Bæjarins besta - 09.06.1999, Qupperneq 14
Hvað nú?
Á mánudaginn urðu
vatnaskil á Vestfjörðum.
Hér skal því ekki haldið
fram að örlög byggðar á
íslandi hafí verið ráðin.
Slíkt væri ofrausn. Hinu
má þó ekki gleyma að
eftir klukkan 2 síðdegis
hinn 7. júní síðast liðinn
beindust sjónir margra
að Vestfjörðum og þeim
vandamálum, sem þar
blasa við og eru enn
óleyst. Enginn trúir því
að framtíð Vestfjarða og
Vestfirðinga út af fyrir
sig hafi úrslitaáhrif fyrir
byggð á Islandi.
Kvótakerfið hefur haft
slæm áhrif á byggð á
Vestfjörðum. Sumpart er
það vegna mistaka við
ákvarðanir heima-
manna, sem neituðu
alltof lengi að horfast í
augu við breyttar að-
stæður, keyptu ekki
kvóta fyrr en alltof seint
og töpuðu samkeppnis-
stöðunni.
Síðar létu menn glepj-
ast af fagurgala og seldu
sumir allt sitt til Akur-
eyrar. Þá var bæjarstjóri
á Isafirði sá hinn sami
og nú ríkir á Akureyri.
Hann fylgdi skipi
Hrannar, Guðbjörgu IS
46 til Akureyrar, þar
sem hann gerir það gott
sem bæjarstjóri. Skipið
er nú skráð í Þýskalandi.
Sjómennirnir hafa ekki
lengur vinnu, að minn-
sta kosti ekki allir. En
kvótinn reyndist þeim
vel sem gátu selt hann.
Verðugur er verka-
maðurinn launa sinna
segir í hinni helgu bók.
En fengu þeir launin sín
sem sköpuðu kvótann?
Svarið liggur ekki Ijóst
fyrir. Hitt er alveg skýrt
að mjög margir telja að
svo hafi ekki verið. Það
er ekki að ósekju.
Vissulega hafa útgerð-
armenn margir lagt sitt
af mörkum með sóma
og þá eru Hrannar-
mennirnir ekki undan-
skildir. En þeir áttu sér
marga fylgismenn í
landi, bæði karla og
konur sem unnu ósleiti-
lega úr aflanum sem að
landi kom. Það fólk
spurði ekki um afrakst-
urinn, ekki einu sinni
þegar Guðbjörgin gula
fór frá ísafirði. Það
skapaði verðmæti sem
urðu grundvöllur
kvótans. En sá guli fór
með henni.
Það fylgdu líka loforð
um að hún hefði áfram
heimahöfn á Isafirði.
Því trúðu margir í
V einfeldni sinni, enda
bæjarstjóri ísafjarð-
arbæjar stjórnarfor-
maður Samherja. Því
var spáð á þessum
vettvangi á sínum tíma
að hjartað slægi með
peningunum og fram-
tíðarmöguleikum
stjórnarformannsins.
Sem bæjarstjóri Isa-
fjarðarbæjar taldi hann
eðlilegt að sitja á
báðum stólum. Þegar til
Akureyrar var komið
nægði bæjarstjóra-
stóllinn.
Sú saga sagði allt
sem segja þurfti. Þegar
haft hafði verið af
ísfirðingum það sem
hirða mátti var allt í
Skoðanir
Stakkur skrifar
lagi að fara að stjórn-
sýslulögum. Nú var ekki
setið lengur á tveimur
stólum. Á mánudaginn
var hraðfrystihúsið á
Þingeyri slegið á nauð-
ungaruppboði eins og
það heitir víst á laga-
málinu fína. Enginn veit
nú lengur hvað bíður
hundruða manna sem
hafa unnið í fiski þar og
annars staðar á Vest-
fjörðum.
Upp á líf
og dauða
Sú barátta sem nú er
háð á Vestfjörðum er
upp á líf á dauða. Svo
illa horfir nú að
óbreyttu. Hér hefur
marg sinnis verið bent á
það að renna þurfi fleiri
og styrkari stoðum undir
atvinnulífið. En enginn
hefur tekið forystuna.
Öll þessi barátta minnir
um of á kvikmynd
Woody Allens, sem kom
fram fyrir tveimur árum.
Hún hét því háðulega
nafni „Take the money
and run”. Það gætu allt
eins verið einkunnarorð
nokkurra manna sem
komið hafa nálægt
stjórnun fyrirtækja og
stofnana á Vestfjörðum
undanfarin ár, því mið-
ur. Takið peningana og
hlaupið. í þessum dálki
hefur margt verið rætt
undanfarin ár við mis-
jafnar undirtektir. Nú
blasir alvaran við þeim
fjölmörgu sem eiga
enga peninga til að fara
burt með. Næsta skref er
stjórnmálamanna. Upp-
boðið á eignum Rauð-
síðu er ekki einkamál
______________neinsJ
SJÓNVARPIÐ
MIÐVIKUDAGUR
9. JÚNÍ1999
11.30 Skjáleikurinn
16.50 Leiðarljós
17.35 Táknmálsfréttir
17.45 Melrose Place (10:34)
18.30 Myndasafnið
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.45 Gestasprettur
20.05 Víkingalottó
20.10 Laus og liðug (15:22)
21.20 Fvrr og nú (18:22)
22.05 Nýjasta tækni og vísindi
22.30 Við hliðarlínuna
Fjallað er um íslenska fótboltann
frá ýmsum sjónarhornum.
23.00 Ellefufréttir og íþróttir
23.15 Skjáleikurinn
FIMMTUDAGUR
10. JÚNÍ 1999
10.30 Skjáleikur
16.10 Við hliðarlínuna
16.50 Leiðarljós
17.35 Táknmálsfréttir
17.45 Nornin unga (9:24)
18.05 Heimur tískunnar (3:30)
18.30 Skippý (5:22)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.45 Jesse (12:13)
20.10 HHÍ-útdrátturinn
20.15 Fimmtudagsumræðan
Fréttamenn Sjónvarpsins stjórna
umræðum um þau málefni sem
hæst ber hverju sinni.
20.45 Bflastöðin (10:12)
21.30 Netið (2:22)
22.20 Landsleikur í knattspyrnu
Sýndar verða svipmyndir úr leik
Rússa og Islendinga í undankeppni
Evrópumóts landsliða sem fram
fór á miðvikudagskvöld.
23.00 Ellefufréttir og íþróttir
23.15 Skjáleikurinn
FÖSTUDAGUR
11. JÚNÍ 1999
10.30 Skjáleikur
11.50 HM í handknattleik
Bein útsending frá Ieik í átta liða
úrslitum í Kaíró.
13.50 HM í handknattleik
Bein útsending frá leik í átta liða
úrslitum í Kaíró.
16.50 Leiðarljós
17.35 Táknmálsfréttir
17.45 Beverly Hills 90210
18.30 Búrabyggð (14:96)
19.00 Fréttir, veður og íþróttir
19.45 Guð er litblindur (2:3)
(Colour Blind)
Breskurmyndaflokkurgerðureftir
sögu metsöluhöfundarins Cather-
ine Cookson. Sagan gerist stuttu
eftir fyrri heimsstyrjöld og segir
frá ungri konu sem snýr heim til
Norður-Englands nýgift og með
barni.Maðurinn hennarerblökku-
maður og mæta þau miklum for-
dómum. Aðalhlutverk: Niamh
Cusack og Tony Armatrading.
20.40 Kavanagh lögmaður
Eitt sinn skal hver deyja
Ný bresk sjónvarpsmynd þar sem
Kavanagh tekur að sér að verja
lækni sem er sakaður um að hafa
myrt konuna sína. Aðalhlutverk:
John Thaw og Tom Courtenay.
22.00 Blóðakrar
(The Killing Fields)
Bresk bíómynd frá 1984 um
reynslu blaðamanns frá New York
Times af strfðinu í Kambódíu og
vináttu hans og þarlends leiðsögu-
manns. Aðalhlutverk: Sam Water-
ston. Haing S. Ngor.
00.20 Útvarpsfréttir
00.30 Skjáleikur
LAUGARDAGUR
12. JÚNÍ 1999
09.00 Morgunsjónvarp barnanna
10.30 Skjáleikur
16.25 íslandsmótið í snóker
Upptaka frá úrslitaleik Brynjars
Valdimarssonar og Jóhannesar B.
Jóhannessonar.
16.55 Formúla 1
Bein útsending frá tímatöku fyrir
kappaksturinn í Kanada.
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Nikki og gæludýrið (5:13)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.45 Einkaspæjarinn (2:13)
20.30 Lottó
20.35 Hótel Furulundur (4:13)
21.05 Micki og Maude
\. (Micki and Maude)
Bandarísk gamanmynd frá 1984 um
raunirsjónvarpsfréttamannssemhef-
ur tvær konur í takinu og gerir þeim
báðum bam. Aðalhlutverk: Dudley
Moore, Amy Irving og Ann Reinking
23.05 A síðustu stundu
(When Time Expires)
Bandarísk spennumynd frá 1998.
Ungur maður er sendur til Texas að
vinna verk sem á að koma í veg fyrir
gjöreyðingujarðarinnarendularfullir
menn reyna að hindra að honum takist
ætiunarverkið. Aðalhlutve rk: Richard
Grieco, Cynthia Geary og Mark
Hamill.
00.40 Útvarpsfréttir
00.50 Skjáleikur
SUNNUDAGUR
13. JÚNÍ 1999
09.00 Morgunsjónvarp barnanna
10.30 Skjáleikur
15.30 Öldin okkar (22:26)
16.30 Formúla 1
Bein útsending frá kappakstrinum í
Kanada.
18.50 Táknmálsfréttir
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.20 HM í handknattleik
Bein útsending frá seinni hálfleik í
undanúrslitaleik í Kaíró.
20.00 Aðför að lögum - Fyrri hluti
íslensk heimildarmynd um hin um-
deildu Guðmundar- og Geirfinnsmál
sem upp komu á áttunda áratugnum.
Seinni hlutinn verður sýndur að viku
liðinni.
20.55 Lífíð í Ballykissangel (4:12)
21.45 Helgarsportið
22.05 Hótel Paura
(Hotel Paura)
Frönsk/ítölsk sjónvarpsmyndum
framkvæmdastjóra sem missir allt sitt
og lendir í ræsinu en ástin eykur hon-
um styrk til þess að rísa upp á ný.Að-
alhlutverk: Sergio Castellito, Isabella
Ferrari, Iaia Forte og Roberto
De Francesco.
23.40 HM í handknattleik
Sýnd verður upptaka frá leik í undan-
úrslitumsem fram fórfyrrumkvöldið
í Kaíró.
00.20 Útvarpsfréttir
00.30 Skjáleikurinn
MÁNUDAGUR
14. JÚNÍ 1999
11.30 Skjáleikurinn
16.30 Helgarsportið
16.50 Leiðarljós
17.35 Táknmálsfréttir
17.45 Melrose Place (11:34)
18.30 Dýrin tala (23:26)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.45 Ástir og undirföt (7:23)
20.15 Vindhaninn (3:3)
(Torntuppen)
Sænskur myndaflokkur byggður á
tveimur skáldsögum eftir Jan Fride-
gárd. Gamall hermaður deyr en sér
til mikillar furðu fer hann hvorki til
himnaríkis né helvítis, heldur verður
um kyrrt á jörðinni þar sem hann get-
ur flogið um og fylgst með því sem
fram fer. Aðalhlutverk: Ingvar Hird-
wall, Anita Ekström og Christian Fex.
21.00 Kalda stríðið (14:24)
Rauða vorið: Sjöuiuli áratugurinn
Bandarískur heimildarmyndaflokk-
ur. Á 7. áratugnum gerðu þjóðir innan
Varsjárbandalagsins tilraunir í um-
bótaátt en hallarby Itingar og innrásin
í Tékkóslóvakíu gerðu vonir um
breytingar að engu.
21.50 Maöur er nefndur
22.30 Andmann (1:26)
23.00 Ellefufréttir
23.15 Sjónvarpskringlan
23.30 Skjáleikurinn
ÞRIÐJUDAGUR
15. JÚNÍ 1999
11.30 Skjáleikurinn
15.50 HM í handknattleik
Bein útsending frá leik um þriðja
sætið í Kaíró.
17.35 Táknmálsfréttir
17.45 Beverly Hills 90210 (13:34)
18.30 Tabalugi (3:26)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.45 HM í handknattleik
Sýndur verður úrslitaleikurinn sem
fram fer í Kaíró.
21.00 Becker (7:22)
21.25 Skuggi frelsisins (4:4)
22.20 Áfangastaðir
Básar í Goðalandi
í litlu dalverpi í skjóli jökla og tjalla
eru BásaríGoðalandi, vin vaxin kjarri
og öðrum gróðri. Þangað sækja þús-
undir ferðamanna á hverju ári, jafnt
sumar sem vetur.
Gengnar götur
Fjallað er um þrjár fornar þjóðleiðir í
nágrenni höfuðborgarsvæðisins,
Dyraveg þar sem hann liggur um
Sporhelludal, Hellisheiði í Hellis-
skarð og Selvogsgötu upp í Grindar-
skörð. Allar göturnar eru varðaðar
og glöggt má sjá hvernig gatan hefur
gengist niður í umhverfið og hraun.
23.00 Ellefufréttir og íþróttir
23.15 Sjónvarpskringlan
23.30 Skjáleikurinn
STÖÐ2
MIÐVIKUDAGUR
9. JÚNÍ 1999
13.00 Körfuholtahetjan (e)
14.25 Ein á báti (6:22) (e)
15.10 Vinir (17:24) (e)
15.35 Ó, ráðhús! (4:24)
16.00 SpegiII, spegill
16.25 Sögur úr Andabæ
16.50 Brakúla greifi
17.15 Glæstar vonir
17.40 Sjónvarpskringlan
18.00 Fréttir
18.05 Blóðsuguhaninn Buffy (5:12)
19.00 19>20
20.05 Samherjar (11:23)
20.50 Hér er ég (8:25)
21.15 Er á meöan er (7:8)
22.05 Murphy Brovvn (3:79)
22.30 Kvöldfréttir
22.50 íþróttir um allan heim
23.45 Körfuboltahetjan (e)
(Celtic Pride)
01.15 Dagskrárlok
FIMMTUDAGUR
10. JÚNÍ 1999
13.00 Hjartagosarnir
15.10 Oprah Winfrey (e)
15.55 Eruð þið myrkfælin?
16.20 Sögur úr Andabæ
16.45 Meðafa
17.35 Glæstar vonir
18.00 Fréttir
18.05 Sjónvarpskringlan
18.30 Nágrannar
19.00 19>20
20.05 Melrose Place (31:32)
21.15 Tveggja heima sýn (15:23)
22.05 Murphy Brown (4:79)
22.30 Kvöldfréttir
22.50 í lausu lofti (18:25)
23.35 Nílargimsteinninn (e)
(The Jewel OfThe Nile)
Afar vinsæl spennu- og ævintýra-
mynd sem íjallar um háskaför ungra
elskenda um Norður-Afríku í leit að
dýrmætum gimsteini. Aðalhlutverk:
Danny Devito, Kathleen Turner og
Michael Douglas.
01.20 Hjartagosarnir (e)
(The Five Heartbeats)
Á blómaskeiði rokksins eru fimm
ungir og óreyndir rokkarar að ryðja
sér til rúms í tónlistarheiminum. Þeir
eru í sömu hljómsveit og Jdú dreymir
alla um að komast á toppinn. Leiðin
til frægðar er hins vegar þyrnum stráð
og þegar á móti blæs skiptir sköpum
að samstaðan sé góð innan hópsins.
Aðalhlutverk: Robert Townsend,
Leon, Harry J. Lennix og Michael
Wright.
03.20 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
11. JÚNÍ 1999
13.00 Er á meöan er (7:8)
13.50 Sundur og saman í Hollywood
14.40 Barnfóstran (14:22) (e)
15.00 Handlaginn heimilisfaðir
15.25 Ó, ráðhús! (5:24) (e)
15.45 Seinfeld (4:22) (e)
16.10 Gátuland
16.40 Sögur úr Andabæ
17.05 Blake og Mortimer
17.30 Á grænni grund
17.35 Glæstar vonir
18.00 Fréttir
18.05 Sjónvarpskringlan
18.30 Heima (e)
19.00 19>20
20.05 Fyrstur með fréttirnar (22:23)
21.00 Regnboginn
(Rainbow)
Með hjálp kraftmikillar tölvu tekst
fjórum snjöllum krökkum að komast
undir regnbogann. Þar finna þau
regnbogagull sem þau taka með sér
en hefðu betur látið það ógert Aðal-
hlutverk: Bob Hoskins, Jack Fisher
og Willie Levendahl.
22.45 Leikurinn
(The Game)
Á fertugusta og áttunda afmælideg-
inum sínum fær viðskiptajöfurinn
Nicholas gjafabréf hjá fyrirtæki sem
sérhæfir sig í að krydda til veru manna.
Þegar Nicholas mætir til að innheimta
gjöfina er hann dreginn inn í leik sem
ætlar engan endi að taka. Aðalhlut-
verk: Michael Douglas, Sean Penn
og Caroll Baker.
00.55 Erfið ákvörðun (e)
(Sophie and the Moonhanger)
02.25 Táldreginn (e)
(The Last Seduction)
04.00 Dagskrárlok
LAUGARDAGUR
12. JÚNÍ 1999
09.00 Herramenn og heiðurskonur
09.05 Líf á haugunum
09.10 Heimurinn hennar OIIu
09.35 Bangsi litli
09.40 TaoTao
10.05 Villingarnir
10.25 Grallararnir
10.50 Baldur búálfur
11.15 Sögur úr Andabæ
11.35 Úrvalsdeildin
12.00 NBA-tilþrif
12.25 Elskan ég minnkaði hörnin
13.10 Afarkostir (e)
14.50 Kóngurinn og ég (e)
17.00 Oprah Winfrey
17.45 Sundur og saman í Hollywood
18.35 Glæstar vonir
19.00 19>20
20.05 Ó, ráðhús! (19:24)
20.35 Vinir (12:24)
21.05 Svikavefur
(Circle of Deceit)
Terry Morrison er gift framagjörnum
lögfræðingi sem skeytir lítið um hana
og son þcirra hjóna. Þegar Terry
ákveður að skilja við manninn hefur
hann af henni allt sem henni er kært í
hefndarskyni. Terry leggur á ráðin
og ákveður að koma eiginmanninum
fyrrverandi í verri mál en nokkurn
gæti órað fyrir. Aðalhlutverk: Janine
Turner, Esai Morales og Joanna
Cassidy.
22.40 Odessa-skjölin
(The Odessa File)
Roskinn gyðingur fremur sjálfsmorð
í Hamborg árið 1963. Blaðamaðurinn
Peter Miller kemst yfir dagbók hans
og les þar um hrottalega glæpi sem
framdir voru í fangabúðum nasista í
Lettlandi undirstjóm Eduards Rosch-
manns. Aðalhlutverk: Jon Voight,
Maximilian Schell og Maria Schell.
00.45 Sabrina (e)
Harrison Ford leikur viðskiptajöf-
urinn Linus Larrabee. Linus þessi er
snjall í viðskiptum og setur ekki fyrir
sig að beita öllum brögðum. Aðal-
hlutverk: Harrison Ford, Julia Or-
mond og Greg Kinnear.
02.50 Örlagadans (e)
(Naked Tango)
04.20 Dagskrárlok
SUNNUDAGUR
13. JÚNÍ 1999
09.00 Fíllinn Nellí
09.05 Sögur úr Broca-stræti
09.20 Finnur og Fróði
09.30 ÖssiogYlfa
09.55 Donkí Kong
10.20 Skólalíf
10.45 Dagbókin hans Dúa
11.10 Krakkarnir í Kapútar
11.35 Týnda borgin
12.00 Sjónvarpskringlan
12.20 Daewoo-Mótorsport (7:23)
12.50 Elskan ég minnkaði börnin
13.35 Simpson-fjölskvldan (3:24)
14.00 Afarkostir (e)
14.50 Skipt um hlutverk (e)
16.25 Blóð og sandur
18.30 Glæstar vonir
19.00 19>20
20.05 Ástir og átök (17:25)
20.35 Orðspor (2:10)
21.30 Landamærin
(The Border)
Charlie er einn þeirra sem á að standa
vörð um að ólöglegir innflytjendur
komist ekki yfir landamæri Mexíkós
og Bandaríkjanna. Hann á það þó til
að hleypa fólki yfir landamærin gegn
greiðslu en þetta gerir hann meðal
annars til að hafa eiginkonu sína góða.
Aðalhlutverk: Harvey Keitel, Jack
Nicholson og Valerie Perrine.
23.20 Kryddlegin hjörtu
(Como Agua Para Chocolata)
01.10 Dagskrárlok
MÁNUDAGUR
14. JÚNÍ 1999
13.00 Drauniadísin Marilvn (e)
14.30 Glæpadeildin (7:13) (e)
15.15 Vinir (18:24) (e)
15.35 Ó, ráðhús! (6:24) (e)
16.00 Eyjarklíkan
16.25 Sögur úr Andabæ
16.50 Maríanna fyrsta
17.15 María maríubjalla
17.25 Úr bókaskápnum
17.35 Glæstar vonir
18.00 Fréttir
18.05 Sjónvarpskringlan
18.30 Nágrannar
19.00 19>20
20.05 Ein á báti (7:22)
21.00 Égferífríið
(Tourist Trap)
22.30 Kvöldfréttir
22.50 Draumadísin Marilyn (e)
00.25 Dagskrárlok
ÞRIÐJUDAGUR
15. JÚNÍ 1999
13.00 Samherjar (11:23) (e)
13.45 Orðspor (2:10) (e)
14.45 Fyrstur með fréttirnar (22:23)
15.50 Ástir og átök (20:25)
16.10 Kóngulóarmaðurinn
16.30 Sögur úr Andabæ
16.55 I Barnalandi
17.10 Simpson-fjölskyldan
17.35 Glæstar vonir
18.00 Fréttir
18.05 Sjónvarpskringlan
18.30 Nágrannar
19.00 19>2<)
20.05 Barnfóstran (15:22)
20.35 Handlaginn heimilisfaðir
21.05 Árásir dýra (4:4)
22.00 Daewoo-Mótorsport (8:23)
22.30 Kvöldfréttir
22.50 Fráskilin á tlótta (e)
(Nowhere To Hide)
Sarah Blake er auðug ung kona sem
lifir býsna eftirsóknarverðu Iífi. Þar
til dag einn að gerð er tilraun til að
myrða hana. Alríkislögreglumaður-
inn Kevin Nicholas tjáir henni að
einhver sem hún þekkir hafi sett fé
henni til höfuðs. Sarah fær vitnavernd
og reynir allt hvað hún getur til að
komast að því hver vill hana feiga.
Myndin er að hluta byggð á sann-
sögulegum atburðum. Aðalhlutverk:
Rosanna Arcpiette, Scott Bakula og
Max Pomeranc. Leikstjóri: Bobby
Roth.1994. Bönnuð börnum.
00.20 Dagskrárlok
14 MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 1999