Bæjarins besta - 09.06.1999, Blaðsíða 10
forstöðumanni Sj ávarútvegsstofnunar
Háskóla íslands datt í hug og þar sem
bæjarráð samþykkti að bæjarstjóri
mætti fara þáði hann boðið með
þökkum. Ferðafélagarnir voru: Guð-
rún Pétursdóttir, forstöðumaður Sjáv- Islendingamir íferðinni ásamt tveimur starfsmönnum fiskmarkaðs í Keelung.
s
arútvegsstofnunar Háskóla Islands.
s
Olafur Hannibalsson, sagnfræðingur
og blaðamaður, Hélene Lauzon mat-
vælafræðingur á Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins, Valdimar K. Jónsson,
forstöðumaður Verkfræðideildar Há-
skóla Islands, Vilhjálmur Guðmunds-
son deildarstjóri hjá Útflutningsráði
s
Islands og Halldór
Halldórsson, bæjarstjóri.
Taiwan
Sendinefnd frá Háskóla íslands með fulltrúum frá ÚtfJutningsráði,
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og ísafjarðarbæ fór tif Taiwans fyrir stuttu.
Bæjarstjóri ísafjarðarbæjar, Haifdór Halldórsson rar með í för
og segir hér í opnunni frá ferðinni í máli og myndum.
Það var 9. maí sl. sem sendinefndin
lagði í langt ferðalag, alla leið frá
s
Islandi til kínverska lýðveldisins
Taiwan í boði þarlendra. Bæjarstjóra
Isafjarðarbæjar var boðið með í ferð-
ina vegna þess að rétt þótti að fá með
fulltrúa sjávarútvegsbæjar á Islandi.
Sjávarútvegsbæjar sem einnig byggði
töluvert á þjónustugreinum tengdum
s
sjávarútvegi. Isafjarðarbær var fyrsti
bærinn sem Guðrúnu Pétursdóttur
Fyrsti áfangi var flug frá Keflavík til London 3 klst. Þá tók
við 121'2 klst. flug til Singapore þar sem gist var yfir nótt, þegar
komið er þangað flýtir maður klukkunni um 8 klst. og er sami
tími einnig í Taiwan. Við nýttum tækifærið til að skoða borg-
ina sem er heimili 4 milljóna manna. Borgin er stórglæsileg,
mikið er af háhýsum og er arkitektúr þeirra athyglisverður.
Hvergi sést svo mikið sem eitt sælgætisbréf á götum, hvað þá
tyggjóklessur enda er fangelsisvist fyrir að henda slíku frá sér
á almannafæri í 3-5 daga. Fyrir þann sem ekki er vanur því að
láta horfa stöðugt yfír öxlina á sér er óþægilegt að vita af
miklu eftirliti með einstaklingunum. Annað sem undirrituðum
fannst ónotalegt er þegar maður fyllir út sérstakt spjald til að
afhenda við vegabréfaskoðun þegar komið er inn í landið. Á
spjaldið setur maður persónulegar upplýsingar, mest úr vega-
bréfrnu og þar stendur stórum rauðum stöfum: „Þeir sem bera
með sér fíkniefni til eða frá Singapore verða teknir af lífi.”
Ekki það að neinn í hópnum viti eitthvað um slík efni en sú
hugsun læðist að manni hvað muni gerast ef einhver laumar
fíkniefnum í handfarangur manns, verður skotið fyrst og spurt
svo? Spurning hvort Hlynur og félagar í lögreglunni á ísaftrði
næðu enn meiri árangri hefðu þeir þessar heimildir.
Á öðrum degi var aftur farið í flug og í þetta sinnið 4 klst. frá
Singapore tilTaipei höfuðborgarTaiwan. AllaleiðfráLondon
flugum við með Singapore Airlines í breiðþotu og verður
greinarhöfundur að segja að aldrei áður hefur hann kynnst
annarri eins þjónustu og þjónustulund eins og einkennir flug-
freyjur félagsins, okkur lá við áfalli þegar við komum aftur í
Flugleiðaþotu á heimleið í London og höfðum á tilfinningunni
að við værum að þvælast fyrir flugfreyjunum þar og gera þeim
lífið leitt, slíkur var samanburðurinn. Sama sagan var með
aðkomuna íTaiwan og í Singapore það þurfti að fylla út sams-
konar spjald til að afhenda við vegabréfsskoðun nema á því
stendur að „dauðarefsingu kunni að verðabeitt,” aðeins mildara
en í Singapore.
Móttökurnar í Taipei voru frábærar. Gestgjafar voru Dr.
Bonnie Sun við Sjávarútvegsháskólann í Taiwan og Mr. Yen
aðaleigandi fyrirtækisins Yen Brothers sem er umsvifamikið í
innflutningi á fiski. Við fengum ekki að vita hvernig þau
skiptu kostnaði en þau gengu þannig frá öllu að ekkert okkar
þurfti svo mikið sem að leggja út fyrir leigubíl meðan á
dvölinni stóð.
Dagskráin í Taiwan var þéttskipuð frá 08:00 á morgnana til
kvölds og stundum til miðnættis. Einn daginn byrjuðum við
kl. 05:00, daginn sem við flugum til Penghu eyjarogeyjaklas-
ans þar í kring vestur af Taiwan. Alltaf var boðið bæði til
hádegis- og kvöldverðar og gat hvor málsverður tekið allt upp
í 3 klst. með 14 réttum. Við fengum að bragða á mat sem
ekkert okkar er vant að láta upp í sig á hverjum degi og í flest-
um tilfellum aldrei smakkað áður. Allt var bragðað og eigin-
lega allt var gott og áreiðanlega hollt. Matur var svo vel útilát-
Götumynd úr yfirgefna þorpinu á eyju í Penghu eyjaklasanum.
inn að engin löngun var í nart milli mála eða gosdrykki enda
léttist ég um 5 kíló í ferðinni þótt ég stæði alltaf á blístri. Eng-
in vandamál varðandi matareitrun komu upp þrátt fyrir að við
borðuðum mikið af hráum mat. Okkur var sagt að vestræna
fólkið fengi yfirleitt matareitrun þegar það fengi sér að borða
á vestrænu veitingastöðunum eins og McDonalds og álíka
stöðum íTaiwan. Ekki rannsökuðum við það, heldur héldum
okkur við mat innfæddra allan tfmann.
Eyjan Taiwan er u.þ.b. 36.000 km2 eða einn þriðji af heild-
arflatarmáli Islands. Taiwan liggur um 160 kílómetra sunnan
við meginland Kína. Á eyjunni eru há fjöll sem teygja sig upp
yfir 4.000 metra og snjóar í þau á vetrum. Taiwan er eitt þétt-
býlasta land í heimi sem sjá má af því að ekki er nema hluti
landsins byggilegur vegna þess að fjöllin eru urn allt og þarna
búa 22 milljónir manna, í höfuðborginni Taipei 3 milljónir.
Meðalhiti árið um kring er 23 gráður í Taipei sem er staðsett
nyrst á Taiwan. Enn heitara verður eftir því sem sunnar
dregur. Taiwan tilheyrir Kínaþótt miklirtilburðirtil sjálfstæðis
séu á eyjunni sem hefur eigið þing og forseta. Maður verður
fljótt var við að samskiptin þarna á milli eru viðkvæm og virð-
ist fátt mega út af bera til að ekki sjóði upp úr. Taiwan hefur
verið undir stjórn ýmissa landa. Landið fór til Kína á ný eftir
síðari heimsstyrjöld en þá urðu Japanir að látaTaiwan af hendi
eftir að hafa verið með yfirráð þar síðan 1895. Fleiri lönd hafa
ríkt þarna m.a. Holland en frekar verður ekki talið upp hér.
Við nýttum öll tækifæri sem gáfust til að hitta fólk úr sjávar-
útvegsgeiranum á Taiwan og gekk það vel. M.a. var haldinn
sérstakur fyrirlestradagur í Sjávarútvegsháskólanum þar sem
við kynntum ísland og íslensk fyrirtæki. Þar fékk ég tækifæri
til að kynna nokkur fyrirtæki sem búa í ísafjarðarbæ. Miklar
fiskveiðar eru stundaðar á Taiwan og eru mörg skipin illa út-
búin, sumir láta sér nægja að veiða á flekum og hefur eina
tæknivæðingin þar verið að nú eru þeir smíðaðir úr skolprörum
úr plasti í staðinn fyrir bambus. Taiwanir eiga líka stór og full-
komin fiskiskip sem eru á veiðum á fjarlægum miðum. Þarna
er líka töluverð fiskvinnsla bæði með bolfisk og skelfisk. Þeir
vinna ýmsar afurðir úr fiskinum, í raun með mjög fjölbreyttum
hætti. Það er auðsjáanlega þörf fyrir ýmsa tækni þama s.s.
tölvuvogir og framleiðslulínur en verkefnið verður, fyrir íslensk
fyrirtæki ef þau sjá sér hag í að komast inn á markað þarna, að
kynna sig betur og sína framleiðslu. í Asíu eru Danir og aðrar
þjóðir búnir að koma sér vel á framfæri og eru t.d. með mikið
af vélbúnaði fyrir fiskeldið á Taiwan sem er stór atvinnugrein
þar. Okkar fyrirtæki eru með frábæra framleiðslu en þeirra
verður að sannfæra Taiwani um ágæti hennar og að það geti
fleiri en Danir framleitt góða vöru. Þá er líka mikill fiskinnflutn-
ingur til Taiwan því þeir ná ekki að fiska nægilegt magn fyrir
þjóðina. Við Islendingar Hytjum til þeirra rnjöl, lýsi, loðnu og
grálúðu svo það helsta sé talið. Hugsanlega er markaður fyrir
fleiri afurðir þarna s.s. aðrar fisktegundir. Vélbúnaður og fisk-
10 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999