Bæjarins besta - 22.09.1999, Blaðsíða 3
Gestir að vestan á Menningarnótt Reykjavíkur
Sjálfum sér og heima-
byggðum til mikils sóma
Hlutur ísatjarðarbæjar á
Menningarnótt Reykjavíkur
þetta árið var stór enda var
fulltrúum bæjarins boðið að
koma suður og kynna menn-
ingarlífið hér vestra. Framlag
vestangesta var fjölbreytt og
frammistaða listafólksins
glæsileg. Troðfullt var á öllum
atriðum í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur, sem var eins
konarbækistöð Isafjarðarbæj-
ar á Menningarnóttinni, og
viðtökurnar afar ánægjulegar.
Þáttur Isfirðinganna hófst
með opnun listmunasýningar
Dýrfinnu Torfadóttur gull-
smiðs og Agnesar Aspelund
myndlistarkonu. Jafnframtfór
fram móttaka í boði Reykja-
víkurborgar, þar sem Inga
Olafsdóttir, formaður menn-
ingarnefndar ísafjarðarbæjar,
flutti ávarp og færði gestgjöf-
unum fallegan grip að vestan.
Við þetta tækifæri sungu þær
Þórunn Arna Kristjánsdóttir
og Herdís Anna Jónasdóttir
við undirleik Sigríðar Ragn-
arsdóttur og Ingunn Sturlu-
dóttir söng við undirleik
Hólmfríðar Sigurðardóttur.
Tónlistin var að sjálfsögðu að
vestan.
Morrinn, atvinnuleikhópur
ungs fólks í Isafjarðarbæ, var
með tvær uppfærslur á Menn-
ingarnótt undir stjórn Elvars
Loga Hannessonar. Annars
vegar trúðasýningu og hins
vegar leikþáttinn Umhverfis
Isafjörð, sem er eins konar
heimsókn til ísafjarðar með
leiðsögn, Iitskyggnum, leikat-
riðum og tónlist. Hópurinn
stóð sig með miklum sóma
og allt gekk eins og best
verður á kosið.
Loks er að nefna tónleika
sem báru heitið Vestfirskar
söngperlur. Þar sungu þær
Ingunn, Þórunn Arna og Her-
dís Anna við undirleik Sigríð-
ar og Hólmfríðar lög eftir
tónskáld sem eiga sterk tengsl
við Vestfirði. A efnisskránni
voru m.a. lög eftir Jónas
Tómasson (bæði eldri og
yngri), Hjálmar H. Ragnars-
son. Jón Laxdal og Sigvalda
Kaldalóns. Troðfullt var út
undir dyr og voru tónleikarnir
í alla staði glæsilegir og
listafólkinu og Isatjarðarbæ
til mikils sóma, eins og allt
sem héðan fór á Menningar-
nótt.
Verkefnisstjóri af hálfu
Isfirðinga var Kristinn Jóhann
Níelsson, tónlistarmaður og
tónlistarskólastjóri á Flateyri.
Húsfyllir var á öllum atriðum gestanna að vestan.
Viðkomustaður á leiðinni umhverfis ísafjörð á sviðinu í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Vikan
frantundan
22. september
Þennan dag árið 1992
lauk í Madrid á Spáni,
ólympíuleikum þroska-
heftra, þeim fyrstu. Islenskt
sundfólk hlaut 21 verðlaun
(10 gull, 6 silfur og 5
brons). Sigrún Huld Hrafns-
dóttir hlaut flest verðlaun
einstaklinga á leikunum.
23. september
Þennan dag árið 1973
gekk fellibylurinn Ellen yfír
landið suðvestanvert. Mest-
ur vindhraði var um kvöldið
og nóttina. Veðrið olli miklu
tjóni á húsum, bátum og bif-
reiðum. Vindhraði í Reykja-
vík komst upp í 200 km á
klukkustund.
24. september
Þennan dag árið 1968
framkvæmdi Friðrik Einars-
son yfirlæknir fyrstu skurð-
aðgerðina á Borgarspítalan-
um. Aldarfjórðungi síðar var
þess minnst með þvf að taka
í notkun nýja skurðstofu.
Nýi tónleikasalurinn á ísafírði fullgerður þó að sitthvað vanti enn
25. september
Stólarnir í salnum til sölu“
- vígsluhátið nk. sunnudag, réttu ári eftir fyrstu skóflustunguna
Húis Tónlistarskóla ísajjarðar við Austurveg.
Á sunnudaginn, 26. sept-
ember, verður eitt ár liðið frá
því að Sigríður Ragnarsdóttir
skólastjóri tók fyrstu skóflu-
stunguna að nýjum tónleika-
sal á baklóð Tónlistarskóla
Isafjarðar við Austurveg.
Salurinn er nú fullgerður og
hefst vígsluathöfn kl. 13.30 á
sunnudag. Þar flytja ávörp
einkum fulltrúar þeirra sem
komið hafa að húsbygging-
unni með einum eða öðrum
hætti, en sr. Magnús Erlings-
son mun blessa salinn og gefa
honum nafn. Sunnukórinn og
barnakór Tónlistarskólans
syngja fáein lög undir stjórn
Margrétar Geirsdóttur. Herdís
Jónasdóttir og Þórunn Krist-
jánsdóttir syngja ný lög eftir
Jónas Tómasson og þau
Guðný Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari og Peter Maté píanó-
leikari flytja sönglagið Hjarð-
meyna eftir Ragnar H. Ragnar.
Síðan gefst gestum kostur á
að skoða hin nýju húsakynni
Tónlistarskólans og þiggja
kaffiveitingar.
Trúðasýning og
nemendatúnleikar
Um kl. 15.15 verður í
salnum trúðasýning fyrir
börn, sem leikhópurinn Morr-
inn annast. Kl. 16, 17 og 18
verða síðan þrennir mismun-
andi nemendatónleikar í saln-
um, þar sem boðið verður upp
á ýmiskonar söng og hljóð-
færaleik. Hljómsveit skólans
og lúðrasveit skólanna á
Isafirði og í Bolungarvík
leika, söngnemendur flytja
dúetta úr óperum, eldri píanó-
nemendur og harmónikunem-
endur koma fram og ungli nga-
kórinn syngur, auk fleiri
atriða.
Minningartúnleikar um
Sigríði og Ragnar H.
Um kvöldið kl. 21 hefjast í
salnum hinir árlegu minn-
ingartónleikar um hjónin
Sigríði og Ragnar H. Ragnar.
Þar leikur einn fremsti
kammertónlistarhópur lands-
ins, Tríó Reykjavíkur, sem
skipað er Guðnýju Guð-
mundsdóttur fiðluleikara,
Gunnari Kvaran sellóleikara
og Peter Maté píanóleikara.
Aðgangur er ókeypis en vegna
sætafjölda er hann takmarkað-
ur. Þeir sem vilja komast á
tónleikana þurfa að vita miða
á skrifstofu Tónlistarskóla
Isafjarðar sem fyrst.
Sitthvað vantar enn
Endurbygging skólahúss-
ins og bygging hins nýja salar
hafa kostað mikið fé. Fram-
kvæmdirnar hafa verið kost-
aðar að jöfnu af bæjarsjóði og
Tónlistarfélagi Isafjarðar,
með dyggum stuðningi
Styrktarsjóðs um byggingu
tónlistarskóla og annarra
velunnara.
Þótt salurinn sé nú frá-
genginn er enn sitthvað eftir.
Gott hljóðfæri vantaren unnið
er að því að gera skólanum
fært að kaupa sem fyrst
verulega góðan flygil, sem
hæfi honum sjálfum og nýja
salnum.
Einnig vantar enn góða
stóla í salinn. Þeir hafa að
vísu verið pantaðir en eru
hvorki fullsmíðaðir né greidd-
ir. Til að flýta fyrir stólakaup-
unum hefur stjórn Tónlistar-
félagsins ákveðið að bjóða
vinum og velunnurum Tón-
listarskólans að „kaupa“ sér
stóla. Verðið er um 20 þúsund
krónur og mætti greiða það í
einu lagi eða eftir ástæðum,
jafnvel með raðgreiðslum.
Slík kaup yrðu skólanum
mikill stuðningur. Þeir sem
hefðu hug á stólakaupu m geta
fengið nánari upplýsingar á
skrifstofu Tónlistarskólans.
Þar fást einnig raðgreiðslu-
seðlar í þessu skyni, svo og í
Landsbankanum á ísal'irði.
Þess má geta til hagræðis fyrir
þá sem vilja nota heima- eða
hraðbanka, að reikningsnúm-
er Tónlistarfélagsins er 2626,
höfuðbókarnúmer 26 og
bankanúmer 0156.
Að sjálfsögðu eru allir
unnendur tónlistar velkomnir
á vígsluhátíðina á sunnudag,
sem og á aðra viðburði sem
eiga eftir að verða í nýja
salnum. Það gæti verið sérleg
viðbótaránægja að geta setið
þar á sínum „eigin‘" stól.
Þegar vígsluhátíðin hefst
vantar enn fáeinar klukku-
stundir upp á rétt ár frá fyrstu
skóflustungunni. Hún var
tekin í bland við ræðuhöld og
söng að loknum tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands
í íþróttahúsinu á Torfnesi og
var menntamálaráðherra með-
al gesta. Tónleikarnir voru
haldnir í minningu þess að
28. september í fyrra voru 100
ár frá því að tónlistarfrömuð-
urinnRagnarH. Ragnarfædd-
ist.Við það tækifæri var haldin
samkoma á lóðinni með ræð-
um og söng og var ráðherra
menntamála meðal gesta.
Þennan dag árið 1958 var
fyrsti breski togarinn tekinn
innan nýju 12 mílna land-
helginnar. Það voru varð-
skipin Oðinn og María Júlía
sem tóku Paynter en slepplu
honum síðar samkvæmt
ákvörðun dómsmálaráð-
herra.
26. september
Þennan dag árið 1970
fórst Fokker Friendship
flugvél frá Flugfélagi Is-
lands á Mykinesi í Færeyj-
um. Þrjátíu farþegar voru
með vélinni og fjögurra
manna áhöfn. Átta manns
létust, þar af einn Islending-
ur.
27. september
Þennan dag árið 1966
lagði rússneska skemmti-
ferðaskipið Baltika af stað
frá Reykjavík áleiðis til
Miðjarðahafs og Svartahafs
með 421 íslenskan farþega.
Ferðin var umtöluð, m.a.
vegna áfengisneyslu.
28. september
Þennan dag árið 1988 var
afhjúpaður minnisvarði um
Ragnar H. Ragnar (f. 1898,
d. 1987) á ísafirði, en þenn-
an dag hefði Ragnar H. orð-
ið níræður. Ragnar H. var
skóiastjóri Tónlistarskóla
Isafjarðar í 36 ár.
Auglýsingar
og áskrift
^sími 456 4560
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 3