Bæjarins besta - 22.09.1999, Blaðsíða 5
ísafjarðarkirkja
Vetrarstarfíð
að heQast
Um þessar mundir er vetr-
arstarfið í ísafjarðarkirkju að
fara af stað. Messur eru alla
jafna á sunnudögum kl.
ellefu. Auk þess eru helgi-
stundir á Fjórðungssjúkra-
húsinu á hverjum þriðjudegi
kl. fjögur.
Barnaguðsþjónustur eru á
laugardögum kl. ellefu. Boð-
ið er upp á rútuferðir frá
Holtahverfi og leggur rútan
af stað stundarfjórðungi fyrr.
Ekin er venjubundin leið
strætisvagna. Efni vetrarins
er að þessu sinni helgað
þúsund ára afmæli kristni á
íslandi. Við fylgjumst með
Snorra, nútímadreng á Is-
landi, og Eddu, stúlku sem
átti hér heima fyrir þúsund
árum. Saman ferðast þau um
tímann og lifa ýmsa atburði
Islandssögunnar. Einnig má
minna á brúðuna Fróða, sem
verður með fasta þætti í
kirkjuskólanum. Samverurn-
ar eru ætlaðar börnum á
aldrinum tveggja til níu ára.
Nauðsynlegt er að eldri syst-
kini eða foreldrar komi með
yngstu börnunum.
Sérstakar foreldrasamver-
ur verða í Safnaðarheimilinu
á mánudögum milli kl. tíu og
tólf. Þar hittast foreldrar með
ung börn og verður fyrsta
samveran nk. mánudag, 27.
september.
Fermingarstarfið hefsl um
næstu helgi. Á föstudaginn
verður haustferð fermingar-
barna í Unaðsdal og verður
sofið eina nótt í félagsheimil-
inu Dalbæ. Farið verður í
náttúruskoðun og gengið til
kirkju. Foreldrar og ferm-
ingarbörn eru svo hvött til að
koma til messu á sunnudag-
inn kl. ellefu í Isafjarðar-
kirkju eða kl. tvö íHnífsdals-
kapellu og láta skrá sig í
fermingarfræðslu vetrarins,
en hún hefst strax í næstu
viku.
Annað starf kirkjunnar,
svo sem fræðsla, námskeið
og unglingaklúbbar, verður
kynnt í safnaðarblaðinu Akr-
inum, sem kemur bráðlega
út og verður dreift í hvert
hús. Oski fólk eftir frekari
upplýsingum er hægt að hafa
samband við prestana í síma
456 3171. Viðtalstími sr.
Magnúsar Erlingssonar er
þriðjudaga til fimmtudaga kl.
11 -12 og sr. Skúla Olafssonar
miðvikudaga til föstudaga kl.
13-14.
ÍSAFJARÐARBÆR
HAFNARSTRÆTI 9 TIL LEIGU
ísafjarðarbær auglýsir laust til leigu
húsnæðið Hafnarstræti 9, ísafirði, utan
þess hluta sem nú er leigður Snyrti-
stofu Sóleyjar.
I húsnæðinu var áður verslunin Þjótur
og er húsnæðið alls um 235 ferm.
Húsnæðiðverðurleigt aðuppfylltum
ákveðnum skilyrðum um leigutíma
vegna skipulagsástæðna.
Allarfrekari upplýsingar eru veittar á
Iskrifstofu ísatjarðarbæjar að Hafnar-
stræti 1, ísafirði.
Bœjarstjóri.
ÚTVEGSMANNAFÉLAG
VESTFJARÐA
Aðalfundur Útvegsmannafélags Vestfjarða
verðurhaldinn fimmtudaginn 30. september
nk. kl. 13.00 á Hótel ísafirði.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á aðalfund L.Í.Ú. sem
haldinn verður 5. nóvember nk.
Gestirfundarins verða Kristján Ragnarsson
formaður L.Í.Ú. og Friðrik J. Arngrímsson
verðandi framkvæmdastjóri L.Í.Ú.
Stjórnin.
Tónlistarskóli Isafjarðar Tónlistarfélag Isajjarðar
Austurvegi II • 400 Isafjörður • Sími 3926
yíáííx) í £ce
jfóníistarnemencfur^ j-oreícfrar ocj aórir ueíunnarar
irmÍisíarmennincjar a TJestjj'örÓum eru fooónir
/jjarianíecja ue/Áomnir i fJóníistarsÁóía ÁJsajj'arÓar
sunnucfacjinn 26. septemfer nÁ.
Kl. 13.30 Nýi tónleikasalurinn vígður
Ávörp og tónlistarflutningur
Að lokinni uígsluathöfn uerður skólinn til sýnis
og gestum boðið upp á kaffi, en í salnum uerður
samfelld dagskrá til kuölds:
Barnaskemmtun í salnum
Trúðasýning í umsjón MORRANS
Nemendatónleikar I
Nemendatónleikar II
Nemendatónleikar III
Minningartónleikar um hjónin
Sigríði og Ragnar H. Ragnar
Tríó Reykjavíkur leikur
Kl. 15.15
Kl. 16.00
Kl. 17.00
Kl. 18.00
Kl. 2 1.00
AÐGANGUR ER ÓKEYPIS AÐ ÖLLUM DAGSKRÁRATRIÐUM
S3
SÚÐAVÍKURHREPPUR
IJF AUGL ÝS/fí
II II
STARFSMAÐUR ÓSKAST í TÍMABUNDIÐ HLUTASTARF Á LEIKSKÓLA
• Oskað er eftir leikskólakennara
eða leiðbeinanda. Um er að
ræða tímabundið starf til loka
febrúar 2000. Vinnutími er frá
8.00 til 14.00.
• Frekari upplýsingar eru gefnar
á skrifstofu Súðavíkurhrepps í
síma 456 4912, eða á leikskól-
anum hjá Önnu Sigurðardóttur í
síma 456 4906.
• Skriflegri umsókn skal skila á
skrifstofu hreppsins eigi síðar en
30. september. nk.
STARFSMENN OSKAST I FORFALLA-
KENNSLU VIÐ SÚÐAVÍKURSKÓLA
• Óskað er eftir kennara, leik-
skólakennara eða leiðbeinanda
til að annast forfallakennslu við
grunn- og/eða leikskólann.
• Frekari upplýsingar veita
skólastjóri í síma 456 4924,
leikskólastjóri í síma 456 4906,
eða á skrifstofu Súðavíkur-
hrepps í síma 456 4912.
• Skriflegum umsóknum skal
skila á skrifstofu Súðavíkur-
hrepps eigi síðar en 30. sept-
ember nk.
Bændaglíma
og árshátíð
Golfklúbbs ísafjarðar
verður á Tungudalsvelli laugardaginn 25.
september nk. Bændaglíman hefst kl.
14.00, en árshátíðin kl. 20.00. Matur og
aðrar veitingar á vægu verði. Félagar í G.í.
og námskeiðsfólk frá því ísumarer velkomið
bæði á bændaglímu og árshátíð.
Árshátíðargestir þurfa að láta skrá sig í
golfskála eða Bókhlöðunni í síðasta iagi á
fimmtudag.
* GOLFKLÚBBUR
ÍSAFJARÐAR
Heilbrigðisstdfnunin
ISAFJARÐARBÆ
Súöavík - heilsugæsla
Laust er starf móttökuritara á heilsu-
gæslunni í Súðavík. Starfinu fylgirjafnframt
ræsting á húsnæðinu. Um er að ræða 20%
starf.
Umsóknarfrestur er til 28. september nk.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón S.
Brjánsson, framkvæmdastjóri í sima
450 4500.
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 5