýslur og gist á Húnavöllum. Allar nánari upplýsingar um ferðina og bókanir eru hjá þeim Sigrúnu G. Gísla- dóttur, sími 456 7770, Sig- ríði Magnúsdóttur, sími 456 7655 og hjá Helgu Jónas- dóttur, sími 456 2606. Eygló í Slunkaríki Á laugardaginn var opn- aði Eygló Harðardóttir sýn- ingu í Slunkaríki á ísafirði. Sýningin er sýn inn í heim lita þar sem listamaðurinn dregur fram tóna úr um- hverfinu. Eygló hefur haldið nokkrar einkasýningar, síð- ast í Nýlistasafninu í októ- ber 1998 auk þess sem hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum. Eygló stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1983-1987 og fram- haldsnám við listaakademí- una í Hollandi frá 1987-90. Sýningin í Slunkaríki er opin finimtudaga til sunnu- daga frá kl. 16-18 og lýkur sunnudaginn 20. júní. Skrúður undir Núpi Framkvæmdasjóður Skrúðs í Dýrafirði hefur farið af stað með söfnunar- átak sem beint er til Vest- firðinga, gamalla nemenda á Núpi, fyrirtækja og samtaka á Vestfjörðum og allra áhugamanna um ræktun og varðveislu menningarverð- mæta. Það fé sem safnast mun mynda höfuðstól sem ekki verður skertur. Vextirnir verða notaðir lil að standa undir rekstri garðsins, eina af perlum íslenskra garða. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 9

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.