Bæjarins besta - 22.09.1999, Side 2
Útgefandi: Ábyrgðarmenn:
H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson
Sólgötu 9, 400 ísaijörður Halldór Sveinhjörnsson
® 456 4560 Ritstjóri:
O 456 4564 Sigurjón J. Sigurðsson
Netfang prentsmiðju: Blaðamaður:
hprent@snerpa.is Hlynur Þór Magnússon
Stafræn útgáfa: Netfang ritstjórnar:
http://www.snerpa.is/bh hh@snerpa.is
Bæjarlns'besta er í samtökumbæjar- og héraðs-
fréttablaða. Eftirprentun, hJjóðritun, notkun ljósmyuda
og annars efnis er óhelmil nema heimilda sé getið.
Ármní kennir
illur ræðarí
Magnús Reynir Guðmundsson var ómyrkur í máli í
Laufskála Finnboga Hermannssonar í síðustu viku og kom
engum á óvart. Vitað var að honum væri mikið niðri fyrir
og maðurinn þekktur að því að láta skoðanir sínar í ljós með
einörðum hætti.
Magnús Reynir ræddi málefni sjávarútvegs og fiskvinnslu,
enda maðurinn þar hnúturn kunnugur. og kom m.a inn á hið
frjálsa og óhefta framsal kvótans. Þar er „rangt gefið“ sagði
hann. Gífurlegar fjárhæðir, tilorðnar af yfirráðarétti yfir
óveiddum fiski, renna til örfárra einstaklinga beint úr
sjóðum fyrirtækja, sem á sama tíma þurfa jafnvel að sæta
valdboði um sameiningu við önnur fyrirtæki. Eignatilfærsla
af þessu tagi á sér engan samanburð í þjóðarsögunni. I
þessu augnamiði er talið að allt að 6 milljarðar króna hafi
verið teknir út úr sjávarútveginum hér um slóðir á skömmum
tíma. Og þannig er þetta um land allt. Enda hafa skuldir
sjávarútvegsins stóraukist og hafa aldrei verið meiri. Þetta
er nú öll hagræðingin sem af er gumað og af varðmönnum
kerfisins sögð einn af hornsteinum þess, hið frjálsa framsal!
Á aðalfundi Samtaka fiskiðnaðarins s.l. föstudag var
skorað á sjávarútvegsráðherra að flýta endurskoðun laga
um starfsemi Kvótaþings Islands með það að markmiði að
starfsemi þess verði lögð niður þar sem það „hindrar
eðlileg viðskipti fyrirtækja [með kvóta] og truflar með
þeim hætti hráefnisöflun fiskvinnslunnar.“ Ástæðan fyrir
kröfu samtakanna er hærra verð á leigukvóta og er
Kvótaþingi kennt um. Hvernig það má vera er hins vegar
ekki ljóst nema ef vera kynni að breyttir og þar með kannski
opnari viðskiptahættir hafi leitt til þess að menn vilji fá
meira fyrir kvótann, sem þeir sjálfir fengu fyrir ekki neitt?
Hvað eru annars „eðlileg viðskipti“ með kvóta?
Það er eftirtektarvert að Samtök fiskiðnaðarins skuli
beina spjótum sínum að Kvótaþinginu og kenna því ófarir
sínar. Þau forðast að minnast einu orði á meinsemdina:
Braskið með kvótann. Kvótabraskið virðist ekki sfður heilagt
í augum forustumanna Samtakanna en kvótahafanna. Á
meðan skrifstofumaður á opinberri skrifstofunni tekur árlega
á móti kvótaglaðningnum og hækkar leigugjaldið að eigin
geðþótta agnúast Samtök fiskiðnaðarins út í Kvótaþingið.
Skrifstofusjómaðurinn og hinir fjölmörgu kollegar hans út
um allar trissur, sem vinna það eitt við sjávarútveg að hirða
hagnaðinn af kvótasölunni, tilheyra hópi hinna heilögu.
Við þeim má ekki blaka. Þeir eru heilagar kýr.
I kvótabraskinu og hinni gífurlegu eignatilfærsla birtist
„kvótakerfið í sinni skelfilegustu mynd.“ eins og Magnús
Reynir orðaði það réttilega í Laufskálanum. Við því er
ekki vilji til að stugga heldur kenna árinni um erfiðan róður.
s.h.
OÐÐ VIKUNNAÐ
Magnús
Nafnið Magnús er upphaflega komið til fyrir hálfgerðan
misskilning. Reyndar er misskilningur algengasta sort
af skilningi, eins og kunnugt er. Keisari nokkur nefnist á
íslensku máli Karl mikli en það er á latínu Carolus
magnus. Orðið magnus er lýsingarorð og þýðir mikill.
Til forna var nafn keisarans tekið nokkuð hrátt inn í
norrænt mál og maðurinn nefndur Karlamagnús. Menn
álitu að hann héti Magnús og væri kenndur við einhverja
karla. Þannig varð nafnið Magnús til.
íslandsbanki á ísa-
firði styrkir KFÍ
Gengið hefur verið frá
samningi milli Körfubolta-
félags Isafjarðar og íslands-
banka á Isafirði um að bankinn
verði einn af aðalstyrktar-
aðilum KFI og verði með
auglýsingar á ýmsu sem við-
kemur félaginu. Jafnframt
hefur verið gengið frá því, að
allir sem eru félagar í UK-17
klúbbnum hjá íslandsbanka á
Isafirði fá frítt á alla leiki
liðsins. Samningurinner gerð-
ur til þriggja ára en er endur-
skoðaður árlega.
Samningurinn staðfestur með handabandi. Frá vinstri Guðni Guðnason, ritari KFÍ,
Halldór Margeirsson, útibússtjóri Islandsbanka á Isafirði, Jón Kristmannsson, formaður
KFI og Guðjón Þorsteinsson, framkvœmdastjóri félagsins.
ísafjörður
Sendiherra
Rússaí
heimsókn
Sendiherra Rússa á íslandi,
Anatoly Zaytsev, er væntan-
legur í heimsókn til Isafjarðar
á föstudag. Tilefnið er að
Tölvuþjónustan Snerpa er að
taka í notkun vírusvarnaforrit,
hið fyrsta sem þýtt hefur verið
á íslensku, en það er rússneskt
að uppruna og nýtur mikilla
vinsælda víða um heim.
Greint var frá forriti þessu hér
í blaðinu fyrir skömmu.
Sendiherrann ntun dveljast
hér vestra frarn á sunnudag,
skoða sig um og heimsækja
fyrirtæki og stofnanir.
Körfubolti
Starfið
áfiillt
Slarfið hjá KFÍ er að fara á
fullt þessa dagana. Um helg-
ina kemur lið Grindavíkur í
heimsókn og verða leikir í
íþróttahúsinu áTorfnesi bæði
í karlaflokki og kvennaflokki.
Meistaraflokkar karla leika á
föstudag kl. 21 og laugardag
kl. 14 en meistaraflokkar
kvenna á föstudag kl. 19 og á
laugardag kl. 12. Unglinga-
starfið hjá KFÍ er einnig
kornið á fullan skrið.
í Kiwanishúsinu á Isafirði
föstudaginn 24. sept kl. 12-20 |
Víkurbæ Bolungarvík
laugardaginn 25. sept kl. 12-20
HERRAFATNAÐUR í MÍKLU ÚRVALI
Stakir jakkar, ný sending
Stakar buxur, ný sending
Flauelsbuxur
Blússur - úlpur
Jakkaföt
Spariskyrtur, hálsbindi og slaufur
Bílstjóraskyrtur á tilboði kr. 1.450,-
Háskólabolir, T-bolir og pólóbolir í úrvali
Nærföt, sokkar, belti, axlabönd
9.900, --12.900,-
4.900, -- 6.900,-
2.500,-- 4.900,-
3.900, -- 5.900,-
14.900,--21.900,-
Hausttilboð á
ýmsum fatnaði
mlkill afsláttur!
Vandaðar vörur á vægu verði!
V/SA
Andrés Póstkrötulijónusta
Skólavöröustíg 22a Sími 551 8250
Ómakleg meðferð á Ragnheiði
Lesendur
Ekki get ég orða bundist
yftr þeim viðbrögðum, sem
ræða Ragnheiðar Olafsdótt-
ur, fyrrverandi formanns
Átaks, íbúasamtaka á Þing-
eyri, hefur fengið í fjölmiðl-
um. Hefur fyrrverandi for-
maður fengið ómaklega
meðferð og margt skítlegt
verið á hana sett. Ber þar
hæst, að núverandi formaður
Átaks, íbúasamtakanna á
Þingeyri, ásamt hans með-
stjórnendum, biðst afsökunar
á hennar orðum í garð
þingmannanna sent voru á
þessum fundi, og þeirra sem
voru ekki viðstaddir, og
viðstaddir af bæjarstjórn og
fiskveiðistjórn, að ógleymd-
urn kvótagreifunum. Það er
engum til skammar að vera
ríkur. bara ef það ríkidæmi
hefur unnist á réttan máta.
Það færi betur að þetta fólk
ætti aldrei eftir að sjá eftir
þessum gerðunt sínum. En
strax eftir fundinn eru farnar
að berast fregnir af því sent
miður fór og á fleira eftir að
líta dagsins ljós áður en varir,
fyrir það eitt að ábendingum
og tilboðum var ekki sinnt,
eða bara fullyrt að þau boð
komi ekki að neinu gagni.
Samanber það sem Magnús
Reynir upplýsir í DV 16/9.
HaraldurLíndal sagði einfald-
lega að þeir hefðu aðrar
hugmyndir.
Ég tel að það þurfi enginn
að biðjast afsökunar á orðum
Ragnheiðar. Hún varstórorð
en það veitti sannarlega
ekkert af því. Þetta hreyfði
kannski pínulítið við þeirn
sem eru valdir að vanda
okkar. Ragnheiður Ólafs-
dóttirer fullfær um að biðjast
afsökunar, ef þess væri þörf,
en mér persónulega finnst
að hún þurft ekki að gera
það.
- Kristjana S. Vagnsdóttir.
2
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999