Bæjarins besta - 23.06.1999, Blaðsíða 2
Útgefandi: Ábyrgðarmenn:
H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson
Sólgötu 9, 400 ísaflörður Halldór Sveinbjörnsson
■B 456 4560 Ritstjóri:
0456 4564 Sigurjón J. Sigurðsson
Netfang prentsmiðju: Blaðamaður:
hprent@snerpa.is Hljmur Þór Magnússon
Stafræn útgáfa: Netfang ritstjómar:
http://www.snerpa.is/bb bb@snerpa.is
Bæjarins tiesta er í samtökumbæjar- og héraðs-
fréttahlaða. Eftirprentun, hijóðritun, notkun Ijósmynda
og annars efnis er óhelmll nema heimllda sé getið.
Rauðsíða
Forstjóri Byggðastofnunar neitaði að afgreiða 100 millj-
ónirað láni til Rauðsíðu á Þingeyri. Skilyrðin sem stjórnin
setti fyrir lánveitingunni voru ekki uppfyllt að mati for-
stjórans. Málið er þar með út af borði Byggðastofnunar.
Framkvæmdastjóri Rauðsíðu er á öndverðum meiði og
segist betur hefði fengið afsvar strax í stað langra fæðingar-
hríða á synjun.
Sókn Rauðahersins á Vestfjörðum hófst með miklum
þunga. Ekki var annað vitað en að þar stæðu djarfir menn
og framsæknir að baki, tilbúnir með fé og ómælda fyrir-
höfn til að byggja upp traust fyrirtæki. Ekki var ætlunin
að tjalda til fárra nátta. Eitthvað hefur ekki gengið eftir.
„Við höfum ekki heyrt annað en að Rauðsíða hafi
gengið vel” sagði Fllynur verkstjóri og bætti við, að
vinnslustöðvunin hafi ekki legið í loftinu og komið mjög
á óvart. Því miður er það nú svo með mál af þessu tagi að
þau gera ekki boð á undan sér frekar en ýmsar náttúruham-
farir, sem allajafnan eiga sérþó aðdraganda. En vissulega
kemur þetta alltaf jafn óvænt og illa við fólk.
Hér verður ekki kveðinn upp dómur um hvort Byggða-
stofnun gerði rétt eða rangt. Hitt skal aftur á móti fullyrt
að mál Rauðsíðu og annarra fiskvinnslufyrirtækja sem
eiga í sömu glímunni verða ekki leyst til frambúðar með
svo og svo miklum peningaaustri úr opinberum sjóðum,
hverju nafni sem þeir nefnast. Þar þarf annað að koma til.
Stjórn íbúasamtakanna Ataks á Þingeyri, bæjarstjórn
Isafjarðarbæjar og þingmenn Vestfjarðakjördæmis þing-
uðu kvöldið fyrir þjóðhátíð um það alvarlega ástand sem
vissulega er á Þingeyri þegar á annað hundrað manns í
ekki stærra samfélagi er í óvissu með vinnu sfna. Og á í
sumum tilfellum vart til hnífs eða skeiðar.
„Þetta varmjög málefnalegurfundurog mikilleinhugur
allra sem hann sátu um að finna góða og varanlega lausn
á þessum vanda sem er mjög alvarlegur. Við horfum til
þess að hér hefjist að nýju öflug fiskvinnsla sem er auð-
vitað undirstaða atvinnulífsins á svæðinu” sagði Einar
Kristinn, fyrsti þingmaðurVestfirðinga, um fundinn. Engar
heildarlausnir komu fram enda ekki við því að búast.
Þingeyri og Þorlákshöfn. Fiskvinnsla á þessum stöðum
stendur ekki eða fellur með því hvort Byggðastofnun lán-
ar milljóninni meira eða minna til þessara staða heldur
því, hvort breyting verður á þeirri stjórnarstefnu sem er
að leggja vinnslu á fiski í landi í auðn.
Jafnvel gild lán frá Byggðastofnun megna ekki að
breyta þeirri helstefnu. Það geta þingmenn hins vegar.
En, til þess þarf manndóm og kjark.
-s.h.
OÐÐ VIKUNNAÐ
Bfll
Orðið bíll er komið beint úr dönsku. Þetta
stuttnefni er síðasta atkvæði orðsins auto-
mobil, sem er myndað úr latneskum orðstofn-
um og merkir fyrirbæri sem hreyfist af sjálfs-
dáðum eða fyrir eigin krafti (auto: sjálfur;
mobilis: hreyfanlegur). Sumar aðrar þjóðir
hafa á hinn bóginn tekið fyrsta atkvæði þessa
orðs til sömu nota, sbr. þýska orðiðAuto: bíll.
Varnarskurðir fyrir ofan Hjaiiaveg og Uróarveg
Engin vinnutæki hafa
sést á svæðinu í tíu daga
Framkvæmdir eru enn ekki
hafnar við breikkun og dýpk-
un varnarskurða fyrir ofan
Hjallaveg og Urðarveg á Isa-
firði þrátt fyrir að loforð hafi
verið gefm þar um af bæjar-
stjóra ísafjarðarbæjar, Hall-
dóri Halldórssyni. I síðasta
tölublaði BB sagði bæjarstjór-
inn: „Það verður byrjað á því
að flytja efnið úr skurðunum
frá svæðinu. Síðan munum
við breikka og dýpka skurðina
og gera þá þannig úr garði að
þeir geti tekið við meira efni
en þeir hafa gert til þessa.
Grafan er á staðnum og því
verður þetta verk unnið næstu
daga."
Nú tíu dögum síðar situr
allt við það sama. Engin
vinnutæki hafa sést á svæðinu.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
náðist ekki íHalldórHalldórs-
son bæjarstjóra í gær en hann
var staddur í Reykjavík. Ár-
mann Jóhannesson, bæjar-
verkfræðingurísafjarðarbæjar
sagðist lítið geta tjáð sig um
málið við blaðið þar sem hon-
um hefði ekki tekist að ræða
það við bæjarstjórann vegna
anna. Hann sagði þó að fram
til þessa hefði ekki verið hægt
að fara með stórvirk tæki inn
á svæðið vegna mikillar
bleytu í jarðveginum. „Það
verður að gera þetta við fyrsta
hentugleika," sagði Ármann.
I síðasta BB var einnig haft
eftir bæjarstjóranum að næsta
skref yrði að hafa samband
við Ofanflóðasjóð og Viðlaga-
tryggingu, bæði hvað varðar
það tjón sem orðið hefur, og
hins vegar vegna áframhald-
andi framkvæmda. Ármann
hafði enga vitneskju um
hvernig það mál stæði.
Mesta váin í hlíðinni fyrir
ofan Hjallaveg og Urðarveg
er hrun stórgrýtis, eins og
berlega kom í ljós þegar 12-
15 tonna bjarg stöðvaðist rétt
fyrir ofan byggðina við Urð-
arveg. Samkvæmt upplýs-
ingum blaðsins eru nokkur
stór og hættuleg björg í hlíð-
inni sem hugsanlega gætu
farið af stað í næstu leysing-
um. Hugmyndir hafa komið
fram um að sprengja hættu-
legustu björgin líkt og gert
var árið 1983 eða 1984.
í samtali við blaðið í síð-
ustu viku sagði bæjarstjór-
inn að þau mál yrðu skoðuð.
„Það verður dustað rykið af
gamalli skýrslu þar sem gert
er ráð fyrir slíkum sprenging-
um á tveggja ára fresti... við
munum fara í allar þær að-
gerðir sem þarf til að tryggja
öryggi fólks á svæðinu," sagði
Halldór. Enn sem komið er
hefur ekkert frést af málinu
en Ármann sagðist í samtali
við blaðið telja að bæjarstjór-
inn hefði þegar hafið athug-
anir á þessu.
Dr. Þorsteinn Sæmundsson,
jarðfræðingur hjá Veðurstofu
íslands fór við þriðja mann til
að skoða aðstæður í Eyrarhlíð
í síðustu viku. Ekkert hefur
verið látið uppi um niðurstöð-
ur þeirrar vettvangskönnunar.
Kynningarfundur um snjófióðavarnir í Boiungarvfk
Skiptar skoðanir með-
al íbúa um tillögurnar
Á mánudag var haldinn al-
mennur borgarafundur í Bol-
ungarvfk þar sem nýjar til-
lögurað snjóflóðavörnum fyr-
ir bæjarfélagið voru kynntar.
Á annað hundrað manns
mættu til fundarins og voru
skiptar skoðanir meðal þeirra
um þær tillögur sem lagðar
voru fram. Það voru fulltrúar
frá Orion ráðgjöf ehf. og
Verkfræðistofu Austurlands
sem kynntu hugmyndirnar
ásamt stjórn Ofanflóðasjóðs,
fulltrúum frá Veðurstofu Is-
lands og Framkvæmdasýslu
ríkisins.
Þær tillögur sem helst eru
taldarkomatil greinaeru sam-
bland varnargarða og rýminga
Framhaidsskóiinn
Opnar 0-deild
á Patreksfírði
Skólameistari Fram-
haldsskólaVestfjarða, Björn
Teitsson, hefur ákveðið að
opna 0-deild á Patreksfirði
næsta vetur vegna útkom-
unnar á samræmdu prófun-
um þar í vor, en eins og
kunnugt er náði aðeins einn
nemandi prófi af þeim 23
sem þreyttu það.
Utstöð hefur verið á Pat-
reksfirði á vegum Fram-
haldsskóla Vestfjarða í
nokkur ár með hléum en
þetta er í fyrsta skipti sem
0-deild er sett á laggirnar á
staðnum.
Afleitur námsárangur hjá
grunnskólanemendum í 10.
bekk á Patreksfirði hefur
dregið meðaltal einkunna
samræmdu prófanna áVest-
fjöðrum verulega niður.
Skólastjóra Grunnskóla
Patreksfjarðar, Guðbrandi
Stíg Ágústssyni, mun hafa
verið sagt upp störfum
vegna þessa máls. And-
stæðingar Guðbrands, sem
jafnframt er bæjarfulltrúi.
hafa að hans sögn, ítrekað
reynt að finna á honum
höggstað.
Hann hefur verið sakaður
um að hafa farið út fyrir
verksvið sitt í stjórn skólans
og að kennsla hjá honum
hafi verið í molum vegna
anna hans í sveitarstjórnar-
pólitíkinni.
Guðbrandur vakti athygli
fyrir fáum árum fyrir sér-
stæða auglýsingahert'erð í
því skyni að ráða réttinda-
kennaratil starfaástaðnum.
Hann segir í DV að vitræn
umræða hafi ekki náðst um
skólamálin á staðnum.
auk uppkaupa á einhverjum
húsum. Auk þess gerir ein
hugmy ndin ráð fyrir rás af því
tagi sem kynnt var í febrúar
sl„ einungis miklu styttri.
Kostnaður við gerð hennar er
talinn um 520 milljónir króna
en kostnaður við gerð varnar-
garða auk uppkaupa nokkru
minni eða allt niður í 300
milljónir króna eftir útfærslu.
„Fyrirspurnir fundarmanna
voru margvíslegar og gagn-
legarog bæjarstjórn mun taka
þær til umfjöllunar og um-
ræðu í þessum mánuði þegar
tillögur verðagerðar til stjórn-
ar Ofanflóðasjóðs um leiðir
til frekari skoðunar," sagði
Ólafur Kristjánsson, bæjar-
stjóri í Bolungarvík í samtali
við blaðið.
Hann sagði vissulega skipt-
ar skoðanir um snjóflóðavarn-
irnar og að það væri alveg
sama hvaða leið yrði valin,
alltaf yrði einhver skoðana-
munur á milli manna. „Eg
vonast til þess að bæjarstjórn-
in nái innbyrðis sátt um málið
því það hlýtur að auka traust
bæjarbúa á frekari aðgerð-
Aðalfundur
AðalfundurKarladeildarSVFÍ (Bjsv. Skutull)
verðurhaldinn í Sigurðarbúð miðvikudaginn
30.júníkl. 19:00 á undan aðalfundi Björg-
unarfélags ísafjarðar.
Sjá einnig auglýsingu á bls. 6.
Stjórnin.
Ólafur Kristjánsson, bœjar-
stjóri í Bolungarvik.
um."
Samkvæmt framkvæmda-
röð er gert ráð fyrir að fram-
kvæmdir geti hafist árið 2001.
„Nokkur önnur sveitarfélög
sem eru framar í fram-
kvæmdaröð en við, eru í bið-
stöðu með sín mál, og ef
ákvörðun hjá okkur getur leg-
ið fljótlega fyrir sem og um-
hverfismat og hönnun og ef
Ofanflóðasjóður hefur yfír
fjármunum að ráða, þá standa
vonir okkar til að hægt verði
að hefja framkvæmdir á næsta
ári," sagði Ólafur.
2
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999