Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.12.1999, Síða 1

Bæjarins besta - 08.12.1999, Síða 1
< PICTIÖN ARY Spennandi teiknispilió ''mig: PICXIONTARV \ AfwnmtifSt íi‘ití>r£\{níiri TILBOÐ TILBOÐ V&rð kr„ §M>5r Tilboðsverð kr. 4.990,- jCtJLAÐAW SÍMI456 3123 Stofnað 14. növember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@snerpa.is • Veri kr. 200 m/vsk Básafell hf. að leysast upp Sjálfstæð fyrirtæki taka við á hyerjum stað Með sundurlimun Bása- fells hf. í Isafjarðarbæ er í raun verið að hverfa aftur til þeirrar tilhögunar sem var hér á svæðinu fyrir nokkrum ár- um. Síðustu daga og vikur hefur verið unnið að því að sjálfstæð fyrirtæki á Isafirði, Flateyri og Suðureyri taki við rekstri þeim sem Básafell hefur haft með höndum síð- ustu ár. A Flateyri hefur verið stofnað nýtt fiskvinnslufyrir- tæki undir hinu gamalkunna nafni Kambur og hefur það keypt eignir Básafells á Flat- eyri og mun halda rekstrinum áfram með sama hætti og ver- ið hefur. Súgfirðingar taka með svipuðum hætti starfsem- ina á Suðureyri í sínar hendur. ísfirðingar vinna að stofnun eignarhaldsfélags til kaupa á aflaheimildum af Básafelli. Þar koma við sögu stærstu hluthafar í Básafelli hér á svæðinu, svo sem ísafjarðar- bær, Verkalýðsfélagið Baldur og Lífeyrissjóður Vestfirð- inga, auk hluthafa á Flateyri og Suðureyri, og er ætlunin að greiða fyrir þær aflaheim- ildir með hlutafjáreigninni í Básafelli. Kaupum Kambs á eignum Básafells á Flateyri fylgir eng- inn kvóti, en Flateyringar hyggjast kanna réttarstöðu sína varðandi úthlutun byggðakvótans til Isafjarðar- bæjar á sínum tíma. Kaupum Súgfirðinga á eignum Bása- fells á Suðureyri fylgir hins vegar kvóti upp á 242 tonn. Markmið heimamanna á hverjum stað er að halda at- vinnu fyrir fólkið og reyna af fremsta megni að halda í heimabyggð sem mestu af aflaheimildum þeim sem Básafell neyðist til að selja. Eða eins og Hinrik Kristjáns- son hjá Kambi ehf. á Flateyri segir: „Kvóti er forsenda þess að rnega sækja í þessa auðlind hér við bæjardyrnar.“ Kolbrún Sverrisdóttir útnefnd kona ársins hjá Nýju lífi „Viðurkenning fyrír baráttnna „Mér finnst þetta rnikill heiður og viðurkenning, ekki bara fyrir mig per- sónulega, heldur fyrir þá baráttu sem ég háði og þá sem studdu mig í henni“, sagði Kolbrún Sverrisdótt- ir, verkakona á Isaftrði í samtali við blaðið, en tímaritið Nýtt líf útnefndi hana konu ársins 1999. Útnefninguna hlaut Kol- brún vegna baráttu sinnar fyrir réttindamálum sjó- rnanna í kjölfar slyssins þegar skelveiðiskipið Æsa fórst árið 1996, en þá missti Kolbrún bæði sambýlis- mann sinn og föður. I haust vann Kolbrún sigur fyrir héraðsdómi í málaferlum vegna slyssins og ákváðu gagnaðilar að sætta sig við þá niðurstöðu og áfrýja ekki til Hæstaréttar. Kolbrún er níunda konan sem hlýtur þennan titil hjá Nýju lífi. Kolbrún Sverrisdóttir. Sr. Gunnar Björnsson messaði í Flateyrarkirkju Þrír heimamenn sem eiga nýjar bækur á jólamarkaði í ár, þeir Finnbogi Hermannsson (Hulda), Jón Páll Halldórsson (Frá línuveiðum til togveiða) og Eyvindur P. Eiríksson (Þar sem blómið vex og vatnið fellur), spjölluðu við gesti og árituðu bækur sínar í Bókhlöðunni á Isafirði síðdegis á laugardaginn. Mjög margir litu inn og þágu kaffisopa og rœddu við höfundana sem höfðu nóg að iðja. A myndinni sem tekin var við þetta tœkifœri hvíla þeir lúnar hendur og virðast bœrilega sáttir á svip. Með samþykki biskups en í trássi við sóknarnefhd Þrátt fyrir að biskup hafi vikið sr. Gunnari Björnssyni í Holti úrembætti sóknarprests í sóknurn Önundarfjarðar í þrjá mánuði til bráðabirgða frá 3. desember og sett hann í stöðu sérþjónustuprests á rneðan, hélt sr. Gunnar barna- guðsþjónustu í Flateyrarkirkju sl. sunnudag (5. desember). Það sem ýmsum þykir undar- legt, bæði kirkjunnar þjónum hér vestra og öðrum, er að sr. Gunnar gerði þetta með vitund og samþykki biskups en al- gerlega í trássi við sóknar- nefnd og settan sóknarprest. Þykir mönnum þar sjálft krosstréð hafa brugðist. Sóknarbarn á Flateyri sem blaðið ræddi við taldi þetta hið versta mál. Enda þótt fáir hefðu komið í barnamessuna til sr. Gunnars (börnin voru átta) væri afar óheppilegt að hann skuli „reyna að ala á klofningi" innan safnaðarins. Sr. Agnes Sigurðardóttir prófastur hefur að gefnu tilefni minnt sr. Gunnar á að hann sé í leyfí frá störfum sóknarprests og á rneðan eigi hann ekki að sinna embættisverkum í Holtsprestakalli. „Leyfi þýðir leyfi“, sagði prófastur í sam- tali við blaðið, „og í því felst að meðan á því stendur er séra Gunnar ekkert að messa hér.“ TONUSTiN ER ROMiN i HAMRABORG! HAMRABORG Sími: 456 3166

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.