Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.06.1999, Page 3

Bæjarins besta - 23.06.1999, Page 3
Ósvör Heimsótt P r • r fra sjo Rúmlega 90 erlendir ferðamenn af skemmti- ferðaskipinu Explorer skoðuðu Ósvör við Bol- ungarvík síðdegis á mánu- dag. I stað þess að þeir kæmu með rútu frá Isafirði var skipinu siglt til Bolungar- víkur og farþegarni r fl uttir ágúmmíbátum frá skipinu og land tekið í Ósvör. Þetta mun vera í fyrsta skipti frá því minjasafnið í Ósvör tók til starfa sem gestir hafa heimsótl það frá sjó. Geir Guðntundsson safnvörðurtók á móti fólk- inu íklæddur skinnklæð- um að venju og flutti fróð- leik um líf og starf manna í Ósvör frá árabátaöld. Vestfirðir Sjóstanga- veiðimót SJÓÍS Aðalmót Sjóstanga- veiðifélags Isfirðinga verður haldið föstudaginn 2. júlí og laugardaginn 3. júlí nk. Mótið er eitt átta móta íslandsmótsins í sjó- stangaveiði en þau eru haldin á jafn mörgunt stöðum á landinu frá maí til ágúst ár hvert. Róið verður frá Bolung- arvík á bátum frá Isafirði og Bolungarvík. Látið er úr höfn kl. 06 báða dagana og er veiðitíminn 7-8 tíma hvorn dag. Mótsetning er íFinnabæ l.júlíkl. 20:30. A síðasta ári tóku á fjórða tug keppenda þátt í mótinu. Skráning í mótið og nánari upplýsingar eru hjá Þóri Sveinssyni í síma 436 3298, Sigrúnu Bald- ursdóttur í síma 456 4044 og hjá Ragnheiði Jóns- dóttur í síma 456 7142. Skráning verður að liggja fyrir í síðasta lagi kl. 17 laugardaginn 27. júní. Þingeyri. Féiagsmáiaráðherra gerð grein fyrir vanda hátt í200 fiskvinnsiustarfsmanna ,,Rauða hersins" Hafa ekki fengið laun í sex vikur Fulltrúar bæjarráða ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkur og Vest- urbyggðar funduðu á mánudag með ráðuneytisstjóra félags- málaráðuneytisins um þá stöðu sem komin er upp hjá rúmlega 190 starfsmönnum „Rauða hersins" þ.e. Rauðsíðu á Þingeyri, Rauðfelds á Bíldudal og Bolfísks í Bolungarvík, en þeir hafa ekki fengið greidd laun í sex vikur. Fulltrúarbæjarráðannamunu hafalagt til við ráðuneytisstjóra að erlendu starfsfólki fyrirtækjanna yrði gert kleift að vera lengur hér á landi í þeirri von að rekstur fyrirtækjanna komist í gang á ný. Ráðuneytisstjórinn mun hafa tekið vel í erindið og var gert ráð fyrir að hann skýrði félagsmálaráðherra frá stöðu mála í gær. Starfsfólkinu hefur verið boðin vinna annars staðar á landinu en því hefur verið tjáð að ekki sé ráðlegt að segja upp störfum því þá tapaði það réttindum sínum. Þá var þess farið á leit við ráðuneytið að það veitti starfsfólkinu einhverja fyrirgreiðslu svo það gæti lifað sómasamlegu líft. Síðastliðinn sunnudag fór fram óformlegur fundur með bæjarstjórnum ísafjarðarbæjar og Vesturbyggðar þar sem ákveðið var að bæjarfélögin ynnu saman að lausn málsins. Á mánudag var síðan fundað með bæjarstjórn Bolungarvíkur, Alþýðusambandi Vestfjarða og Vinnumálaskrifstofu félags- málaráðuneytisins. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur verið leitað til nokkurra fyrirtækja og einstaklinga, bæði í sveitarfélögunum og víðar með hugsanlega innkomu að rekstri fyrirtækjanna. Ekkert hefur verið gefið upp við hvaða aðila hefur verið rætt. Eins og kont fram í fréttum í síðustu viku hafnaði stjórn Byggðastofnunar beiðni Rauðsíðu um 100 milljóna króna lán þar sem forstjóri stofnunarinnar taldi fyrirtækið ekki uppfylla þau skilyrði sem sett voru fyrir lánveitingunni. Stjórn Rauðsíðu fundaði um málið um síðustu helgi. I gær hafði stjórnin ekkert látið uppi um hvert framhald málsins yrði. Ketill Helgason, framkvæmdastjóri mun þó hafa látið að því liggja að hugsanlegt væri að send yrði inn ný lánsumsókn og þá beint til stjórnar Byggðastofnunar. Hann mun hafa verið óánægður með vinnu- brögð forstjóra og starfsmanna stofnunarinnar. Amar G. Hinriksson hdl. Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími: 456 4144 *<fax: 456 4243 F asteignaviðskipti Eftirtaldar eignir eru einungis sýnishorn úr sölu- skrá okkar, leytið nánari upplýsinga á skrifstofu. ISAFJÖRÐUR Adalstræti 13: Efri hæð í tvíbýlis- húsi ásamt hálfum kjallara og tvö- földum bílskúr. Hjallavegur I: I83m2 einbýlishús með innbyggðum bílskúr. Verðlauna- garður. Laust fljótlega. Heiðarbraut 12: Rúmlega 220m2 tvílyft einbýlishús ásamt bílskúr. Geta verið tvær íbúðir. Laust fljótl. Verð kr. I 1.500.000,- Skipti á minni eign koma til greina. Kirkjubær: Lítið einbýlishús. Laust. Mánagata 6: Efri hæð I55m2 5-6 herbergja. Laus fljótlega. Mjallargata 6, norðurendi: Lítil 3- 4 herb. íbúð ásamt tvöföldum bílskúr. Laus fljótlega. Pólgata 4: 5 herbergja íbúð á 3. hæð. Verð: 3.600.000,- Stakkanes 6: Rúmlega I40m2 raðhús ásamt bílskúr og sólstofu. Verð I 1.500.000,- Stórholt II: 3ja herbergja íbúð á 3. hæð fyrir miðju. Laus. Verð: 4.300.000,- Stórholt 13:4ra herb. íbúð á 2. hæð ásamt bílskúr. Skipti á ódýrari eign eða jafnvel bíl koma til greina. Ibúðin er laus. Verð kr. 7.800.000 Strandgata 5: Hnífsdal, 2ja herb. íbúð 65 m2 á 2. hæð í sambýlishúsi. íbúðin er laus. Verð kr. 1.000.000 Seljalandsvegur 22: Rúmlega 130 m2 einbýlishús, nýstandsett að utan og innan. Verð 10.500.000,- Urðavegur 24: 240m2 raðhús með bílskúr. Verð: 7.000.000,- bílskúr. Völusteinsstræti 3: Einbýlishús ásamt bílskúr. Hlíðarvegur 14: Einbýlishús, kjallari, hæð og óinnréttað ris. Grunnflötur ca. 90m2 Húsið er nýuppgert að mestu. Verð kr. 10.400.000.- BOLUNGARVIK Aðalstræti 18: Tvílyft einb.hús, rúmlega 200m2 ásamt bílskúr. Verð 3.300.000,- Hafnargata 7: Efri hæð í tvíbýlis- húsi. Verð: 2.800.000,- Höfðastígur 6: Rúmlega 170m2 íbúð á efri hæð og séríbúð í kjallara. Selst sitt í hvoru lagi. Þuríðarbraut 9: Rúmlega I20m2 einbýlishús úr timbri ásamt mjög stórum bílskúr (hátt til lofts). Húsið getur verið laust fljótlega. Hagstæð greiðslukjör - engin útborgun. Búðarkantur 2: Rúmlega 200m2 stálgrindarhús. Holtabrún 5: Ca. I40m2 einbýlis- hús ásamt bílskúr. Stigahlíð 2 og 4: 2ja og 3ja herb. íbúðir. Verð: 1,5 til 3 milljónir. Traðarland 10: Einbýlishús ásamt bílskúr. Verð: 7,2 milljónir. Vitastígur 9: 2 x 75m2 parhús. Nýuppgert og mjög vandað. Völusteinsstræti 28: I50m2 ein- býlishús á tveimur hæðum ásamt PATREKSFJORÐUR Hjallar 10: Stórt einbýlishús - laust. Verð: 3.600.000,- FLATEYRI Hjallavegur 14 og 16: Lítil raðhús á einni hæð. Hjallavegur 18: Efri og neðri hæð í tvíbýlishúsi. Hjallavegur 20: Efri hæð í tvíbýlis- húsi Góð áhvílandi lán fylgja öllum eignunum á Flateyri. WEnsntt Hjallavegur 9: Neðri hæð. Laust. Sætún 6: Raðhús. Laust. Hlíðarvegur 10: Efri hæð í tvíbýlis- húsi. Góð áhvílandi lán. Hjallavegur II: Einbýlishús, 160- 170m2, illa farið. Verð kr. 2 millj., allt áhvílandi. Vikan framundan Miðvikudagur 23. júní Þennan dag árið 1977 var þjóðveldisbærinn í Þjórsár- dal formlega opnaður, Hann var reistur í tilefni 1100 ára byggðar á Islandi og var tek- ið mið af rústum bæjarins á Stöng. Fimmtudagur 24. júní Þennan dag árið 1988 var vatnsrennibraut tekin í notk- un í Laugardalslaug. Stuttu frá eða í Laugardalshöll hélt kanadíski söngvarinn og ljóðskáldið Leonard Cohen tónleika sem voru þéttsetnir. Föstudagur 25. júní Þennan dag árið 1990 komu Elísabet Englandsdrottning og Filippus maður hennar í þriggja daga opinbera heim- sókn til Islands. Laugardagur 26. júní Þennan dag árið 1992 var síðasta brennivfnsflaskan framleidd hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, en sú fyrsta var framleidd 1. febr- úar 1935. Báðar flöskurnar voru afhentar Þjóðminja- safninu til varðveislu. Fram- leiðslutæki og uppskriftir voru seldar einkaaðilum. Sunnudagur 27. júní Þennan dag árið 1990 hélt Bob Dylan, hinn þekkti bandaríski söngvari og laga- höfundur, tónleika í Laugar- dalshöll í tengslum við Listahátíð. Mánudagur 28. júní Þennan dag árið 1977 var stór stafur aftur tekinn upp í þjóðaheitum og nöfnum á íbúum landa og landshluta þegar menntamálaráðuneyt- ið gaf út auglýsingu um breytingar á þriggja ára gömlum reglum um íslenska stafsetningu. Þriðjudagur 29. júní Þennan dag árið 1980 var Vigdís Finnbogadóttir, 50 ára leikhússtjóri, kjörin for- seti íslands. Hún hlaut 34% atkvæða, Guðlaugur Þor- valdsson 32%, Albert Guð- mundsson 20% og Pétur J. Thorsteinsson 14%. Vigdís var fyrsta konan í heiminum sem kosin var þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosningum. Auglýsingar og áskrift sími MIÐVIKUDAGUR 23. JUNI 1999 3

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.