Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.09.1999, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 22.09.1999, Blaðsíða 12
CAMO VÖÐLUR FYR/R G/ESA- SKYTTUNA vesturjfspmt AÐALSTRÆTI 27 JJ/ SÍMI 456 3602 Christopher Bundeh Fær að snúa r til Islands Margir kannast við mannréttindabaráttu Christophers Bundeh og Halldóru Gunnlaugsdótt- ur frá Hvilft í Önundar- firði, sem staðið hefur í nokkur ár. Mál Christo- phers, sem á sínum tíma var við störf á Isafirði, hefur þvælst í „kerfum“ landa og um langt skeið hefur hann verið í Finn- landi án þess að hafa þar dvalarleyfi og án þess að hafa í rauninni nokkurs staðar landvistarleyfi. Hann er frá Sierra Leone en hefur ekki getað snúið þangað. Hann er nú ör- yrki. Nú er svo komið, að Christopher hefur loks fengið leyfi til landvistar í Finnlandi og á Islandi. Halldóra er hjá honum ytra og stefna þau að því að komast heim til Is- lands þegar efni leyfa. Þeir sem þekkja til Christophers og margra ára þrautagöngu hans og vilja leggja honum og Halldóru lið geta haft samband við Sparisjóð Súðavíkur, útibúið á Isa- firði, og lagt þar á sérstak- an reikning framlag til þess að þau komist heim. Bolungarvík Karl ekkí að hætta Eins og fram hefur komið er Karl Gunnars- son, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Suður- nesja í Bolungarvík, einn af fjórum eigendum hins nýja fiskvinnslufyrir- tækis í Hnífsdal, Hnífa ehf., og verður hann vinnslustjóri hjáfyrirtæk- inu. Hitt er alrangt að hann sé að hætta hjá fiskmarkaðnum í Bol- ungarvík eða að þar séu einhverjar breytingar í aðsigi. SJÚKRABIl L - Fólk úr ýmsum björgunarsveitum siitnir „slösðum og látnum“ á vettvangi. Geysifjölmenn björgunaræfíng vegna flugslyss á ísaflarðarflugvelli Samskiptatækin og GSM- kerfið brugðust herfilega - en skipulag og frammistaða heimamanna með miklum ágætum Björgunaræfingin sem haldin varálsafjarðarflugvelli á laugardag tókst í meginatrið- um mjög vel, ef fjarskipti milli stjórnenda og einstakra hópa eru undanskilin. Allmiklir vankantar komu fram á tækja- búnaði til samskipta.Aukþess reyndist GSM-kerfi Lands- símans óvirkt og olli það verulegum óþægindum. Sá þáttur verður tekinn til sér- stakrar endurskoðunar. Við æfinguna var gengið út frá því, að farþegavél með tæplega 50 farþegum hefði brotlent á syðri brautarendan- um. Eldar kviknuðu, nokkrir voru látnir og margir slasaðir og voru sjálfboðaliðar í þeim hlutverkum. Einnig voru sjálf- boðaliðar í hlutverkum ör- væntingarfullra aðstandenda og annarra sem reyndu að komast inn á svæðið. Þeir sem tóku þátt í æfingunni með einum eða öðrum hætti skiptu hundruðum. Frumkvæði að æfingum sem þessum kemur frá Flug- málastjórn undirforystu Hall- gríms Sigurðssonar. Meðal annarra sem komu að æfing- unni voru Flugmálastjórn á Isafjarðarflugvelli, lögreglan á Isafirði, Slökkvilið ísafjarð- ar, Fjórðungssjúkrahúsið á Isafirði, allar hjálparsveitir á svæðinu, Rauði krossinn syðra og vestra, embætti ríkislögreglustjóra, Borgar- spítalinn í Reykjavík og Flugfélag Islands og munu þá einhverjir ótaldir. Fulltrúar framantalinna stofnana syðra voru komnir vestur og héldu sig til hlés og fylgdust með öllum þáttum æfingarinnar. Þeir sem fylgst höfðu með öðrum sambæri- legum æfingum fullyrtu að þessi væri sú sem best hefði tekist og greinilegt að hér væru reyndir og þjálfaðir menn og vel undirbúnir, vinnubrögð mjög skipuleg og sérhver maður hefði ákveðnu hlutverki að gegna, þannig að mjög lítið hefði verið um að menn væru verkefnalausireða með eitthvert óðagot. Oddur Árnason lögregluvarðstjóri á ísafirði var vettvangsstjóri og fékk hann sérstakt lofsorð fyrir sína frammistöðu. í stjórnunarstöðum á æfing- unni voru alls um 45 manns. Á sunnudag var haldinn fund- ur þar sem saman voru komnir vel á annað hundrað þátttak- endur í björgunarstarfinu og greindu stjórnendur einstakra hópa þar frá því sem vel hafði tekist og ekki síður því sem betur hefði mátt fara. Eins og áður segir var það samskipta- búnaður en þó einkum GSM- kerfið sem kom mest á óvart og mestum óþægindum olli, en það brást algerlega þegar á reyndi. Sem dæmi má nefna, að yfirlögregluþjónninn á Isafirði náði alls ekki síma- sambandi við sýslumann og ekki einu sinni þegar þeir stóðu hvor andspænis öðrum. Þegar drífa þurfti hlutina af fór allt of mikill dýrmætur tími í að ná í aðra lykilaðila. Utkallið sjálft gekk mjög vel, t.d. gekk vel að boða slökkviliðið með þeim boð- rásum sem þar eru notaðar og eins gekk vel að boða björgun- arsveitirnar á neyðarlínu 112. Sumt sem gagnrýnt var reynd- ist á misskilningi byggt. Varðandi störf á staðnum var m.a. gagnrýnt að slökkviliðs- maður hefði farið að gera upp brunaslöngur eftir að eldar höfðu verið slökktir en á meðan ennþá var hjálparstarf í gangi á vettvangi. Svarið við því var að nauðsynlegt væri að hafa bílinn kláran ef annað útkall kæmi. Flutningur slas- aðra af slysstað gekk ágætlega en fjarskipti milli sjúkrahúss og vettvangs voru ekki nógu góð. Sumir hinna „slösuðu“ gagnrýndu meðferðina á sér. Einn hélt því fram að honum hefði verið gleymt en skýring- in var sú að spítalinn hér gat ekki tekið við fleiri alvarlega slösuðum og var viðkomandi undir eftirliti á geymslusvæði í forgangshópi til að vera fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Næstu daga og vikur verður unnið að rækilegum saman- tektum um gang mála hjá hverjum hópi sem tók þátt í æfmgunni og verða þær síðan teknar til úrvinnslu og í framhaldi af því gerðar lag- færingar á þeim þáttum sem reyndust ekki vera í nógu góðu lagi. Niðurstöðurnar verðasíðan hafðartil hliðsjón- ar við undirbúning næstu æfingar sem verður á Egils- stöðum, annað hvort síðar á þessu ári eða á því næsta. Haf- þór Gunnarsson myndatöku- maður Sjónvarpsins hér vestra var fenginn til að taka bæði æfinguna og undirbúninginn á myndband og verður hægt að hafa margvíslegt gagn af þeirri heimild. Silfurgötu 6 • ísafirdi Sími 456 4229 Tveir fyrír einn til Bantfa- ríkjanna # Samvinnuferðir Landsýn Söluskrifstota • Hafnarstræti 7 0 ísafirði • Sími 456 5390 OPIÐ: Virka daga kl. 09 - 21 Laugardaga kl. 10 - 18 Sunnudaga kl. 12 - 18 AUSTURVEGI 2 • SÍMI 456 5460 TILBOÐ Kellogg 's Choco Krispies 2 fyrir I kr. 269,- Java kaffi 2 fyrir I kr. I49,- London fannh kr. 998,-/kg Ktndabjúgy kr. 549,-/kg

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.