Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.09.1999, Blaðsíða 9

Bæjarins besta - 22.09.1999, Blaðsíða 9
Uppskeruhátíð hjá stjórn, leikmönnum og stuðningsmönnum KÍB eftir vel heppnað fyrsta sumar Leika í 2. deild á næsta árí - mínútur og jafnvel sekúndur skildu milli lífs og dauða í úrslitaleikjunum Eins og vænta mátti var glatt á hjalla á „uppskeru- hátíð“ KÍB þar sem fagnað var uppstigningu iiðsins í 2. deild. Skammstöfunin KÍB stendur fyrir „Knattspyrnu- bandalag ísfirðinga og Bol- víkinga“ eða því sem næst, en sameiginlegur meistara- flokkur karla úr þessum byggðarlögum á nú að baki eina leiktíð á íslandsmótinu. Lögum samkvæmt var byrj- að á byrjunarreit og keppti liðið í sumar í 3. deild en vann sig umsvifalaust upp í 2. deild þar sent það mun spila á næsta ári. Ekki verður annað sagt en mjótt hafi verið á munum í lokin að KIB kæmist upp um deild. Liðið varð í 2. sæti í sínum riðli en síðan var tveggja hópa útsláttar- keppni liðanna átta sem voru í tveimur efstu sætum í riðlunum fjórum. I undan- úrslitum gerði liðið 2-2 jafntefli við Hvöt á Blöndu- ósi á útivelli og var síðan undir 0-1 á heimavelli í Bolungarvík þangað til fáar mínútur voru til leiksloka. Jöfnunarmark á elleftu stundu varð til þess að liðið komst í úrslitin með fleiri mörkum skoruðum á úti- velli. Spennan var þó enn meiri í sjálfum úrslitunum, þar Súðavík Kirkjan 100 ára - kom frá Hesteyri Þess var minnst um síðustu helgi, að kirkjan í Súðavík er aldargömul um þessar mundir. Hún hefur þó ekki verið í Súðavík nema tæpa fjóra áratugi, því að hún var upphaf- lega reist á Hesteyri í Jökul- fjörðum árið 1899. Þá var Bull hvalveiðiforstjóri með bæki- stöð sína við Hesteyrarfjörð og gaf hann Hesteyringum kirkjuna sem var flutt til- höggvin til íslands frá Noregi. Um 1960 ákváðu íslensk kirkjuyfírvöld að taka Hest- eyrarkirkju ofan og flytja hana til Súðavíkur og mæltist sú ákvörðun misjafnlegafyrir, að ekki sé meira sagt. Hvað sem því líður hefur kirkjan gegnt sínu hlutverki í Súðavík með ágætum í senn fjörutíu ár og var stækkuð og endurbætt fym á þessum áratug. sem andstæðingurinn var lið Njarðvíkinga. Þar var fyrri leikurinn líka á útivelli og lauk honum með jafntefli, 0-0. Þegar fáar mínútur voru til loka seinni leiksins í Bol- ungarvík höfðu gestirnir yfir, 2-3, og ljóst að KÍB nægði ekki jafntefli vegna reglunnar um fleiri mörk skoruð á útivelli. Nokkrum mínútum fyrir leikslok kom jöfnunarmarkið og dómar- inn mun einmitt hafa verið að draga djúpt að sér ferskt sjávarloftið utan af Djúpi til að flauta leikinn af þegar boltinn rataði aftur í markið hjá Njarðvíkingum. Niður- staðan því 4-3 og réttur til að leika í 2. deild að ári. Tuttugu og fjögur lið kepptu í 3. deildinni í fjórurn riðlum en átta fóru í úrslita- keppnina og aðeins tvö komust upp, eins og áður segir, Afturelding í Mos- fellsbæ og KÍB, en þau léku í santa riðlinum sem sam- kvæmt þessu virðist hafa verið sterkastur. KIB hlaut 28 stig úr 12 leikjum í sínum riðli, vann 9 leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði tveimur leikjum. Markatalan var 48 gegn 10. Björn Vilhelmsson þjálfaði lið KÍB og lék jafn- framt með liðinu. Þrír af stjórnarmönnum KIB ásamt þremur leikmönnum sem fengu sérstakar viðurkenningar fyrir frammistöðuna í sumar. I fremri röð eru (f.v.) þeir Pétur Runólfsson, sem útnefndur var efnilegasti leikmaðurinn, Haukur Benediktsson, sem útnefndur var knattspyrnumaður ársins, og Guðbjartur „gullfótur“ Flosason, markakóngur KIB ísumar. Baklijarlar þeirra eru (f.v.) Agúst Gíslason, ritari KIB, Guðjón Brjánsson, gjaldkeri, og Elías Jónatansson, formaður. Kvenþjóðin lœtur sig ekki vanta þegar strákarnir í KIB eru annars vegar og alls ekki á uppskeruhátíðum. Viú vgíúuiíi iBonusi r1 J “Sk1 -J .4jSlP ' ^^ í I 1 1 Ly _ 28.29. oö ao.septGmbGr UmgjafOií og glorðaOoins I J l l/ í GLERAUGNAVERSLUN HAGKAUP Meira úrval - betri kaup MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 9

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.