Bæjarins besta - 09.06.1999, Qupperneq 6
Rauðsíða og dótturfyrirtækin Boifiskur og Rauðfeidur
Fagraholt 12 til sölu
156m2 hús með 29m2 bílskúr, fjögur her-
bergi, fataherbergi, baðherbergimeðsauna,
stofa, borðstofa, sjónvarpskrókur, gott
þvottahús. Gróinn garður, góður sólpallur.
Upplýsingar í síma 456 3026. Opið hús
fimmtudaginn lO.júní kl. 18-20 og sunnu-
daginn 13. júní kl. 14-16.
Amar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
F asteigna viðskipti
Hef til sölu
fasteignir víöa
á Vestfjörðum
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Laun ekki greidd og
starfsemin stöðvuð
Uggur er í fólki vegna stöðu
mála hjá fyrirtækjum Rauða
hersins svonefnda (fyrirtækj-
um Ketils Helgasonar), þ.e.
Rauðsíðu ehf. á Þingeyri og
dótturfyrirtækjunum Bolliski
ehf. í Bolungarvík og Rauð-
feldi ehf. á Bfldudal. Á þriðja
hundrað manns vinna hjá
þessum fyrirtækjum. þar af
um eitt hundrað á Þingeyri.
Fyrirtækin eru komin í þrot
með launagreiðslur og voru
vikulaun sem greiða átti eftir
á 27. eða 28. maí ekki borguð
og hafa laun ekki verið greidd
síðan. Fyrir síðustu helgi var
starfseminni síðan hætt vegna
hráefnisskorts.
Ástandið er alvarlegast á
Þingeyri, enda vegur starf-
semin þarmiklu þyngraíheild
en í hinum byggðarlögunum.
Verkalýðsfélagið Brynja á
Þingeyri lánaði starfsfólki
sem þess óskaði sem svaraði
hluta af ógreiddum launum
til þess að bæta úr brýnustu
nauðsyn.
Byggðastofnun hefur fyrir
löngu veitt Rauðsíðu ehf. vil-
yrði fyrir hundrað milljón
króna láni að vissum skilyrð-
um uppfylltum. Ketill Helga-
son segir að þau skilyrði hafi
verið uppfyllt en af einhverj-
um ástæðum dregur Byggða-
stofnun að borga lánið út. Ekki
fást skýringar frá stofnuninni,
á þeirri forsendu að henni sé
ekki heimilt að tjá sig um
Iánveitingar tileinstakrafyrir-
tækja.
RéWndi erlendra
launþega á íslandi
Hvernig er réttindum erlendra launþega háttað á íslandi í dag?
Hvernig erað vera erlendur launþegi á íslandi? Hvernig erstaðið að
því að upplýsa útlendinga sem hingað koma til starfa um rétt sinn?
Þessum spurningum og fleiri verður leitastvið að svara á ráðstefnu
sem félagið Fjölbreytni auðgar (FA) stendur fyrir á ísafirði laugar-
daginn 12. júní nk. Ráðstefnan verður haldin í Framhaldsskóla
Vestfjarða og hefst kl. 13:00.
Dagskrá:
Kl. 13:00 Setning ráðstefnunnar. Geir Oddsson, formaður
félagsins Fjölbreytni auðgar.
Kl. 13:20 Hlutverk bæjarfélaga. Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri ísafjarðarbæjar.
Kl. 13:40 Hlutverk vinnuveitenda. Fulltrúi vinnuveitenda.
Kl. 14:00 Hvernig er að vera erlendur launþegi á íslandi?
Grazinia Gunnarsson, hjúkrunarfræðingur.
Kl. 14:20 Fulltrúi launþega.
Kl. 14:40 Kaffihlé.
Kl. 15:10 Vinnumarkaðurinnoghlutverkverkalýðshreyfingar-
innar. Halldór Grönvold, skrifstofustjóri Alþýðu-
sambands íslands.
Kl. 15:30 Skilyrði atvinnuleyfis - hlutverk hins opinbera.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Kl. 15:50 Pallborðsumræður.
Kl. 16:45 Fundi slitið.
Markmið félagsins Fjölbreytni auðgar erað vinna að jafnrétti á íslandi með því að fyrirbyggja
misrétti á grundvelli kynþáttar, litarháttar, þjóðernis, uppruna, trúarbragða eða annarra að-
stæðna. Ráðstefnunni erætlað að auka upplýsingaflæði um hvernig búið erað erlendum laun-
þegum á íslandi í dag og stuðla að umræðu um mikilvægi mannréttinda.
Ráðstefnan er styrkt af Rauða krossi islands.
Leikarahópurinn ói Hótelísafirði eftirað 100. sýningunni lauk. Frá vinstri: Bessi Bjarnason,
Þóra Friðriksdóttir, Helga Stephensen, Arni Tryggvason, Olafur Darri Olafsson, Tinna
Gunnlaugsdóttir, Helga Bachmann og Erlingur Gíslason.
Maöur í mis/itum sokkum í Hnífsda!
Fullt hús á 100. sýningunni
LeikritArnmundarS. Back-
mans, Maður í mislitum sokk-
um. fékk afar góðar viðtökur
þegarÞjóðleikhúsiðkom vest-
ur með valinn hóp stórleikara
og sýndi verkið fyrir fullu húsi
í Félagsheimilinu í Hnífsdal
sl. föstudag og laugardag.
Seinni sýningin var hundrað-
Höskuldur Ingvarsson
verður 75 ára föstudaginn
11. júní nk.
I tilefni dagsins tekur
hann á móti gestum milli
kl. 15 og 17, laugardaginn
12. júní í setustofu Fjórð-
ungssjúkrahússins á ísa-
firði. Gjafir eru afþakkað-
ar.
asta sýningin á verkinu, en
það hefur verið flutt við fá-
dæma vinsældir á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins frá því
í haust.
Höfundur leikritsins, Arn-
mundur S. Backman hæsta-
réttarlögmaður, andaðist í
september síðastliðnum, langt
um aldurfram. Hannvarþjóð-
kunnur sem lögmaður, lög-
fræðiráðgjafi og aðstoðar-
maður ráðherra og einbeitti
kröftum sínum einkum í þágu
þeirra sem ntinna máttu sín.
Hins vegar komu hæfileikar
hans á sviði lista snemrna í
ljós. Hann hafði þá tónlistar-
gáfu að geta spilað á svo til
hvaða hljóðfæri sem var, auk
þess sem hann var góður söng-
maður. Þegar sem unglings-
pillur var hann farinn að leika
fyrir dansi. Síðan var hann
meðal stofnenda og félaga í
Busabandinu í Menntaskól-
anum á Akureyri, þjóðlaga-
tríóinu Þremur háum tónum
og Eddukórnum. Hann samdi
einnig sönglög við Ijóð ým-
issa skálda.
Arnmundur byrjaði ekki að
sinna ritstörfum af alvöru fyrr
en hann var kominn á fimm-
tugsaldur, enda þótt hann
hefði alla tíð skrifað mikið,
bæði skáldskap og annan
texta. Frá hans hendi komu
að honum Iifandi tvær skáld-
sögur, Hermann (1989) og
Böndin bresta (1990) og tvö
leikrit, Blessuð jólin og Mað-
ur í mislitum sokkum. Fyrir
síðustu jól kom út síðasta saga
hans, Almúgamenn.
Að 100. sýningunni lokinni
héldu leikarar og aðrir að-
standendur sýningarinnar upp
á áfangann á Hótel fsafírði og
voru meðfylgjandi myndir
teknar við það tækifæri.
Ólafur Darri Ólafsson á
góðri stundu með Arna
Tryggvasyni.
6
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 1999