Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.06.1999, Page 1

Bæjarins besta - 23.06.1999, Page 1
■ SUMAROPNUN BÓKHLÖÐUNNAR Mánudaga til föstudaga Laugardaga kl. 10-13 \ * h kl< mmimm W SÍMI456 3123 l tmnnn wumininri ám Miðvikudagur 23. júní 1999 • 25. tbl. • 16. árg. Stofnað 14. nfivember 1984 • Sími 4S6 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk Góð þátttaka í kyennahlaupinu Áfimmta hundrað konur tóku þátt í kvennahlaupinu á Isafirði sem þreytt var á sunnu- dag og hafa þátttakendur líklegast ahlrei verið fleiri. A síðasta ári tóku 399 konur þátt og 428 mœttu til leiks árið 1997 sem var það mesta til þessa. I boði voru þrjár vega- lengdir og var góð þátttaka íþeim öllum. Aður en hlaupið hófst liitaði kvenþjóðin upp við íþróttahásið á Torfnesi og var meðfylgjandi mynd tekin við það tœkifœri. Það var blakhópur kvenna sem kallar sig Skellur sem sá um skipulagningu lilaupsins. Nýr golfskáli Go/fk/úbbs ísafjarðar Vígluhátíð á laugardag Nýr golfskáli Golfklúbbs ísatjarðar í Tungudal verður formlega tekinn í notkun á laugardag að viðstöddum fé- lögum golfklúbbsins, styrkt- araðilum og fleiri gestum. Að vígslu lokinni fer fram hið árlega Jónsmessumót, en í því er léttleikinn hafður ofar allri spilamennsku. Hinn nýi golfskáli er allur hinnglæsilegasti. Hanner260 fermetrar á tveimur hæðum og við hann hafa verið byggð- ar um 100 fermetra svalir. ,,Á efri hæð er stór salur, veitingaaðstaða, geymsla, snyrting og stjórnarherbergi Ilinit nýi golfskáli í Tungudal. Þegar Ijósmyndari blaðsins átti þar leið um síðustu helgi var unnið að lokafrágangi ut- anhúss. og á neðri hæð er snyrting og einn glæsilegasta golfskála bað ásamt kerru- og tækja- landsins," sagði Tryggvi geymslu og mótaaðstöðu. Nú Guðmundsson, formaður þegar við tökum nýja skálann Golfklúbbs ísafjarðar í sam- í notkun erum við komnir með tali við blaðið. — sjá frásögn og myndir af opnunarhátíö Þróunarseturs Vestfjarða í miðopnu r A ferð um Vestfirði komið út Ferða- og þjónustublaðið „Á ferð um Vestfirði" er komið út. Blaðið er gefið út af H-prenti ehf. útgáfufélagi Bæjarins besta, og er þetta fimmta árið sem blaðið kemur út. Frá upphafi hefur því ver- ið dreift til á fimmta hundr- að þjónustustaða fyrir ferða- menn víðsvegar um land og er svo einnig nú. Vinsældir þess hafa aukist ár frá ári og hefur því þurft að auka upp- lagið árlega. Svo var einnig gert í ár. Að þessu sinni er blaðið 24 síður að stærð og allt prentað í fjórlit. Það er von aðstandenda blaðsins að það nýtist ferðafólki á leið um Vestfirði sem best sem og að það verði til að auka áhuga landsmanna á að heimsækja fjórðunginn í sumar eða í byrjun næstu aldar. Vestfirðingum gefst einnig kostur á að fá blaðið á helstu ferðamannastöðum sem og á sjoppum og bensínstöðvum víðsvegar um Vestfirði. Blaðinu er dreift ókeypis.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.